„Þetta er rebbabragð sem ég vissi nú reyndar ekki að hann kynni“ Sindri Sverrisson skrifar 30. desember 2025 15:45 Rayan Cherki skoraði og lagði upp fyrir Manchester City í sigrinum gegn Nottingham Forest um helgina. Getty/Clive Mason Manchester City skoraði sigurmark gegn Nottingham Forest sem virtist koma beint af æfingasvæðinu. Í Sunnudagsmessunni fékk City-liðið hrós og menn voru ánægðir með að dómari leiksins skyldi ekki falla fyrir „rebbabragði“ Morgan Gibbs-White.
Sigurmarkið kom úr hornspyrnu yfir á fjærstöng þar sem Josko Gvardiol skallaði boltann niður og út í teiginn, á Rayan Cherki sem hafði gott svæði og þrumaði í markið. „Þetta er klárlega beint af æfingasvæðinu. Þetta er teiknað upp og mér finnst maður sjá það á því hvað allir verða glaðir. Það er ekki til betri tilfinning hjá þjálfurum og leikmönnum en þegar eitthvað sem er svo leiðinlegt að æfa [gengur svona upp],“ sagði Kjartan Henry Finnbogason í Messunni. Klippa: Messan - Sigurmarkið hjá City Kjartan benti líka á að þó að Sean Dyche, stjóri Forest, hefði kvartað yfir því að markið fengi að standa þá hefði ekki verið nein ástæða til þess að dæma aukaspyrnu. „Forest-menn voru mjög ósáttir með að það væri brotið á Gibbs-White, og það leit þannig út. En gamlir refir eins og ég… ég sé alveg hvað Gibbs er að gera. Hann tekur gömlu góðu klemmuna og hendir sér niður, og lætur þannig líta út fyrir að það sé verið að hrinda honum eða toga hann niður. Þetta er rebbabragð sem ég vissi nú reyndar ekki að hann kynni,“ sagði Kjartan léttur. Með 2-1 sigrinum gegn Forest er City aðeins tveimur stigum á eftir toppliði Arsenal sem tekur á móti Aston Villa í kvöld. City á næst leik við Sunderland á nýársdag.
Enski boltinn Mest lesið „Mun ekki kvarta næst þegar ég borga skatt“ Sport „Vanvirðing við kvennaboltann á Íslandi“ Íslenski boltinn Draumabyrjun Alberts sem reyndist hetja Lazio Fótbolti Joey Barton mun þurfa að dúsa áfram í fangelsi Enski boltinn Árni Gautur heiðraður af ÍA Íslenski boltinn Komst við er hann talaði um Schumacher: „Ég sakna hans“ Formúla 1 Elche - Real Sociedad | Orri í eldlínunni Fótbolti Uppgjörið: Stjarnan - Víkingur R. 1-2 | Spyrntu sér frá botninum Íslenski boltinn Tveir nýliðar í landsliðshópnum Handbolti Dagskráin í dag: Meistaradeildin hefst og Hákon er þar í eldlínunni Fótbolti Fleiri fréttir Joey Barton mun þurfa að dúsa áfram í fangelsi Raya lengi að taka sig til og Gabriel bestur í glímu Sjáðu sigurmark Ødegaard og glæsilegt jöfnunarmark Maitland-Niles Lögreglan rannsakar átök milli stuðningsmanns og leikmanns Versti stjóri Bretlandseyja? Geggjað mark Ödegaard skipti sköpum Ótrúlegt jöfnunarmark Everton undir blálokin Aston Villa jafnaði 56 ára gamalt met Haaland sló met Agüero Hull hélt hreinu og ekkert mark komið hjá Villa Arbeloa í brasi City marði Coventry Steindautt er Tottenham náði í fyrsta stigið Ramsey bjargaði stigi Fallin vonarstjarna Liverpool dæmd en sleppur við fangelsi Stólpagrín gert að leikmanni Ipswich Yfirgefur Liverpool fyrir Sádi-Arabíu Segist aldrei hafa efast um Gakpo Sjáðu mörk Isaks í fyrsta leik Barcola Isak heitur í sigri Liverpool og strax búinn að jafna síðustu leiktíð Carrick himinlifandi eftir kaup sumarsins Mætir gömlu félögunum í Manchester United í endurkomunni til Englands Fékk bombu í andlitið en meiddist á hné Tróð inn lagatitlum og enginn tók eftir því Sér enn eftir að hafa hafnað tækifærinu „Gangandi martröð“ Stórir póstar utan Meistaradeildarhóps Liverpool Skaðar orðspor dómara: Lék sér að því að flauta ekki upp á grín Tielemans tók vítið með Bruno Martinelli seldur til Sádi-Arabíu Sjá meira