Sættir sig við dóm fyrir að deila kynferðislegu efni af táningum Sindri Sverrisson skrifar 4. desember 2025 09:00 Andreas Schjelderup er í dag leikmaður Benfica í Portúgal en spilaði í Danmörku þegar hann braut af sér. Getty/Jose Breton Andreas Schjelderup, landsliðsmaður Noregs í fótbolta og leikmaður Benfica í Portúgal, áfrýjaði ekki dómnum sem hann hlaut fyrir að deila myndbandi með kynferðislegu efni fólks sem var undir 18 ára aldri.
Schjelderup, sem verið hefur hluti af norska landsliðinu sem nýverið vann sig inn á HM í fyrsta sinn á þessari öld, var dæmdur sekur í Kaupmannahöfn í síðasta mánuði. Fyrir tveimur árum, þegar hann var sjálfur 19 ára gamall, leikmaður Nordsjælland í Danmörku, deildi hann áfram 27 sekúndna myndbandi á Snapchat þar sem sjá mátti einstaklinga undir 18 ára aldri í kynferðislegum athöfnum. Schjelderup var dæmdur í fjórtán daga skilorðsbundið fangelsi fyrir brot sitt. Hann hafði sömuleiðis fjórtán daga frest til að ákveða hvort hann vildi áfrýja dómnum og nú er sá frestur runninn út. Samkvæmt frétt NRK gæti saksóknari í Danmörku enn áfrýjað málinu en slíkt er þó ekki algengt í játningarmálum. Dómari í málinu sagði að Schjelderup hefði fengið „gult spjald“ og að litið hefði verið til þess að hann hefði fengið myndbandið sent en ekki leitað það uppi sjálfur. „Það skal ekki vera neitt leyndarmál að Andreas hefur harmað allt ferlið, eins og þið hafið heyrt. Það var lélegur brandari hjá honum að framsenda það. Hann eyddi því strax og hefur beðist afsökunar,“ sagði Anders Nemeth, lögmaður Schjelderup, eftir að dómurinn var kveðinn upp. Leikmaðurinn tjáði sig sjálfur á Instagram í byrjun nóvember og sagði þar: „Það sem ég gerði var ólöglegt. Ég býst við að verða dæmdur og fá skilorðsbundinn dóm.“
Fótbolti Mest lesið „Á stuttum tíma eru mínir nánustu vinir farnir“ Íslenski boltinn Sjáðu slagsmálin í Síkinu Körfubolti „Á meðan er hann að sofa hjá Ólympíufara í sundi“ Sport Missti af leik með KR vegna herskyldu Körfubolti Emil Atlason á leið í Fram Íslenski boltinn „Ég hefði frekar kýlt hana í andlitið“ Körfubolti „Magnús er þjálfari Aftureldingar og verður það áfram“ Íslenski boltinn „Jóla-Paul er á leiðinni og einhver verður rotaður“ Sport Hópurinn sem fer til Rúmeníu á EM Handbolti Ældi blóði, braut rifbein, fór á spítala og svo aftur inn á völlinn Sport Fleiri fréttir Nik Chamberlain rekinn frá Kristianstad „Magnús er þjálfari Aftureldingar og verður það áfram“ Grealish í agabanni hjá Everton Emil Atlason á leið í Fram Áfrýjun Arsenal á rauða spjaldi Dowman hafnað Israel frá Fram „Á stuttum tíma eru mínir nánustu vinir farnir“ „Enski boltinn er annar heimur“ Nýr heimavöllur í Milan mun koma í stað San Siro „Mér þætti það skrýtið ef að allir kölluðu mig Sir“ FIFA hagnaðist um 620 milljarða á miðum á HM-leiki Cristiano Ronaldo með þrennu Víkingar láta Einar Guðna fara Landsliðsmaður í frí hjá félagi sínu vegna persónulegra ástæðna Hallgrímur kveður KA „Ég þarf ekki fullvissu frá neinum“ Viktor Bjarki var í byrjunarliði FCK í öruggum sigri Heimir ráðinn til ÍA og kostaði nokkrar milljónir Var klár í samkeppnina við Ingvar „Eina liðið sem ég vildi ekki“ Flauta Péturs á hilluna Verða án Sesko fram í janúar Engin uppalin spilaði með Fram „Guðjohnsen er stórt nafn í fótboltanum“ „Ég hef sjaldan, ef nokkurn tímann, kynnst öðru eins félagi og Víkingi“ Máttu ekki spyrja Haaland út í dóminn og hættu við viðtalið Sonur Wayne Rooney með fernu fyrir átján ára liðið Knattspyrnuforkólfur segir af sér til að mótmæla stuðningi við Infantino „Ég vissi að Gomez myndi skora“ Liverpool slapp við Manchester City Sjá meira