Ríkisstjórnin sek um ósanngjarna mismunun Eiður Þór Árnason skrifar 30. desember 2025 18:37 Bergur Þorkelsson, formaður Sjómannafélag Íslands. Vísir/Vilhelm Sjómenn eru mótfallnir þeirri ákvörðun ríkisstjórnarinnar að takmarka heimild til samsköttunar hjóna og sambýlisfólks. Breytingin er sögð leiða til aukinnar skattheimtu á sjómenn og fjölskyldur þeirra. Þetta ályktaði aðalfundur Sjómannafélags Íslands í gær. Stjórnvöld segja breytinguna aðallega hafa áhrif á tekjuhærri heimili.
Á næsta ári fellur út heimild hjóna og sambúðaraðila til að samnýta annað og þriðja tekjuskattþrepið, í þeim tilvikum þar sem annar aðilinn er með tekjuskattsstofn í þriðja þrepi en hinn ekki. Til þriðja tekjuskattsþrepsins teljast tekjur umfram 1.398.450 krónur á mánuði. „Breyting þessi mun hafa meiri áhrif á sjómenn en aðra hópa launþega og felur þannig í sér ósanngjarna mismunun milli launþegahópa,“ segir í ályktun Sjómannafélags Íslands. „Með þessari breytingu er ekkert tillit tekið til sérstöðu starfa sjómanna og fjölskylduaðstæðna þeirra þar sem það er sjómaðurinn í flestum tilvikum sem aflar meginhluta launatekna á heimilinu, enda hafa eiginkonur og sambýliskonur þeirra ekki sömu möguleika til öflunar launatekna sökum fjarveru sjómanna sökum vinnu sinnar,“ segir þar jafnframt. Skoraði aðalfundurinn því á stjórnvöld að koma til móts við sjómenn og heimila áfram samsköttun þeirra og maka. Sjómannadeild Framsýnar, stéttarfélags Þingeyinga, ályktaði einnig gegn breytingunni á aðalfundi sínum í gær þar sem áformunum var harðlega mótmælt. Samsköttun sögð mest nýtast tekjuhærri heimilum Að sögn fjármála- og efnahagsráðuneytisins eykur samsköttun hjóna og sambúðarfólks í langflestum tilfellum ráðstöfunartekjur tekjuhærri heimila og hefur áhrif á innan við fimm prósent skattgreiðenda. Þá stuðli ráðstöfunin að kynjamisrétti. Jafnframt sagði í minnisblaði ráðuneytisins að 95% þeirra sem nýttu sér samsköttun væru í efstu tekjutíund og af þeim væri um að ræða karla í 82% tilvika. Axel Hall, lektor við viðskipta- og hagfræðideild Háskólans í Reykjavík og formaður sérfræðihóps um endurskoðun á tekjuskattskerfinu í aðdraganda lífskjarasamninga árið 2019, sagði í vor að sambærileg ívilnun tíðkaðist almennt ekki annars staðar á Norðurlöndum. „Í dag getur sambúðarfólk flutt á milli persónuafslátt annars vegar og síðan ef annar makinn er í efsta [skatt]þrepi og hinn makinn fullnýtir ekki næst efsta þrepið þá má tekjuhærri aðilinn nýta helming af ónýttum hluta næstefsta þrepsins.“ Ívilnunin hafi mest nýst tekjuháum karlmönnum yfir fertugu og renni ekki í ríkum mæli til barnafjölskyldna, að sögn Axels. Þingmenn stjórnarandstöðunnar hafa gagnrýnt breytinguna á samsköttun harðlega og sagt hana fela í sér skattahækkun á heimili landsins.
Sjávarútvegur Ríkisstjórn Kristrúnar Frostadóttur Kjaramál Skattar, tollar og gjöld Tengdar fréttir Sjómenn mótmæla breytingum á samsköttun hjóna Aðalfundur Sjómannadeildar Framsýnar mótmælir harðlega áformum stjórnvalda um að falla frá reglum og lögum um samsköttun hjóna og sambúðarfólks. 30. desember 2025 08:24 Skattleysismörk barna yngri en 16 ára hækka Skattleysismörk barna yngri en 16 ára hækka og hjón og sambúðarfólk munu ekki lengur geta samnýtt annað og þriðja skattþrepið. Gerðar eru nokkrar breytingar á staðgreiðslu einstaklinga þessi áramótin. 22. desember 2025 13:50 Mest lesið Afgerandi niðurstaða um að slíta kjarasamningum Innlent Portúgalsfarinn á bak við lás og slá Innlent Ætlar að borga fyrir umdeildar auglýsingar úr eigin sjóðum Erlent Idol-keppandi í lífstíðarfangelsi fyrir að skjóta eiginkonu sína Erlent Hútar sagðir hörfa frá mynni Rauðahafs Erlent Brotist inn í fjóra bíla í þremur hverfum Innlent Íslenskir karlmenn flytji inn konur og haldi þeim sem kynlífsþrælum Innlent Fengu heimild til þess að segja upp kjarasamningum Innlent Segir Aþenu í andarslitrunum Innlent Aldraður læknir sparkaði í flugfreyju Innlent Fleiri fréttir Brotist inn í fjóra bíla í þremur hverfum Afgerandi niðurstaða um að slíta kjarasamningum Auglýsingatekjur Rúv undir fyrirhuguðu þaki þrjú ár í röð Fengu heimild til þess að segja upp kjarasamningum Öflugur jarðskjálfti í Bárðarbungu Meiri líkur en minni á að kjarasamningum verði sagt upp Rubio lentur á Íslandi Hafna ásökunum um svik og benda á stjórnvöld Portúgalsfarinn á bak við lás og slá Opnuðu Arnarnesveg að hluta Tvöföld árekstrarhætta þegar flugumferðarstjóri missti yfirsýn Meirihlutinn sprakk aftur vegna vallarmála Segir Aþenu í andarslitrunum Rubio spenntur að hitta Þorgerði Skakkur á stolnum strætó Tugir starfsmanna Reykjavíkur veiktust Trúnaðarbrestur milli flokka og innan flokks Tuttugu milljónir fyrir rafmagn hjólhýsa SA hafi skilað auðu og telur að samningum verði sagt upp Einn í haldi eftir handtöku í flugstöðinni Ekki fleiri tilkynnt kynferðisbrot í fimm ár Þessi eru tilnefnd til menntaverðlauna Tíu manns veitt sálgæsla eftir banaslysið Ögurstund í kjarasamningamálum „Ég geri ekki ráð fyrir því að við munum halda útgáfupartí í Valhöll“ Aldraður læknir sparkaði í flugfreyju Vill breyta umdeildum gatnamótum „Við erum ekki að gera þetta til að gleðja fólk í Brussel“ Slitu samstarfinu vegna trúnaðarbrests „sem ekki var hægt að líta framhjá“ Íslenskir karlmenn flytji inn konur og haldi þeim sem kynlífsþrælum Sjá meira
Sjómenn mótmæla breytingum á samsköttun hjóna Aðalfundur Sjómannadeildar Framsýnar mótmælir harðlega áformum stjórnvalda um að falla frá reglum og lögum um samsköttun hjóna og sambúðarfólks. 30. desember 2025 08:24
Skattleysismörk barna yngri en 16 ára hækka Skattleysismörk barna yngri en 16 ára hækka og hjón og sambúðarfólk munu ekki lengur geta samnýtt annað og þriðja skattþrepið. Gerðar eru nokkrar breytingar á staðgreiðslu einstaklinga þessi áramótin. 22. desember 2025 13:50