Táningur brenndi sögufræga stúku Sindri Sverrisson skrifar 11. desember 2025 17:44 Svona lítur stúkan út eftir brunann. Eins og sjá má urðu einnig skemmdir á gervigrasi vallarins. FC Haka Eitt sigursælasta félag finnskrar knattspyrnu, FC Haka, hefur ekki átt sjö dagana sæla undanfarið. Eftir fall úr úrvalsdeildinni bættist við að stúka á heimavelli liðsins, sem staðið hafði í næstum heila öld, brann til grunna.
Þrír táningar, allir undir 15 ára aldri, voru viðstaddir þegar eldur braust í 400 manna stúku á leikvanginum sem reistur var árið 1934. Einn þeirra hefur nú viðurkennt að hafa orðið valdur að brunanum með því að kveikja í hlut og er stúkan gjöreyðilögð sem og hluti af gervigrasi vallarins. Heimavöllur FC Haka er í Valkeakoski, um 150 kílómetra norður af Helsinki, og varð bruninn á sunnudaginn. Mikil og harkaleg viðbrögð urðu á samfélagsmiðlum og hvatti lögregla fólk til að sýna aðgát. Marko Laaksonen, formaður FC Haka, segir að kostnaðurinn vegna brunans hafi ekki verið reiknaður út en verði umtalsverður. „Við þurftum svo sannarlega ekki á þessu að halda. Við höfum fengið mikinn stuðning frá fólki og munum þurfa hann áfram í framtíðinni,“ sagði Laaksonen. FC Haka hefur orðið finnskur meistari níu sinnum og unnið tólf bikarmeistaratitla. Eins og fyrr segir féll liðið hins vegar í október, úr úrvalsdeildinni.
Mest lesið „Á stuttum tíma eru mínir nánustu vinir farnir“ Íslenski boltinn Sjáðu slagsmálin í Síkinu Körfubolti „Á meðan er hann að sofa hjá Ólympíufara í sundi“ Sport Missti af leik með KR vegna herskyldu Körfubolti Emil Atlason á leið í Fram Íslenski boltinn „Ég hefði frekar kýlt hana í andlitið“ Körfubolti „Magnús er þjálfari Aftureldingar og verður það áfram“ Íslenski boltinn „Jóla-Paul er á leiðinni og einhver verður rotaður“ Sport Hópurinn sem fer til Rúmeníu á EM Handbolti Ældi blóði, braut rifbein, fór á spítala og svo aftur inn á völlinn Sport Fleiri fréttir Hætta við áform um Afríkukeppnina í fótbolta Iraola: Því fleiri leiki sem við vinnum, því betri verðum við Hópurinn vilji hafa Carrick áfram Nik Chamberlain rekinn frá Kristianstad „Magnús er þjálfari Aftureldingar og verður það áfram“ Grealish í agabanni hjá Everton Emil Atlason á leið í Fram Áfrýjun Arsenal á rauða spjaldi Dowman hafnað Israel frá Fram „Á stuttum tíma eru mínir nánustu vinir farnir“ „Enski boltinn er annar heimur“ Nýr heimavöllur í Milan mun koma í stað San Siro „Mér þætti það skrýtið ef að allir kölluðu mig Sir“ FIFA hagnaðist um 620 milljarða á miðum á HM-leiki Cristiano Ronaldo með þrennu Víkingar láta Einar Guðna fara Landsliðsmaður í frí hjá félagi sínu vegna persónulegra ástæðna Hallgrímur kveður KA „Ég þarf ekki fullvissu frá neinum“ Viktor Bjarki var í byrjunarliði FCK í öruggum sigri Heimir ráðinn til ÍA og kostaði nokkrar milljónir Var klár í samkeppnina við Ingvar „Eina liðið sem ég vildi ekki“ Flauta Péturs á hilluna Verða án Sesko fram í janúar Engin uppalin spilaði með Fram „Guðjohnsen er stórt nafn í fótboltanum“ „Ég hef sjaldan, ef nokkurn tímann, kynnst öðru eins félagi og Víkingi“ Máttu ekki spyrja Haaland út í dóminn og hættu við viðtalið Sonur Wayne Rooney með fernu fyrir átján ára liðið Sjá meira