Lífið

Simmi Vill í með­ferð

Eiður Þór Árnason skrifar
Sigmar Vilhjálmsson rekur meðal annars Minigarðinn í Skútuvogi.
Sigmar Vilhjálmsson rekur meðal annars Minigarðinn í Skútuvogi. Vísir/Vilhelm

„Áfengi er hætt að vera gleðigjafi og ég hef notað það sem flóttaleið í stað þess að nálgast það af gleði og hvað þá hófsemi. Flóttaleiðirnar með áfengi hafa verið margvíslegar og engar af þeim leiðum hafa verið farsælar. Það hefur hvorki verið farsælt né heilsusamlegt, og því er þetta skref bæði rétt og tímabært.“

Þetta segir Sigmar Vilhjálmsson athafnamaður, einnig þekktur sem Simmi Vill, og greinir frá því að hann hafi skráð sig í meðferð vegna áfengisvanda. Sjúkómurinn hafi tekið of mikið pláss í lífi sínu og haft neikvæð áhrif á samskipti og ákvarðanir síðastliðin tvö ár.

„Ég er að deila þessu með ykkur hér til að hlífa mínum nánustu frá því að verða upplýsingafulltrúar mínir næstu 6 vikurnar og vonandi að koma í veg fyrir að það komi fram kjaftasögur um mig sem mitt nánasta fólk sér sig knúið til að leiðrétta,“ segir Sigmar í færslu á Facebook-síðu sinni.

„Ég er stoltur af þessari ákvörðun. Hún er tekin fyrir heilsuna mína, mína nánustu og framtíðina.“ Hann reikni með því að finna fyrir stuðningi frá fólki og sé því þakklátur. 

Í myndbandi greinir Sigmar frá því að hann eigi ekki von á því að vera áberandi á samfélagsmiðlum næstu fimm til sex vikurnar. Þá muni hann taka sér hlé frá gerð hlaðvarpsþátta.

Fréttin er í vinnslu.






Fleiri fréttir

Sjá meira


×


Tarot dagsins

Dragðu spil og sjáðu hvaða spádóm það geymir.