Eva Björk með stórleik í fyrsta sigri Stjörnunnar Ingvi Þór Sæmundsson skrifar 20. desember 2025 13:37 Eva Björk Davíðsdóttir kom með beinum hætti að 21 marki gegn Fram. vísir/hulda margrét Eftir að hafa aðeins fengið eitt stig í fyrstu tíu leikjum sínum í Olís-deild kvenna vann Stjarnan loks sinn fyrsta leik á tímabilinu þegar liðið fékk Fram í heimsókn í dag. Lokatölur 34-31, Garðbæingum í vil.
Stjarnan er áfram á botni deildarinnar en nú með þrjú stig, einu stigi á eftir Selfossi sem er í sætinu fyrir ofan. Fram, sem hafði unnið þrjá leiki í röð fyrir viðureign dagsins, er í 4. sætinu með ellefu stig. Eva Björk Davíðsdóttir fór mikinn í leiknum í Mýrinni í dag, skoraði þrettán mörk og gaf átta stoðsendingar fyrir heimakonur. Natasja Hammer skoraði sex mörk, Inga María Reynisdóttir fimm og Hrafnhildur Anna Þorleifsdóttir varði sextán skot í marki Stjörnunnar (34 prósent). Leikurinn var í járnum allan tímann. Stjarnan leiddi með einu marki í hálfleik, 14-13, og hélt forskotinu framan af seinni hálfleik. Fram sneri dæminu sér í vil um miðbik hans og komst nokkrum sinnum tveimur mörkum yfir. Stjarnan breytti stöðunni úr 24-26 í 27-26 en Fram jafnaði í 27-27 og liðin héldust svo í hendur næstu mínútur. Garðbæingar reyndust hins vegar sterkari á svellinu á lokamínútunum, skoruðu fimm af síðustu sjö mörkum leiksins og lönduðu sigri, 34-31. Harpa María Friðgeirsdóttir og Ásdís Guðmundsdóttir skoruðu sex mörk hvor fyrir Fram og Valgerður Arnalds fimm.
Olís-deild kvenna Stjarnan Fram Mest lesið Brjóta lög fótboltans með sýningunni í hálfleik Fótbolti Segir að þarna hafi Haaland skorað sjálfsmark Fótbolti Bónorð strax eftir leik í Garðabæ Íslenski boltinn Carragher vill að enska liðið nýti sér Messi Enski boltinn „Er dómarinn á því getustigi sem þarf í undanúrslitum HM?“ Fótbolti Tvenna Daníels tryggði Víkingi meira en hundrað milljónir Fótbolti „Dapurlegt tímabil í sögu ríkis okkar“ Fótbolti „Hann var farinn að spyrja hvenær við ætluðum að flytja til Íslands“ Íslenski boltinn Sjáðu Víkinga fagna lokaflautinu og sæti í næstu umferð Fótbolti Kæra forseta FIFA til Alþjóðaólympíunefndarinnar Fótbolti Fleiri fréttir Frábær lokakafli dugði ekki til Sárt tap fyrir Króatíu Hansen leikur í mynd um einelti eftir að hafa sjálfur þurft að þola það Strákarnir áfram í milliriðil á EM „Eitthvað sem maður verður að læra af honum“ Tólf mörk Ágústs en tap gegn meisturunum Upplifun að koma á svæðið og skrifa undir Frábær byrjun hjá ungu strákunum okkar Bjarki Már til franska stórveldisins Sjokkið breyttist í ævintýri Ásthildur Jóna með tíu mörk á HM og Ísland í undanúrslit Forsetabikarsins Segja Breka á leiðinni til Benfica Børge Lund tekur við stórliði Kiel Díana tekur dóttur sína með sér yfir í Fram Fjórar heiðraðar sem spiluðu fyrsta landsleikinn fyrir sjötíu árum Einar hjá Fram næstu þrjú árin Miðar í sölu á HM í handbolta í dag Þrír íslenskir landsliðsmenn tilnefndir til virtra verðlauna Viktor Gísli vann Meistaradeildina með Barcelona Magdeburg fékk bronsið Viktor Gísli í úrslitaleik Meistaradeildarinnar Magdeburg tapaði í undanúrslitum Strákarnir okkar stálheppnir með riðil á HM Benedikt verður lærisveinn Arnórs Engin Ungverjagrýla á HM Orri Freyr hetjan og Sporting bikarmeistari Valskonur styrkja sig Markakóngurinn endaði tímabilið með látum Lið Blæs bjargaði lærisveinum Rúnars „Hann breytti kúlturnum“ Sjá meira