Kæra niðurstöðu lögreglu að loka rannsókn á meintu ofbeldi Lovísa Arnardóttir skrifar 18. nóvember 2025 22:00 Leikskólinn Múlaborg er í Ármúla. Vísir/Anton Brink Deildarstjóri á leikskólanum Múlaborg er komin í veikindaleyfi vegna streitu og álags meðal annars í tengslum við meint kynferðisbrot starfsmanns á deildinni. Foreldrar eins barns hafa kært niðurstöðu lögreglu að loka rannsókn á meintu ofbeldi starfsmannsins gegn barninu þeirra. Móðir stúlku sem greindi frá því fyrir rúmu ári að hana grunaði að brotið hefði verið á dóttur sinni segir allt kerfið hafa brugðist. Fjallað var um málið í Kveik á RÚV í kvöld.
Í þættinum kom fram að í tengslum við rannsókn lögreglunnar hefðu mál sautján barna á leikskólanum verið tekin til skoðunar hjá lögreglunni, foreldrar þrettán barna kærðu meint brot starfsmannsins, rannsókn var hætt hjá tíu þeirra og þrjú send til héraðssaksóknara. Aðeins var ákært í einu máli. Foreldrar eins barns hafa kært niðurstöðu lögreglu um að loka málinu og fleiri foreldrar skoða stöðu sína samkvæmt því sem kom fram í þættinum. Maðurinn hefur játað sök að hluta í því eina máli sem var ákært í. Í Kveik er rætt við foreldra barna á leikskólanum sem telja að rannsaka hefði betur mál annarra barna. Foreldrar drengs sem kærðu meint ofbeldi segjast ekki hafa fengið nægilegan stuðning og segjast hafa upplifað að þeim hafi ekki verið trúað. Móðir einnar stúlku, sem tilkynnti um grun um kynferðisbrot ári áður en maðurinn var handtekinn, lýsti í þættinum breytingum á dóttur sinni og grunsemdum sínum á því að brotið hafi verið á henni. Móðirin segist hafa talað við stjórnendur Múlaborgar snemma árs 2024 og var bent á að leita aðstoðar. Hún endaði á því að fara í yfirheyrslu til lögreglu og var þar sagt að nánasti hringur væri alltaf fyrstur undir grun í slíkum málum. Til dæmis faðir barnsins. Í þættinum kemur fram að faðir barnsins hafi ekki verið yfirheyrður í málinu og enginn starfsmaður hafi verið grunaður á þessum tíma. Málinu var síðar lokað hjá lögreglu og fært til barnaverndar en því lokað í september 2024. Eftir það voru gerðar breytingar á leikskólanum og gerð krafa um að uppáhalds starfsmaður og deildarstjóri myndu skipta um bleyju á barninu. Maðurinn sem var handtekinn kom ekki nálægt bleyjuskiptum á barninu aftur eftir þetta samkvæmt konunni. Í Kveik kom fram að málið hafi verið opnað aftur eftir að maðurinn var handtekinn en því svo lokað. Móðirin er ósátt við viðbrögð kerfisins og þá sérstaklega þau skilaboð að dóttir hennar muni ekki muna eftir atvikinu því hún hafi verið svo ung. Undir þetta tekur annað par sem er rætt við í þættinum.
Grunaður um kynferðisbrot á Múlaborg Ofbeldi gegn börnum Skóla- og menntamál Leikskólar Reykjavík Kynferðisofbeldi Tengdar fréttir Dómsmál á hendur starfsmanni Múlaborgar hafið Ákæra á hendur starfsmanni leikskólans Múlaborgar, sem grunaður er um kynferðisbrot gegn börnum á leikskólanum, var þingfest í morgun. Afstaða hans til sakargiftanna liggur ekki fyrir. Þá liggur efni ákærunnar ekki fyrir að svo stöddu. 12. nóvember 2025 13:39 „Það endaði bara með því að það var brotið á börnunum okkar“ Elva Björk Haraldsdóttir, foreldri barns á Múlaborg, gagnrýnir verklag, upplýsingaflæði og ábyrgðarleysi borgaryfirvalda vegna rannsóknar lögreglu á kynferðisbroti starfsmanns leikskólans. Hún kallar eftir skýrara verklagi og að einhver taki skýra ábyrgð. 6. október 2025 13:33 Grunaður um að hafa brotið á fleiri en tíu börnum Starfsmaður á leikskólanum Múlaborg í Reykjavík er grunaður um að hafa brotið á fleiri en tíu börnum. Hann hefur sætt gæsluvarðhaldi síðan um miðjan ágúst. 3. október 2025 12:28 Mest lesið Minningarstundir vegna andlátanna Innlent Fleiri bílar á vettvangi og hraðakstur til skoðunar Innlent Skúli Tómas ekki sloppinn eftir allt saman Innlent Ætli að leggja áherslu á bókun 35 Innlent SÁÁ missir forstjóra og yfirlækni Innlent Hópuppsögn á sviði heilsu- og líkamsræktar Innlent „Óharðnaðir unglingar sem kunna ekkert á lífið“ Innlent Einn fluttur á slysadeild eftir eld í Holtagörðum Innlent Öll hin látnu um og undir tvítugu Innlent Segir af og frá að hann hafi veitt stórfé í Brexit-baráttuna Innlent Fleiri fréttir Kynna úrræði sem eigi að liðka fyrir kjarasamningum „Óharðnaðir unglingar sem kunna ekkert á lífið“ Allir níu áfram í haldi Mátti ekki gefa blóð í gær en gerði það í dag Staðan hafi ekki verið betri á þessari öld Halla verður viðstödd útför Haraldar Ætli að leggja áherslu á bókun 35 Viðreisn tapar fylgi Sigríður Þorvaldsdóttir látin Hópuppsögn á sviði heilsu- og líkamsræktar Minningarstundir vegna andlátanna Þorgerður sinnir starfi sveitarstjóra í eitt ár Andarnefja í andarslitrunum á Djúpavogi Báðar fylkingar eyddu milljónum í samfélagsmiðlaauglýsingar Skúli Tómas ekki sloppinn eftir allt saman Byrjað að leggja Borgarlínu við Nauthólsveg Svekktir og reiðir stjórnendur komu saman við Ráðhúsið Komugjald lagt á: „Þetta er auðvitað ekkert annað en skattlagning“ SÁÁ missir forstjóra og yfirlækni Norðausturland fær loks langþráðan veg Tjón vegna skemmdarverka hlaupi á milljónum Rætt við vitni að banaslysinu og eldri borgarar ósáttir með skattahækkun Fleiri bílar á vettvangi og hraðakstur til skoðunar Rún frá Veitum til Þorgerðar Katrínar Einn fluttur á slysadeild eftir eld í Holtagörðum Hlaup af þessari stærðargráðu vel þekkt í Múlakvísl Kviknaði í jeppa á Reykjanesbraut Leggja til að Evrópusambandsumsóknin verði formlega dregin til baka Segir af og frá að hann hafi veitt stórfé í Brexit-baráttuna Sakborningur í Kársnesmáli sóttur til Spánar Sjá meira
Dómsmál á hendur starfsmanni Múlaborgar hafið Ákæra á hendur starfsmanni leikskólans Múlaborgar, sem grunaður er um kynferðisbrot gegn börnum á leikskólanum, var þingfest í morgun. Afstaða hans til sakargiftanna liggur ekki fyrir. Þá liggur efni ákærunnar ekki fyrir að svo stöddu. 12. nóvember 2025 13:39
„Það endaði bara með því að það var brotið á börnunum okkar“ Elva Björk Haraldsdóttir, foreldri barns á Múlaborg, gagnrýnir verklag, upplýsingaflæði og ábyrgðarleysi borgaryfirvalda vegna rannsóknar lögreglu á kynferðisbroti starfsmanns leikskólans. Hún kallar eftir skýrara verklagi og að einhver taki skýra ábyrgð. 6. október 2025 13:33
Grunaður um að hafa brotið á fleiri en tíu börnum Starfsmaður á leikskólanum Múlaborg í Reykjavík er grunaður um að hafa brotið á fleiri en tíu börnum. Hann hefur sætt gæsluvarðhaldi síðan um miðjan ágúst. 3. október 2025 12:28