Sögð ætla að leita á náðir Trumps Samúel Karl Ólason skrifar 10. nóvember 2025 12:22 Jeffrey Epsten og Ghislaine Maxwell á árum áður. Getty/Joe Schildhorn Ghislaine Maxwell ætlar að biðja Donald Trump, forseta Bandaríkjanna, um að milda dóm hennar og sleppa henni úr fangelsi. Að óbreyttu á hún að sitja inni til loka ársins 2037 en Demókratar í dómsmálanefnd fulltrúadeildarinnar hafa sent Trump bréf og sagt honum að þetta standi til.
Í bréfi Demókrata, sem blaðamenn CBS News hafa séð, segir að beiðni Maxwells sé í vinnslu og að hún njóti aðstoðar fangelsisstjórans í lágmarksöryggisfangabúðunum sem hún afplánar dóm sinn. Maxwell var áður í alríkisfangelsi í Flórída en var flutt í búðirnar, sem eru í Texas, skömmu eftir að hún var heimsótt af Todd Blanche, aðstoðardómsmálaráðherra. Eftir þann fund birti Blanche afrit af samræðum þeirra þar sem Maxwell sagði að Trump hefði aldrei hegðað sér ósæmilega þegar hann og Epstein voru vinir. Sjá einnig: „Forsetinn var aldrei óviðeigandi við neinn“ Maxwell er, eins og frægt er, fyrrverandi aðstoðarkona og kærasta Jeffreys Epstein. Hún var dæmd árið 2021 í tuttugu ára fangelsi fyrir að aðstoða Epstein við að brjóta kynferðislega á stúlkum og ungum konum um árabil. Fyrr á árinu fór hún fram á að Hæstiréttur tæki mál hennar fyrir en því var hafnað í síðasta mánuði. Sjá einnig: Hæstiréttur hafnar Maxwell Í bréfi Demókrata til Trumps segir að Maxwell fái væga meðferð í fangabúðunum í Texas og að starfsfólk þar gangi fram eins og þjónar. Hún fái sérstakar máltíðir sendar til sín og fái þá gesti sem hana langi að hitta, þegar hana langar, á afmörkuðu svæði í fangelsinu. Gestirnir fái meira að segja að taka tölvur með sér. Ýttu undir samsæriskenningar og neituðu svo að birta upplýsingar Epstein svipti sig lífi í fangelsi árið 2019. Hann var 66 ára gamall og hafði þá verið ákærður fyrir mansal og sakaður um að misnota stúlkur kynferðislega og jafnvel útvega áhrifamiklum vinum sínum eins og Andrési prins stúlkur til að misnota. Trump og bandamenn hans hafa á undanförnum árum kynnt undir samsæriskenningar um Epstein og dauða hans en málið hefur reynst Trump erfitt eftir að hann varð aftur forseti. Ríkisstjórn hans hefur staðið í vegi þess að frekari gögn úr málinu yrðu opinberuð en fregnir hafa einnig borist af því að Trump hafi verið tilkynnt að nafn hans komi nokkrum sinnum fyrir í rannsóknargögnunum. Hann og aðrir sem starfa nú í ríkisstjórn hans höfðu áður heitið því að opinbera öll gögn rannsóknarinnar. Miklar samsæriskenningar hafa farið á flug tengdar Epstein á undanförnum árum. Þar á meðal hefur því verið haldið fram að yfirvöld í Bandaríkjunum sitji á umfangsmiklum gögnum sem bendli þekkt fólk við misnotkun Epstein. Því hefur einnig verið haldið fram að Epstein hafi verið myrtur í fangelsinu en ekki svipt sig lífi. Meðal samsæriskenninganna sem tengjast Epstein er að hann hafi átt lista yfir áhrifamikla menn í Bandaríkjunum sem hafi misnotað stúlkur með honum og á eyju hans. Það er listi sem meðlimir áðurnefndrar þingnefndar vilja koma höndum yfir.
Bandaríkin Mál Jeffrey Epstein Donald Trump Tengdar fréttir Andrew sviptur síðustu hernaðartigninni Varnarmálaráðuneyti Breta vinnur að því að svipta Andrew Mountbatten Windsor síðustu hernaðartign sinni. Andrew, sem var áður þekktur sem Andrés prins, var sviptur prins-titli sínum fyrr í vikunni. 2. nóvember 2025 13:20 Neitar enn að hleypa nýrri þingkonu að Mike Johnson, forseti fulltrúadeildar Bandaríkjaþings, neitar enn að gera nýkjörinni þingkonu kleift að taka sér sæti á þingi. Rétt tæpur mánuður er síðan hún var kjörin í embætti en Johnson hefur ekki leyft henni að sverja embættiseið. 20. október 2025 15:35 Andrés við Epstein árið 2011: „Við erum saman í þessu“ „Við erum saman í þessu,“ sagði Andrés Bretaprins í tölvupósti til athafna- og kynferðisbrotamannsins Jeffrey Epstein 28. febrúar 2011, þegar fjölmiðlar birtu mynd af honum, Virginiu Giuffre og Ghislaine Maxwell. 13. október 2025 07:29 Segist hafa hafnað boði til einkaeyju Epsteins Elon Musk, einn auðugasti maður heims, segist hafa hafnað boði um að fara á einkaeyju barnaníðingsins Jeffreys Epstein. Auðjöfurinn hefur lýst yfir fordæmingu á þeim sem bendla hann við Epstein eftir að ný skjöl úr dánarbúi Epsteins voru opinberuð. 28. september 2025 08:48 Mest lesið Svakaleg lægð í líkingu við metlægðina í síðustu viku nálgast landið Veður Allir á uppsagnarfresti og enginn getur svarað Innlent „Við erum virkilega þreyttir“ Innlent Búið að opna Hellisheiði á ný Innlent Brutu kynferðislega gegn börnum en sluppu við refsingu Innlent Hörð andstaða íbúa við rekstur veislusalar Innlent Leigubílstjóri lét hnefana tala Innlent Ákærður fyrir að nauðga sautján ára stúlku en neitar sök Erlent Beiðni skólastjóra kveikti hörð orðaskipti í Hafnarfirði Innlent „Niðurstaðan er sú að hann setti þetta aftur á“ Erlent Fleiri fréttir Gríðarlegur viðbúnaður í Frakklandi vegna morgundagsins Segist hafa tryggt staðbundið vopnahlé „Loka“ Vesturbakkanum eftir árás á hermenn Einn látinn eftir mögulega hryðjuverkaárás Thomas Markle sakaður um vörslu barnaníðsefnis Enn einu skipinu sökkt á Svartahafi Flugsamgöngur í lamasessi vegna öflugs fellibyls Saka Kanadamenn um afskipti af kosningunum „Niðurstaðan er sú að hann setti þetta aftur á“ Ákærður fyrir að nauðga sautján ára stúlku en neitar sök Lögðu andstæðingunum vafasöm orð í munn með gervigreind Vilja afsökunarbeiðni frá Kim vegna jarðsprengju Ætlar að halda þingsætinu þrátt fyrir rannsókn á svikum Létu sprengjum rigna yfir Kænugarð Glaumgosinn sem tók við málaliðaveldi föður síns „Nei, Pútín er harðsvíraður morðingi“ Björguðu særðum hermanni með dróna Fulltrúi Trump lofaði „mannvininn“ Pútín Sænskur glæpaforingi ákærður fyrir þrjú morð Vill losna við blaðamenn og fá sundlaug í staðinn Þingkonan missti báða fætur eftir árásina Herlið á leiðinni og Íslendingar hafi varann á Þungmálmar í drykkjarvatni á Svalbarða vegna þiðnunar Meintir njósnarar handteknir í Danmörku Selenskí og bandamenn hitta fulltrúa Trump í Osló Heita því að refsa Norður-Kóreu fyrir ögranir Braut ekki af sér þegar hann skaut barn til bana Verðlag og óvissa leiða til óeirða í Evrópu Þróa þjónustustöð fyrir tunglið Íbúar Alberta höfnuðu áætlunum um sjálfstæði Sjá meira
Andrew sviptur síðustu hernaðartigninni Varnarmálaráðuneyti Breta vinnur að því að svipta Andrew Mountbatten Windsor síðustu hernaðartign sinni. Andrew, sem var áður þekktur sem Andrés prins, var sviptur prins-titli sínum fyrr í vikunni. 2. nóvember 2025 13:20
Neitar enn að hleypa nýrri þingkonu að Mike Johnson, forseti fulltrúadeildar Bandaríkjaþings, neitar enn að gera nýkjörinni þingkonu kleift að taka sér sæti á þingi. Rétt tæpur mánuður er síðan hún var kjörin í embætti en Johnson hefur ekki leyft henni að sverja embættiseið. 20. október 2025 15:35
Andrés við Epstein árið 2011: „Við erum saman í þessu“ „Við erum saman í þessu,“ sagði Andrés Bretaprins í tölvupósti til athafna- og kynferðisbrotamannsins Jeffrey Epstein 28. febrúar 2011, þegar fjölmiðlar birtu mynd af honum, Virginiu Giuffre og Ghislaine Maxwell. 13. október 2025 07:29
Segist hafa hafnað boði til einkaeyju Epsteins Elon Musk, einn auðugasti maður heims, segist hafa hafnað boði um að fara á einkaeyju barnaníðingsins Jeffreys Epstein. Auðjöfurinn hefur lýst yfir fordæmingu á þeim sem bendla hann við Epstein eftir að ný skjöl úr dánarbúi Epsteins voru opinberuð. 28. september 2025 08:48