Njarðvíkurkonur björguðu sér í lokin Óskar Ófeigur Jónsson skrifar 22. nóvember 2025 21:01 Landsliðskonan Danielle Rodriguez var atkvæðamikil hjá Njarðvík með 24 stig, 15 fráköst og 7 stoðsendingar í kvöld. Vísir/Anton Brink Njarðvík lenti í vandræðum á móti nýliðum Ármanns í Laugardalshöllinni í Bónus-deild kvenna í körfubolta í kvöld en komst í toppsætið með sigri. Tindastóll vann botnlið deildarinnar á sama tíma.
Njarðvík vann 94-83 útisigur á Ármanni í hörkuleik sem var jafnari en flestir bjuggust við enda liðin á sitthvorum enda töflunnar. Ármenningar byrjuðu mjög vel, komust í 21-11, 26-17 og voru fimm stigum yfir í hálfleik, 48-43. Ármann var einu stigi yfir, 70-69, fyrir lokaleikhlutann en hann unnu Njarðvíkurkonur 25-13 og tryggðu sér sigur. Landsliðskonan Danielle Rodriguez var atkvæðamikil hjá Njarðvík með 24 stig, 15 fráköst og 7 stoðsendingar en Paulina Hersler skoraði einnig 24 stig. Brittany Dinkins skoraði 16 stig og Hulda María Agnarsdóttir var með 14 stig. Dzana Crnac skoraði 21 stig fyrir Ármann og Khiana Johnson var með 20 stig og 7 stoðsendingar. Fyrirliðinn Jónína Þórdís Karlsdóttir var sóðan með 14 stig, 12 fráköst og 6 stoðs Tindastóll vann tveggja stiga sigur á Hamar/Þór, 80-78, á Sauðárkróki og endaði fimm leikja taphrinu sína. Leikurinn var jafn og spennandi og Hamars/Þórs-liðið nálægt sínum fyrsta sigri á leiktíðinni. Þetta var aðeins annar sigur Tindastólsliðsins. Stólarnir voru sterkari í lokin, skoruðu níu stig í röð á lokamínútum leiksins og breyttu stöðunni úr 70-71 í 79-71. Madison Sutton var með 20 stig og 19 fráköst fyrir Tindastól, Marta Hermida skoraði 21 stig, tók 7 fráköst og gaf 6 stoðsendingar og Alejandra Martinez var með 20 stig. Mariana Duran var atkvæðamikil hjá Hamar/Þór með 20 stig, 7 fráköst og 5 stoðsendingar en Jadakiss Guinn skoraði 18 stig. Jóhanna Ýr Ágústsdóttir var með 14 stig og Ellen Iversen bætti við 14 stigum og 10 fráköstum.
Bónus-deild kvenna Tindastóll UMF Njarðvík Hamar Þór Þorlákshöfn Ármann Mest lesið Blóðbað í Köben: „Þetta var helvítis bras“ Sport Gripinn í PSG-treyju í skrúðgöngu Arsenal Enski boltinn Missir af HM í fótbolta vegna samfélagsmiðlafærslu Fótbolti Draumurinn ekki dáinn hjá Bergrós Sport Dalglish greindi óvart frá baráttu sinni við krabbamein Enski boltinn Ver val á meintum kynferðisbrotamanni Fótbolti Fékk ekki að ferðast með landsliðinu til Bandaríkjanna Fótbolti Svíar tala um valdaskipti í skandinavískum íþróttum Fótbolti Steph Curry gerir risasamning við kínverskt íþróttamerki Körfubolti HM-minning: Óheiðarlegasta heimsmeistarakeppni allra tíma Fótbolti Fleiri fréttir Búinn að vinna titilinn fyrir fyrsta leik Mála neðanjarðarkerfið í litum Knicks Steph Curry gerir risasamning við kínverskt íþróttamerki Heiðurshallarþjálfarinn Rick Adelman látinn Björgvin Hafþór snýr aftur í Skallagrím Einn efnilegasti leikmaður landsins áfram í Haukum Martin frábær og einum sigri frá úrslitaeinvíginu Ingvi tekur slaginn áfram með Ármanni „Vissi ekki að þetta væri svona alvarlegt“ Sló út meistarana eftir áskorun þjálfarans Aðstoðaði Baldur en tekur nú við í Þorlákshöfn Martin og félagar tóku fyrsta skref að úrslitum Kane handtekinn fyrir að skulda meðlag Óvíst hvað Hilmar Smári gerir: „Fyrstu símtölin voru í þá“ Tryggvi tryggði sigur á móti Elvari Rétt unnu botnliðið í lokaumferðinni Doncic flytur félag til Rómar Hjalti stýrir Skagamönnum Spurs knúðu fram oddaleik Martin valinn mikilvægastur Emil Barja tekur við Stjörnunni Pétur Már tekur við Grindavík Gerir ekki ráð fyrir heimkomu Martin magnaður í oddaleik Ægir hjá Stjörnunni næstu tvö tímabil Collin Pryor í Álftanes Meistararnir einum sigri frá úrslitaeinvíginu Grindavík endursemur við fjóra leikmenn: Beeman áfram í gulu New York Knicks í úrslitin í fyrsta sinn á þessari öld Óvænt ræða frá goðsögninni blés San Antonio byr í brjóst Sjá meira