19 ára og 1.300 leikja hrina Lebrons á enda Valur Páll Eiríksson skrifar 5. desember 2025 12:47 LeBron James skoraði minna í nótt en hann er vanur. Raunar eru tæplega 1.300 leikir síðan hann skoraði svo fá stig. GEtty/Ronald Martinez Lebron James skoraði í gær átta stig í leik Los Angeles Lakers við Toronto Raptors. Hann hefur ekki skorað færri en tíu stig í leik frá því í janúar 2007.
James hafði fyrir gærkvöldið leikið 1.297 leiki í röð í NBA-deildinni þar sem hann skorar tíu stig eða fleiri. Jan. 6, 2007 to Dec. 1, 2025.Double-digit scoring in Every. Single. Game.What a special run for @KingJames 👑 pic.twitter.com/Xtx4F7XKSE— NBA (@NBA) December 5, 2025 Hann virtist þó ekki upptekinn af tölfræðinni í leik næturinnar. Staðan var jöfn 120-120 á lokasekúndunum þar sem James hafði færi til þess að sækja á körfuna. Þess í stað gaf hann boltann á Rui Hachimura sem setti niður flautukörfu til að vinna leikinn, 123-120. LEBRON SACRIFICED HIS 10-PT STREAK FOR THE GAME WINNER 🤯😱O.M.G. pic.twitter.com/g3qpmCVjW9— Bleacher Report (@BleacherReport) December 5, 2025 James hótaði því að enda ótrúlega hrinu sína í síðustu viku þegar hann skoraði aðeins tíu stig en hún er nú á enda. Síðast skoraði hann undir tíu stig í leik 6. janúar 2007, fyrir 6.908 dögum síðan. Fun Fact: LeBron James has more Finals appearances (10) than games with single-digit points (9). pic.twitter.com/ne8fLEgo9Y— StatMuse (@statmuse) December 5, 2025 Leikirnir þar sem James hefur skorað færri en tíu stig á sínum ferli í deildinni eru níu talsins, en hann hefur oftar farið í úrslitaeinvígi deildarinnar (10 sinnum) heldur en skorað svo fá stig í leik. Eftir sigur næturinnar hafa Lakers unnið 16 leiki en tapað fimm á leiktíðinni. Liðið situr í öðru sæti Vesturdeildarinnar, á eftir Oklahoma City Thunder sem hefur farið frábærlega af stað, unnið 21 af 22 leikjum sínum.
NBA Mest lesið Kaup Messi á spænsku félagi staðfest Fótbolti Haukar halda sigurgöngunni áfram Handbolti Skoraði sitt fyrsta mark í Meistaradeildinni Fótbolti Verðlaunafé fyrir karla og konur í tennis verði það sama Sport Uppgjörið: Fram - Afturelding 24-42 | Niðurlæging í Úlfarsárdal Handbolti Óttast aðra martröð í boði íslenska tannlæknisins Fótbolti Útskýrir hvers vegna afsökunarbeiðnin fór á samfélagsmiðla Formúla 1 Skellur fyrir Arsenal og Grikkland Fótbolti Danmörk - Portúgal 2-4 | Portúgal vann þrátt fyrir fjarveru Ronaldo Fótbolti KA með sannfærandi sigur á Eyjamönnum Handbolti Fleiri fréttir Uppgjörið: Valur - Njarðvík 77-64| Valur skellti Íslandsmeisturunum Haukar létu Fjölni bíða eftir fyrstu stigum tímabilsins Sigurganga Tindastóls í Evrópu heldur áfram Setti silfurliðið í sjötta sæti: Nýr þjálfari og þynnri hópur „Ég hef miklar áhyggjur af Valsstelpunum“ „Þurfum að bæta varnarleikinn umtalsvert“ „Baráttan góð en margt sem við þurfum að gera betur“ Grindavík hóf tímabilið á stórsigri Uppgjörið: KR - Stjarnan 94-87 | KR-ingar höfðu betur í sveiflukenndum leik Grænn Rúnar dró Grindavík Meiri pressa á sterkara KR-liði Lebron talaði hreint út Tröllvaxinn Tryggvi hóf tímabilið af krafti Tindastóll með fullt hús stiga í Evrópu eftir spennutrylli Uppgjörið: Njarðvík - Keflavík 83-78| Njarðvíkingar eru meistarar meistaranna Njarðvík spáð toppsætinu og nýliðarnir verma botninn Martin frábær í sigurleik Stólarnir unnu fyrsta leik sannfærandi Martin byrjar nýtt tímabil eins og hann endaði síðasta Kjartan snýr aftur á Álftanes: „Baldur bara bað mig um að koma“ Beinið brotnaði í tvennt og Ólafur fer varlega Losa Leonard eftir refsinguna Bandaríkin unnu fimmta heimsmeistaratitilinn í röð Bandaríkin og Frakkland mætast í úrslitum heimsmeistaramótsins Pargo verður áfram hjá Grindavík Þrjár Evrópuþjóðir í undanúrslitum Stærsta körfuboltakona heims gnæfir yfir mótherja sína Lakers á undan Bulls að reisa styttu af Phil Jackson Falko farinn frá ÍR Hætti er liðið sótti rússneskan leikmann Sjá meira