FH-ingurinn mættur til Hoffenheim Sindri Sverrisson skrifar 5. janúar 2026 10:03 Cole Campbell lék fyrir U17-landslið Íslands en ákvað svo að spila frekar fyrir Bandaríkin og er hér í bandaríska landsliðsbúningnum. Getty/Srdjan Stevanovic Hinn 19 ára gamli Cole Campbell, sonur landsliðskonunnar fyrrverandi Rakelar Ögmundsdóttur, hefur verið lánaður frá Dortmund til Hoffenheim og verður því áfram í efstu deild þýska fótboltans.
Hoffenheim fær Cole að láni út yfirstandandi leiktíð en á möguleika á að kaupa hann frá Dortmund í sumar. Þessi sóknarsinnaði leikmaður hefur spilað fimm deildarleiki fyrir Dortmund í vetur og er með samning við félagið sem gilda átti til sumarsins 2028. „Cole er mjög hæfileikaríkur kantmaður sem hefur alla burði til að þróast vel og við höfum fylgst náið með honum í nokkurn tíma,“ sagði Andreas Schicker, yfirmaður íþróttamála hjá Hoffenheim, og lýsir Cole jafnframt sem afar hröðum leikmanni sem geti tekið menn á. View this post on Instagram A post shared by TSG Hoffenheim (@tsghoffenheim) Cole hefur verið hjá Dortmund frá árinu 2022 og skrifaði undir fyrsta atvinnumannssamning sinn í júlí 2024. Hann á bandarískan föður og bjó lengst af í Bandaríkjunum en heimsótti Ísland á sumrin og spilaði fyrir yngri flokka FH. Hann flutti svo til landsins og náði að spila staka leiki með bæði FH og Breiðabliki í Bestu deildinni áður en Dortmund fékk hann. Cole er bæði með bandarískan og íslenskan ríkisborgararétt og hefur spilað fyrir yngri landslið beggja þjóða. Hann lék alls sjö leiki fyrir U17-landslið Íslands en valdi svo Bandaríkin fram yfir Ísland árið 2024 og hefur spilað fyrir U20- og U23-liðið.
Þýski boltinn FH Mest lesið Vaktin: Lokadagur félagsskiptagluggans Fótbolti KR - Víkingur 1-1| Hjartahnoð Arnórs Ingva á síðustu stundu Íslenski boltinn Framkvæmdastjórinn þrífur upp skemmdarverkin Íslenski boltinn Skemmdarverk unnin á KR-vellinum Íslenski boltinn „Ef hann gerir það verða mörg félög í vandræðum“ Enski boltinn Söngur og gleði hjá KR-ingum fyrir leik Íslenski boltinn Ummæli Arons ekki svaraverð: „Ekki mikið vit í því sem hann er búinn að vera segja“ Íslenski boltinn Ekki eitthvað sem Víkingur stendur fyrir Íslenski boltinn McTominay í hjartaaðgerð Fótbolti Ensku félögin með bókhaldsbrellur Enski boltinn Fleiri fréttir „Gæti óskað þeim til hamingju með titilinn núna“ Mörkin úr stórslag KR og Víkings í lýsingu Gumma Ben Ndiaye til Manchester City Sveinn Gísli braut bein í toppslagnum KR - Víkingur 1-1| Hjartahnoð Arnórs Ingva á síðustu stundu Albert til Lazio og kaupákvæði fylgir með Lið Salah þjálfaralaust eftir furðulega daga Íslendingalið Brann hlaut þungan skell Man ekki eftir Chelsea-liðinu svona lítið með boltann Söngur og gleði hjá KR-ingum fyrir leik City borgar 125 milljónir punda fyrir Enzo Slær Aron markametið í kvöld? McTominay í hjartaaðgerð „Þetta er síðasti séns fyrir KR-inga“ Ekki eitthvað sem Víkingur stendur fyrir Framkvæmdastjórinn þrífur upp skemmdarverkin Mbaye til Aston Villa Vaktin: Lokadagur félagsskiptagluggans Albert lánaður til Lazio Ensku félögin með bókhaldsbrellur Skemmdarverk unnin á KR-vellinum Allt klárt á Meistaravöllum fyrir pallaleikinn í kvöld Arteta vill bæta við hópinn í dag Gata nefnd í höfuð Salah í Tyrklandi „Ef hann gerir það verða mörg félög í vandræðum“ Sjáðu Stjörnuna klára Blika Sveindís skoraði í langþráðum sigri Sanchez á förum frá Chelsea eftir komu Martinez Manchester City ekki enn búið að gefast upp á Enzo Fernandez Kushner tjáir sig formlega um söluna á heimsmeistaramótinu Sjá meira
Ummæli Arons ekki svaraverð: „Ekki mikið vit í því sem hann er búinn að vera segja“ Íslenski boltinn
Ummæli Arons ekki svaraverð: „Ekki mikið vit í því sem hann er búinn að vera segja“ Íslenski boltinn