Handtekinn á Heathrow eftir árás með piparúða Agnar Már Másson skrifar 7. desember 2025 13:47 Af Heathrow-flugvelli. Getty Einn hefur verið handtekinn grunaður um að ráðast á hóp fólks með piparúða á Heathrow-flugvelli í Lundúnum. Fleiri árásarmanna er enn leitað og mikill fjöldi viðbragðsaðilar er á vettvangi. Hið minnsta fimm voru fluttir á sjúkrahús.
Vopnaðir lögreglumenn handtóku mann í Lundúnum í dag þar sem hann er talinn hafa verið í hópi manna sem úðuðu ertandi efni í fólksfjölda á bílastæði við Heathrow-flugvöll klukkan átta í morgun. Þetta kemur fram í yfirlýsingu sem lögreglan í Lundúnum gaf út klukkan 10 að íslenskum tíma. „Fjöldi fólks var úðaður með því sem við teljum vera piparúða,“ segir í yfirlýsingu lögreglu. Árásin átti sér á bílastæði við flugstöð 3.Getty Maðurinn sem tekinn var höndum er grunaður um líkamsárás að sögn lögreglu. Leit stendur enn yfir að hinum sem tóku þátt í árásinni, sem átti sér stað í bílastæðahúsi við flugstöð 3 á Heathrow. Fimm hið minnsta voru fluttir á sjúkrahús en enginn er talinn í lífshættu. Sky News hefur eftir lögreglu að atvikið tengist rifrildum sem hafi farið úr böndunum milli hóps af fólki sem þekktist. BBC hefur eftir vegfarandanum Tom Bate að hann hafi fundið fyrir sviða í hálsinum á sér. „Ég var við flugstöð þrjú að bíða eftir fari til að komast að bílastæðaskúrnum ásamt kannski 50 manns þegar ég sá unga svartklædda menn þjóta í gegnum mannfjöldann,“ er haft eftir Bate. „Um leið og þeir voru farnir fór fólk að hósta, og svo fór ég að hósta. Ég fann fyrir sviða aftarlega í hálsinum á mér,“ bætir hann við. Sendu okkur fréttaskot.
Bretland England Fréttir af flugi Mest lesið Aukafundur borgarfulltrúa: Tugir stöðugilda í nýrri hrinu uppsagna og niðurskurðar Innlent Fækka um rúmlega sjötíu stöðugildi Innlent Gefur meirihlutanum falleinkunn Innlent Sjötíu ákærðir fyrir svíkja fé út úr Landsbankanum Innlent Ákærður fyrir að drepa tvo af gáleysi Innlent Bein útsending: Hildur svarar fyrir uppsagnir Innlent Segir Íslendinga á tímamótum og verða að bregðast við Innlent Nota rústamyndavél við leit að Lúðvík Innlent „Ljóst að þetta snýst um rekstur borgarinnar“ Innlent Markmið að kanna aðstæður en ekki björgun Innlent Fleiri fréttir Efins um „einkaframtak Norðmanna og Finna“ Tveir ákærðir vegna uppákomu við bandaríska herstöð á Englandi Ákæra Comey enn eina ferðina Stubb og Støre ræddu við Pútín Fóðruðu loftslagsvá aðeins minna en metárið á undan Kjörstaðir opnir í Ísrael Óljóst hver mun leiða ríkisstjórn Stúdenta í Serbíu Trump segir svindlað í brasilísku kosningunum Kosningar í Ísrael: Arabaflokkarnir gætu ráðið úrslitum Biskupar sjá eftir bænastund með Trump Fundu 31 byssu, Hitler-brjóstmynd og danskan fána Áhrifavaldar sektaðir fyrir að auglýsa veðmál Stór hluti Oxford Street orðinn göngugata Sagðir vilja fá Orbán til að stýra Sameinuðu þjóðunum Áfall fyrir Donald Trump og Vladimír Pútín Tókst ekki moða neitt úr miðjunni Fundu auðgað úran í dánarbúi Óvæntur sigur Lula en Bolsonaro vill ógilda úrslitin „Noregur sökkar“ Vučić játar ósigur Stúdentahreyfing freistar að velta þaulsetnum Vučić Leikur á hnífsegg í Brasilíu Machado snýr heim eftir nær árs útlegð Hinn grunaði með geðklofa og fluttur á geðdeild Stefna Anthropic fyrir brot á höfundarrétti Presley Loka Vesturbakkanum á kjördag Ísraela Serbar ganga til skyndikosninga Baráttan um Brasilíu Sleit sambandi við föður sinn í ljósi ásakana Nóg sé komið af Trump Sjá meira