Frost og víða fallegt vetrarveður Atli Ísleifsson skrifar 18. nóvember 2025 07:06 Frost verður núll til átta stig, kaldast inn til landsins. Vísir/Vilhelm Hæg norðlæg eða breytileg átt er nú í vændum og mun blása aðeins austast á landinu þar sem má gera ráð fyrir átta til þrettán metrum á sekúndu.
Á vef Veðurstofunnar kemur fram að það verði víða léttskýjað og fallegt vetrarveður. Búast má við éljum í norðausturfjórðungi landsins. Frost um allt land, sem gæti náð tveggja stafa tölu inn til landsins í kvöld og nótt. „Á morgun er vestlæg eða breytileg átt 3-8 m/s í kortunum. Þokkalega myndarlegur skýjabakki hylur væntanlega vesturhelming landsins að mestu og sums staðar dálítil snjókoma eða slydda úr bakkanum. Austantil á landinu bjart veður að mestu. Það hlýnar rétt uppfyrir frostmark við vesturströndina, en í innsveitum norðaustanlands verður væntanlega um 10 stiga frost. Á fimmtudag á síðan að ganga í suðaustan strekking með rigningu og hlýnar í veðri. Hægari vindur og þurrt um landið norðaustanvert,“ segir á vef Veðurstofunnar. Spákort fyrir klukkan 14.Veðurstofan Veðurhorfur á landinu næstu daga Á miðvikudag: Vestlæg eða breytileg átt 3-8 m/s. Skýjað að mestu á vesturhelmingi landsins og sums staðar dálítil snjókoma, en víða bjart austantil. Hiti frá því að vera kringum frostmark við vesturströndina, niður í 10 stiga frost í innsveitum norðaustanlands. Á fimmtudag: Suðaustan 10-18 með rigningu eða slyddu, en þurrt norðaustantil á landinu. Hiti 2 til 8 stig. Hægari suðvestanátt og skúrir suðvestanlands um kvödið. Á föstudag: Suðvestan 3-10 og skúrir eða slydduél sunnan- og vestanlands. Norðlægari og rigning eða slydda á Austurlandi fram eftir degi. Hiti 1 til 5 stig. Á laugardag: Fremur hæg breytileg átt. Líkur á dálitlum éljum í flestum landshlutum, einkum við sjóinn. Frost 0 til 5 stig. Á sunnudag: Norðanátt með snjókomu eða éljum, en yfirleitt þurrt sunnantil á landinu. Hiti breytist lítið. Á mánudag: Hæg breytileg átt. Skýjað með köflum og él á stöku stað. Kalt í veðri.
Veður Mest lesið Ísland verður ekki með í Eurovision Innlent Gummi Emil tekinn í skýrslutöku lögreglu Innlent Sæði með krabbameinsvaldandi genagalla selt til Íslands Innlent Krafðist sérlega þungrar refsingar yfir Margréti Höllu Innlent Vörubifreið ekið á undirstöður Breiðholtsbrúar Innlent Úlfar þögull sem gröfin Innlent Vilja skoða samfélagsmiðla íslenskra ferðamanna Erlent Ósáttur með ákvörðunina: „Mér finnst Rúv verða aðeins leiðinlegra fyrir vikið“ Innlent Síðasti loðdýrabóndinn segir Íslendinga verða að vakna Innlent Handtekinn á Akranesi grunaður um nauðgun Innlent Fleiri fréttir Austan stormur og gular viðvaranir á morgun Hvassviðri eða stormur og gular viðvaranir Bæta við gulri viðvörun á Vestfjörðum og miðhálendi Hvasst sunnantil og víða rigning eða slydda Hvassviðri syðst á landinu Smá rigning eða slydda víða Hiti gæti náð upp undir 10 gráður Rigning eða slydda sunnan- og vestanlands Bjart sunnan- og vestanlands en él norðan- og austantil Allhvasst syðst en hægari vindur annars staðar Bjartviðri suðvestantil en hvasst suðaustanlands Blæs hressilega af austri Stormur í kortunum Snjódýptin geti náð fjörutíu sentimetrum Gul viðvörun vegna snjókomu Snjókoma í kortunum Kuldinn bítur í kinnar landsmanna Slær í storm suðaustantil en höfuðborgarsvæðið í skjóli Allvíða él eða skúrir og flughált víða um land Hlýnar í veðri og gæti orðið flughált Vara við flughálku í fyrramálið Skúrir á víð og dreif og hiti að sex stigum Hefðbundin lægð með rigningu og allhvössum vindi Hvít jörð á höfuðborgarsvæðinu og víðar Frost og víða fallegt vetrarveður Víða vindasamt á landinu Töluvert bjartviðri í dag en sums staðar þokuloft Skýjað og dálítil él Skýjað og útkomulítið vestantil og þurrt fyrir austan Dálítil rigning eða slydda en lengst af þurrt sunnantil Sjá meira