Í skýjunum eftir sex marka sigur: „Nálægt fullkomnun“ Ingvi Þór Sæmundsson skrifar 19. nóvember 2025 18:32 Craig Bellamy er tveimur sigrum frá því að koma Wales á HM 2026. getty/Michael Steele Eins og ætla mátti var Craig Bellamy, þjálfari velska karlalandsliðsins í fótbolta, afar sáttur með sína menn eftir stórsigurinn á Norður-Makedóníu, 7-1, í undankeppni HM í gær.
Með sigrinum tryggðu Walesverjar sér 2. sætið í sínum riðli í undankeppninni og jafnframt að leikur þeirra í undanúrslitum umspils um sæti á HM fari fram á heimavelli þeirra í Wales. „Ég er ekki fullkomin manneskja og ég hef ekki hitt neina slíka. En ég tek það kannski aðeins til baka því þetta var eins nálægt fullkominni frammistöðu og komist verður. Þetta var ótrúlegt,“ sagði Bellamy eftir leikinn á Cardiff City leikvanginum í gær. „Hvernig við fórum með boltann, tímasetningarnar okkar. Við spiluðum ekki með framherja heldur þrjár tíur. En þeir voru í stöðum til að draga menn út og hlaupa inn í þau svæði og síðan tengdu kantmennirnir líka við. Við gerðum svo vel með boltann og þá færðu góð færi. Þetta var einn af þeim dögum þar sem við nýttum þau líka.“ Á morgun kemur í ljós hver andstæðingur Wales í umspilinu í mars á næsta ári verður. Wales getur mætt Bosníu, Kósovó eða Írlandi sem Heimir Hallgrímsson stýrir. Bellamy tók við velska landsliðinu í júlí 2024. Hann hefur stýrt Wales í sextán leikjum. Átta þeirra hafa unnist, fjórir tapast og fjórir endað með jafntefli.
HM 2026 í fótbolta Mest lesið Vakinn með símtölum um miðja nótt: „Lenti í hakkavélinni“ Íslenski boltinn Heppinn að vera á lífi eftir rosalegan 15 bíla árekstur Sport „Ég sá fólk gráta úr gleði“ Fótbolti Man. United-stuðningsmaðurinn með hárið algjörlega búinn á því Enski boltinn Treyja Gylfa fór á milljón Íslenski boltinn Hver gæti tekið við af Carrick? Enski boltinn Utan vallar: Fólk með ADHD má spila íþróttir Sport Það er ekki hægt að reka allar þessar pissudúkkur Sport Ræddu bann Veigars: „Hræðilegur tími“ en „heppinn með dóminn“ Körfubolti Uppaldir spiluðu eitt prósent mínútna hjá Val Íslenski boltinn Fleiri fréttir Ingibjörg valin sú efnilegasta Spila til að vinna deildina, ekki Barcelona Gullboltinn afhentur í kvöld Uppaldir spiluðu eitt prósent mínútna hjá Val Vakinn með símtölum um miðja nótt: „Lenti í hakkavélinni“ Kveðja Kristin og Kristin „Ég sá fólk gráta úr gleði“ Eiríkur nýr þjálfari Vals Treyja Gylfa fór á milljón Stuðningsmennirnir fögnuðu Carrick en bauluðu á leikmennina Hver gæti tekið við af Carrick? Þurfti að sauma 50 spor eftir hundaárás Sakar leikmenn Manchester United um ófagmennsku utan vallar KR á nú tvo yngstu markaskorara sögunnar Man. United-stuðningsmaðurinn með hárið algjörlega búinn á því „Hann brást hrapallega sem manneskja“ Sjáðu ræðu Óskars fyrir markaveislu KR-liðsins Mbappé með bæði mörkin í sigri á Barcelona „Guð morning!“ Skaut á Liverpool eftir leikinn: „Aðeins eitt lið reyndi að skapa“ Orri skoraði í þriðja leiknum í röð Katla tryggði Fiorentina sigur „Þetta snýst ekki um mig“ Hákon Arnar meiddist Guðlaugur Victor lagði upp mark í stórsigri í Íslendingaslag „Við verðum að líta í eigin barm“ Newcastle vann í London og sanngjarn jafntefli í Hull Siggi Raggi gerði NSÍ Runavík að meisturum Varð markahæstur í deildinni gegn bróður sínum. Mikael Egill var hetja Genoa í sigri Sjá meira