NPA breytir lífum – það gleymist í umræðunni Rúnar Björn Herrera Þorkelsson skrifar 28. nóvember 2025 10:31 Umræðan um notendastýrða persónulega aðstoð (NPA) hefur undanfarið snúist um biðlista, peninga og ágreining um hver eigi að borga. Það sem við hins vegar heyrum allt of lítið um er einföld staðreynd: NPA breytir lífi fatlaðs fólks til hins betra og það er einmitt ástæðan fyrir því að þessi þjónusta er nú hluti af lögfestum mannréttindum á Íslandi. Þegar NPA var lögfest sem réttindi fatlaðs fólks árið 2018 var verið að staðfesta það sem hreyfing fatlaðs fólks hafði krafist í áratugi: Að fatlað fólk þurfi ekki að þiggja ótrygga hjálp á forsendum kerfisins, heldur eigi raunverulegan rétt til að stýra eigin lífi, taka sínar ákvarðanir og lifa í samfélaginu til jafns við aðra. NPA er eitt helsta verkfærið til að gera þetta að veruleika. Frelsi til að stýra eigin lífi, ekki bara fleiri klukkutímar NPA er ekki bara „meiri þjónusta“, heldur grundvallarbreyting á valdi og lífsgæðum. Í stað þess að kerfið ákveði hvenær aðstoðarfólk kemur, hvað það má gera og innan hvaða veggja, fær notandinn sjálfur stjórnina. Þetta er kjarninn í NPA, að viðkomandi ráði því hver aðstoðar sig, hvar, hvenær, hvernig og við hvað, (Háin fimm svokölluðu). Hugmyndafræðin um sjálfstætt líf, sem NPA byggir á, gengur út á að fatlað fólk: Búi þar sem það vill og með þeim sem það vill Geti tekið ákvarðanir um eigið líf, á sínum forsendum Hafi raunveruleg tækifæri til náms, starfs, fjölskyldulífs og þátttöku í samfélaginu Munurinn á NPA og hefðbundinni þjónustu er því ekki bara mældur í klukkustundum. Munurinn er mældur í lífsgæðum, frelsi, sjálfstæði og mannlegri reisn. Rannsóknir sýna það sem notendur hafa lengi vitað Matsrannsókn Félagsvísindastofnunar Háskóla Íslands á innleiðingu NPA sýnir svart á hvítu að NPA skilar betri lífsgæðum en hefðbundin úrræði. Notendur lýsa: Meira sjálfræði og stjórn á daglegu lífi Afgerandi meiri þátttöku í námi, starfi og félagslífi Aukinni sjálfsvirðingu og minni félagslegri einangrun Rannsóknir benda jafnframt til þess að NPA hafi jákvæð áhrif á fjölskyldur: Aðstandendur fara síður í kulnun, geta unnið meira og taka þátt í samfélaginu á eigin forsendum, í stað þess að vera föst í ólaunaðri umönnun allan sólarhringinn. Þetta skiptir máli langt út fyrir „velferðarkerfið“. NPA er atvinnumál, jafnréttismál, fjölskyldumál, jafnréttismál og geðheilbrigðismál allt í senn. „Dýr sérþjónusta“? Nei – skynsamleg notkun fjármuna Mýtan um að NPA sé „of dýrt“ er reglulega endurtekin. Það er athyglisvert að þegar farið er yfir rannsóknir á kostnaði kemur í ljós að myndin er miklu flóknari og oft á tíðum þveröfug. Skýrslur frá Norðurlöndum og Bretlandi benda til þess að notendastýrð aðstoð sé ýmist hagkvæmari eða kosti svipað og sambærileg hefðbundin úrræði og að notendur kjósi miklu frekar NPA heldur en aðra þjónustu. Ástæðurnar eru augljósar ef betur er skoðað: Með NPA er hægt að forðast dýr vistunarúrræði og langtímavist á stofnunum Betra aðgengi að námi og vinnu þýðir minna tekjutap fatlaðs fólks og aðstandenda þeirra og auknar skatttekjurMinni ólaunuð umönnun aðstandenda dregur úr kulnun og veikindum sem algengt er að hafi leitt til örorku Ef við horfum eingöngu á kostnað í bókhaldi sveitarfélaga er auðvelt að missa sjónar á þessari heildarmynd. En sem samfélag er mun skynsamlegra að verja fjármunum í það að fatlað fólk hafi raunverulegt frelsi í stað þess að vera fast í úrræðum sem hvorki styðja sjálfstæði né samfélaglega þátttöku. Biðlistar og fjármögnun – mikilvægt, en ekki sagan öll Auðvitað skipta biðlistar og fjármögnun máli. Það er alvarlegt þegar tugir einstaklinga bíða árum saman eftir NPA samningi sem á að tryggja þeim grunnmannréttindi. En ef umræðan snýst eingöngu um krónutölur og halla er hætt við að gleymist af hverju NPA var yfirleitt fundið upp. Á bak við hvern NPA-samning er manneskja sem: Kemst út úr stofnun eða ósveigjanlegu búsetuúrræði Getur lokið námi eða haldið vinnu Getur alið upp börn sín heima Getur tekið þátt í íþróttum, menningu og pólitísku lífi til jafns við aðra Það er þessi saga sem þarf að heyrast hlið við hlið við umræðu um peninga. NPA er ekki sértæk fríðindi heldur mannréttindi NPA kom til vegna þess að fatlað fólk krafðist og fékk viðurkenningu á því að vera fullgildir borgarar, með rétt til að stjórna eigin lífi. Lög nr. 38/2018 og lögfesting Samnings Sameinuðu þjóðanna um réttindi fatlaðs fólksog réttindabarátta fatlaðs fólks segja okkur að spurningin á ekki að vera hvort við höfum efni á NPA, heldur hvort við höfum efni á því að halda áfram að útiloka fatlað fólk frá innihaldsríku sjálfstæðu lífi. Á meðan pólitíkin snýst um peninga snýst NPA alltaf um að raunverulegt frelsi, sjálfstæði og því að þátttaka fatlaðs fólks í samfélaginu verði að veruleika. Höfundur er formaður NPA miðstöðvarinnar. Viltu birta grein á Vísi? Kynntu þér reglur ritstjórnar um skoðanagreinar. Senda grein Rúnar Björn Herrera Þorkelsson Málefni fatlaðs fólks Mest lesið Hræðsluáróður og staðreyndir um orkuauðlindir Jóhann Páll Jóhannsson Skoðun Hagsmunir Reykvíkinga og loðfíllinn í Ráðhúsinu Pétur Marteinsson Skoðun Samningaviðræður um Evrópusambandsaðild, já eða nei? Magnús Tumi Guðmundsson Skoðun Þarftu að vita mikið um ESB til að kjósa 29. ágúst? Árný Elínborg Ásgeirsdóttir Skoðun Ef Ísland gengur í Evrópusambandið flyt ég til Danmerkur Benedikt Jóhannesson Skoðun Ný komugjöld í heilbrigðisþjónustu munu stórauka kostnaðarhlut sjúklinga Halldór Rafn Halldórsson Skoðun Hvað er það sem við eigum eftir að sjá? Gunnar Ármannsson Skoðun Því er ekki betur vandað til verka? Fanný Gunnarsdóttir Skoðun SFS, hagsmunir og sannleikurinn Þórólfur Matthíasson Skoðun Spánverjar vilja íslenskan sjávarútveg Gunnar Bragi Sveinsson Skoðun Skoðun Skoðun Ísland og evran Höskuldur Einarsson skrifar Skoðun Gosi og gylliboðin Kristín Thoroddsen skrifar Skoðun Ný komugjöld í heilbrigðisþjónustu munu stórauka kostnaðarhlut sjúklinga Halldór Rafn Halldórsson skrifar Skoðun Spánverjar vilja íslenskan sjávarútveg Gunnar Bragi Sveinsson skrifar Skoðun Fólkið eða peningarnir? Yngvi Ómar Sigrúnarson skrifar Skoðun Stöndum vörð um...hvað? Ingibjörg Rósa Björnsdóttir skrifar Skoðun Hvaða ákvæði læknasamningsins voru mistök? Steinunn Þórðardóttir skrifar Skoðun Fullveldi hvað Ólafur Hannesson skrifar Skoðun Nei er ókei Ágúst Valves Jóhannesson skrifar Skoðun Hvað ef? Pétur B. Sveinsson skrifar Skoðun Húsnæðisvextir lækka ekki sjálfkrafa með evru Magnús B. Jóhannesson skrifar Skoðun Mun ESB hjálpa við vegagerð á Íslandi? Jón Þorvaldur Heiðarsson skrifar Skoðun Við erum í partíinu en megum ekki velja lag Árni Páll Jónsson skrifar Skoðun Með öllum mjalla? Steingrímur Jónsson skrifar Skoðun Fyrsti steinninn úr múrnum – af hverju ég segi já Brynhildur Heiðar- og Ómarsdóttir skrifar Skoðun Hræðsluáróður og staðreyndir um orkuauðlindir Jóhann Páll Jóhannsson skrifar Skoðun Til hvers var þá barist? Jón Pétur Zimsen skrifar Skoðun Skynsamleg röð hlutanna Jón Steindór Valdimarsson skrifar Skoðun Græða fyrirtæki á verðbólgu? Konráð S. Guðjónsson skrifar Skoðun Hvað er það sem við eigum eftir að sjá? Gunnar Ármannsson skrifar Skoðun Tækifæri fyrir íslenskan landbúnað í ESB Svavar Halldórsson skrifar Skoðun Hagsmunir Reykvíkinga og loðfíllinn í Ráðhúsinu Pétur Marteinsson skrifar Skoðun Hundruð milljarða ávinningur fyrir fólk og fyrirtæki - þess vegna segi ég já til að sjá Þorbjörg S. Gunnlaugsdóttir skrifar Skoðun Því er ekki betur vandað til verka? Fanný Gunnarsdóttir skrifar Skoðun Hvaða samningsrammi gildir? Erna Bjarnadóttir skrifar Skoðun Gullasninn Guðjón Þórir Sigfússon skrifar Skoðun Samningaviðræður um Evrópusambandsaðild, já eða nei? Magnús Tumi Guðmundsson skrifar Skoðun SFS, hagsmunir og sannleikurinn Þórólfur Matthíasson skrifar Skoðun Daði í baði Bjarnheiður Hallsdóttir skrifar Skoðun Hégómi Haukur Eggertsson skrifar Sjá meira
Ný komugjöld í heilbrigðisþjónustu munu stórauka kostnaðarhlut sjúklinga Halldór Rafn Halldórsson Skoðun
Skoðun Ný komugjöld í heilbrigðisþjónustu munu stórauka kostnaðarhlut sjúklinga Halldór Rafn Halldórsson skrifar
Skoðun Hundruð milljarða ávinningur fyrir fólk og fyrirtæki - þess vegna segi ég já til að sjá Þorbjörg S. Gunnlaugsdóttir skrifar
Ný komugjöld í heilbrigðisþjónustu munu stórauka kostnaðarhlut sjúklinga Halldór Rafn Halldórsson Skoðun