„Þetta eru auðvitað vonbrigði“ Silja Rún Sigurbjörnsdóttir skrifar 21. nóvember 2025 15:03 Jónína Brynjólfsdóttir er formaður heimastjórnar Seyðisfjarðar. Samsett Formaður heimastjórnar Seyðisfjarðar segir lokun Bræðslunar, fiskmjölverksmiðju Síldarvinnslunnar á Seyðisfirði, vonbrigði. Hún bindur miklar vonir við vinnu ráðgjafa sem ætlað er að finna nýja starfsemi í húsnæði fyrirtækisins. „
Fyrstu viðbrögð eru auðvitað sú að þetta eru auðvitað vonbrigði,“ segir Jónína Brynjólfsdóttir, formaður heimastjórnar Seyðisfjarðar, í samtali við fréttastofu. Greint var frá því að Síldarvinnslan hf. hefur ákveðið að loka fiskmjölverksmiðju fyrirtækisins á Seyðisfirði þar sem að rekstrarumhverfi slíkra verksmiðja hafi versnað hratt undanfarin misseri. Tólf misstu vinnuna ásamt ónefndum fjölda verktaka. Í fréttatilkynningu frá fyrirtækinu segir að Síldarvinnslan sammæltist forsvarsmönnum Múlaþings um ráðningu ráðgjafa sem myndi fara yfir viðskiptahugmyndir um framtíðarstarfsemi í húsum félagsins. Fyrirtækið mun greiða ráðgjafanum fyrir störf sín. Að sögn Jónínu verður verkefni ráðgjafans að finna út hvaða atvinnustarfsemi geti farið vel í þessum húsum. Meðal þess sem hefur áður komið upp er hótelrekstur eða sameiginlegt vinnurými en Jónína telur nauðsynlegt að atvinnustarfsemin sé í gangi allt árið um kring. „Þetta eru auðvitað vonbrigði en við fögnum þessu starfi sem Síldarvinnslan ætlar að leggja fram og bindum miklar vonir við það. Þar eru alveg hellings tækifæri og það þarf að finna leiðir til að festa betur í sessi í heilsársstörf. Það er mjög gott að fá starfsmann til að veita því athygli og greina.“ Hún telur lokunina hafa áhrif á samfélagið, þar sé fjöldi starfa sem hverfa. Til að mynda starfi þónokkrir við löndun sem verktakar.
Síldarvinnslan Sjávarútvegur Múlaþing Vinnumarkaður Mest lesið Karl Wernersson opnar sig Viðskipti innlent Borealis stefnt vegna hundruða milljóna króna leiguskuldar Viðskipti innlent Uppbygging umdeilds hótels í uppnámi Viðskipti innlent Sektað fyrir að láta gesti skanna QR-kóða til að sjá verðið Viðskipti innlent Hvar á sonur minn að geyma húsnæðissparnaðinn sinn? Viðskipti innlent Yfir hundrað prósenta munur á verði fyrir umfelgun Neytendur Segja Adomat reyna að koma höggi á Borealis Viðskipti innlent Vinkonur í bissness: Búnar að yfirtaka bílskúr foreldranna Atvinnulíf Róar áhyggjufulla Hafnfirðinga Viðskipti innlent 281 sagt upp í fimm hópuppsögnum Viðskipti innlent Fleiri fréttir Uppbygging umdeilds hótels í uppnámi Segja Adomat reyna að koma höggi á Borealis Borealis stefnt vegna hundruða milljóna króna leiguskuldar Karl Wernersson opnar sig Hvar á sonur minn að geyma húsnæðissparnaðinn sinn? Sektað fyrir að láta gesti skanna QR-kóða til að sjá verðið Bláa lónið má kaupa annan ferðaþjónusturisa 281 sagt upp í fimm hópuppsögnum Ráðinn forstjóri Elkem á Íslandi Róar áhyggjufulla Hafnfirðinga Orð Andra Snæs um apaheila dæmi sig sjálf Samkaup kaupir Fjarðarkaup Loka kaffihúsinu Örnu á Eiðistorgi Nýtt gjald hefur áhrif á íslenska seljendur Nýttu hagnaðinn í styrki fyrir íþróttastarfsemi Mega kaupa Öryggismiðstöðina og Opin kerfi Bláa lónið á markað í nóvember Klakki, áður Exista, gjaldþrota Hótelævintýri lauk með gjaldþrotum upp á milljarð Getur ekki lengur orða bundist Hefja viðræður um sölu Blikastaðalandsins Bein útsending: Hátæknibrennsla á Íslandi Gangast í ábyrgð fyrir 3,4 milljarða króna láni Ráðin mannauðsstjóri Advania Tekjur Nova í hæstu hæðum Live verður Lifa Treble hlaut Nýsköpunarverðlaunin Hagnast um 33 milljarða en sjá viðvörunarljós Náðu að halda kaupunum leyndum Aukinn vaxtamunur og hagnaður upp á tæpa 22 milljarða Sjá meira