ÍR-ingar bæta við sig reyndum og hittnum Króata Óskar Ófeigur Jónsson skrifar 22. desember 2025 07:46 Emilio Banić er svaka skytta og hefur líka sýnt það í stórum leikjum á ferli sínum. @bbc.nord.dragonz ÍR-ingar voru ekki lengi að bæta við sig leikmanni í jólafríinu. Króatíski körfuboltamaðurinn Emilio Banić hefur skrifað undir samning við ÍR og mun spila með Breiðhyltingum í Bónus-deild karla í körfubolta á nýju ári.
Emilio er 31 árs gamall, 196 sentímetrar á hæð og leikur stöðu framherja. Emilio kemur til ÍR með mikla reynslu úr evrópskum körfubolta og hefur leikið í sterkum deildum víðs vegar um Evrópu. Hann hefur leikið meðal annars í Króatíu, Þýskalandi og Austurríki. Á síðasta tímabili var hann hluti af liði Nord Dragonz sem hafnaði í öðru sæti í austurrísku úrvalsdeildinni, þar sem hann var mikilvægur þáttur í sóknarleik liðsins. Í úrslitakeppninni í Austurríki sýndi Emilio skotgetu sína utan af velli og var með 52% nýtingu í þriggja stiga skotum, en yfir allt tímabilið var hann með 38% nýtingu fyrir utan þriggja stiga línuna. Þriggja stiga skotin eru einn helsti styrkleiki hans og eitthvað sem ÍR hefur verið að leita eftir í vetur samkvæmt frétt á miðlum ÍR-inga. „Emilio er leikmaður sem passar mjög vel inn í það sem við erum að byggja upp. Hann kemur með mikla reynslu úr sterkum deildum, er yfirvegaður í sókn og hefur sýnt að hann getur hitt stór skot þegar mikið er undir. Við teljum hann styrkja hópinn okkar og erum mjög ánægðir með að fá hann til ÍR,“ segir Borche Ilievski, þjálfari meistaraflokks karla. View this post on Instagram A post shared by ÍR (@irkarfa)
Bónus-deild karla ÍR Mest lesið Segja einn mann hafa séð um að aflétta banni Balogun Fótbolti „Er að fara vinna þennan gullskó og ég er að fara slá markametið“ Íslenski boltinn Goðsögn tekur við eftir vonbrigðin á HM Fótbolti Lárus Orri: „Erum í bullandi fallbaráttu“ Íslenski boltinn Liðin fjögur eftir sem FIFA vildi að gætu mæst í undanúrslitum Fótbolti McGregor entist aðeins í 69 sekúndur Sport Þjálfarinn rekinn eftir hótun leikmanns Fótbolti „Þessi sigur sýnir hvað hópurinn er þéttur“ Fótbolti FIFA: Örflagan sýnir enga snertingu við vírinn Fótbolti Haaland eldri hraunar yfir dómarana Fótbolti Fleiri fréttir Móðir Kinu Rochford syrgir: „Á röngum stað“ Tólfta sæti niðurstaðan eftir tap fyrir Lettum Dregur Aþenu úr keppni og sakar borgina um valdníðslu Tap fyrir Þjóðverjum í skrautlegum leik Kinu Rochford sagður myrtur Annar stórsigur strákanna á EM Grindvíkingar halda sænsku landsliðskonunni Stelpurnar skelltu Svíum og tilheyra áfram elítunni Hélt hann yrði frá í sex mánuði en byrjar strax í fyrsta leik Liðin senda LeBron James raddskilaboð og reyna að selja sig Bara risaleikir milli jóla og nýárs Frank Aron Booker yfirgefur Val og semur við Álftanes Þungt tap gegn Tyrkjum og Svíar bíða Berglind næststigahæst á EM 16 ára Berglind mögnuð er Ísland náði sögulegum árangri Elvar snýr aftur til Litháens Jón Axel spilar á Kanaríeyjum Patrick Ewing fékk aftur starf á gólfinu í NBA-deildinni Valsmenn fá til sín stigakóng síðasta tímabils „Maður hefur spilað körfubolta lengi“ „Komið með þessa NBA karla, við erum klárir“ Uppgjör: Bretland – Ísland 86-88 | Enn einn dramatískur sigur Íslands og HM draumurinn lifir Íslensku stelpurnar unnu stórkostlegan sigur á Serbum Sixers að blanda sér í baráttuna um LeBron James Prófa nýja körfuboltareglu með einu vítaskoti „Ég er Grindvíkingur en vill bara svo til að ég fór í Keflavík“ Elvar: „Við vorum flatari og skrefinu eftir á“ Uppgjör: Ísland - Ítalía 83-102 | Strákarnir réðu ekki við skotsýningu Ítala Jaylen Brown til Philadelphia 76ers Fengið morðhótanir eftir viðskiptin við Caitlin Clark Sjá meira