Sápan trolluð: „Þetta er þessi klikkhaus með röddina“ Óskar Ófeigur Jónsson skrifar 17. desember 2025 07:43 Það var gaman hjá Stefáni Árna og Alberti þegar leikarinn Hákon Jóhannesson mætti í VARsjána. Sýn Sport Leikarinn Hákon Jóhannesson var gestur Stefáns Árna Pálssonar og Alberts Brynjars Ingasonar í nýjasta þættinum af VARsjánni og þá var notað tækifæri til að rifja upp gamalt viðtal sem Stefán Pálsson tók við Hákon.
Stefán Árni sýndi þetta viðtal sem hann tók við Hákon á leik Vals og Víkings í fyrstu umferð Bestu deildarinnar sumarið 2019. „Þetta var mín frumraun í fjölmiðlum. Heiður að fá að deila henni með þér á sínum tíma. Þetta var árið 2019 og þetta eru orðin einhver ár síðan,“ sagði Hákon sposkur. „Eigum við að segja að þú hafir trollað Stebba þarna,“ skaut Albert Brynjar Ingason inn í. Hittumst sex dögum seinna „Mjög því ég þekkti manninn ekki. Hann var ekki orðinn einn besti og þekktasti leikari landsins þarna. Síðan fer ég að vinna við Eurovision í Ísrael. Við hittumst þar svona sex dögum seinna,“ sagði Stefán. Klippa: „Ó nei, þetta er gæinn sem tók viðtalið við mig“ „Ég horfi bara á þennan gaur: Þetta er þessi klikkhaus með röddina,“ sagði Stefán. „Ég var smá þegar ég sá þig þar: Ó, nei, þetta er gæinn sem tók viðtalið við mig,“ sagði Hákon. Albert fékk að hlusta aftur á brot úr viðtalinu og var strax búinn að finna hvern þessi rödd minnti hann á. Eins og ég sé að hlusta á Óla Jó „Áður hann kemur í mynd þá finnst mér bara eins og ég sé að hlusta á Óla Jó að vera að gera upp leikinn,“ sagði Albert. „Ég er ekki að ljúga þegar ég segi ykkur að ég hef heyrt þetta áður,“ sagði Hákon. „Það er mjög gaman að rifja þetta upp því maður er bara að taka viðtal við ungan mann með flotta derhúfu, flottan til fara, og maður býst bara við: Ég er bara spenntur fyrir leiknum. Svo kemur þetta í andlitið á manni. Ég vissi ekki neitt hvernig ég ætti að bregðast við,“ sagði Stefán Árni. Hér fyrir ofan má sjá viðtalið og viðbrögð strákanna við því.
Enski boltinn VARsjáin Mest lesið Myndaveisla: Tilfinningarík stund þegar bikarinn fór á loft á Hlíðarenda Handbolti Grét í sturtunni og vissi að hann þyrfti að hætta aðeins þrítugur Fótbolti Íslandsmeistari gegn uppeldisfélaginu í síðasta leiknum á ferlinum Handbolti Eiginkona þjálfarans segir Burnley bera ábyrgð í andlátinu Fótbolti „Við áttum þetta skilið“ Handbolti Gidsel getur mölbrotið markamet Hansen Handbolti Valverde segist bara hafa rekið höfuðið í borð Fótbolti Glasner gæti kvatt Palace með titli en Rayo Vallecano stendur í veginum Fótbolti Shakira gefur út nýtt HM lag Fótbolti Yfirlýsing ÍBV: Hafdís beðin afsökunar og maðurinn í bann Handbolti Fleiri fréttir Carrick segist bíða rólegur Liverpool hættir við verðhækkanir City varð Englandsmeistari heima í sófanum Sagður þjást en vill enga vorkunn Sér góðar fréttir fyrir fótboltann í heild sinni með afhroði Chelsea Henry vill að Lewis-Skelly byrji gegn Atlético Madrid Flottustu hjólhestaspyrnumörk í sögu ensku úrvalsdeildarinnar Fékk svakalegan skurð gegn Chelsea og stjórinn vonast eftir kraftaverki Sjáðu mörkin: Sex marka rússíbanareið sem gæti kostað City titilinn Titilvonir City tóku á sig skell í kvöld Óhugnanlegt atvik á Brúnni Forest skellti Chelsea Gætu þurft að tapa til að komast í Meistaradeild Evrópu Segir að óásættanlegt tímabil Liverpool megi ekki endurtaka sig Brjálaður út í eigin leikmenn: „Hafa sóað heilu ári af mínum ferli“ Aron búinn að skipta um skoðun og vill Carrick áfram Slot við Hjörvar: „Ég held að öllum hafi liðið þannig“ Mjög brugðið við fréttirnar af Ferguson Sjáðu sigurmark Mainoo og Tottenham stökkva upp úr fallsæti „Svona hefur þetta verið allt mitt líf“ Tottenham kom sér upp úr fallsæti Ferguson fluttur á spítala Rúlluðu Palace upp og komnir í Evrópusæti Mainoo tryggði sigur eftir að United gaf tvö mörk Isak aftur meiddur Sjáðu öll mörkin úr enska boltanum: Gyökeres og Saka í banastuði fyrir Skytturnar Hélt á lofti og lofaði Newcastle að Sádarnir myndu ekki selja Benóný lauk deildinni á marki og fer í umspilið Skytturnar með sex stiga forystu á toppnum Tap West Ham gefur Tottenham von Sjá meira