Áfram kalt og lægðir sækja að landinu Atli Ísleifsson skrifar 6. janúar 2026 07:16 Ísilögð Þjórsá við Þjórsárósa um helgina. Vísir/Vilhelm Hæðarhryggur, sem hefur legið yfir landinu undanfarið, heldur enn velli þó lægðir sæki að. Gera má ráð fyrir fremur hægri norðan- og norðaustanátt og dálitlum éljum fram eftir morgni, en léttskýjuðu á Suður- og Vesturlandi.
Á vef Veðurstofunnar segir að það gangi í norðvestanstrekkingsvind við austurströndina uppúr hádegi, en annars mun hægari austlæg eða breytileg átt. Víða bjartviðri síðdegis, en dálítil él norðaustantil. Allmikið lægðardrag nálgast landið úr suðvestri undir kvöld og hvessir því nokkuð vestantil. Áfram talsvert frost um land allt, tveggja til tólf stiga frost og kaldast inn til landsins.„Á morgun, miðvikudag er útlit fyrir ákveðna austlæga átt með éljum á austanverðu landinu og með suðurströndinni, en annars bjartviðri. Hlýnar nokkuð með suður- og austurströndinni. Hvessir heldur suðaustanlands á fimmtudag og snjóar þar um tíma, en hlýnar heldur í veðri,“ segir í hugleiðingum veðurfræðings. Spákort fyrir klukkan 14.Veðurstofan Veðurhorfur á landinu næstu daga Á miðvikudag: Austan 8-15 m/s, hvassast við suðurströndina. Léttskýjað um vestanvert landið, annars stöku él, en hvessir fer að snjóa suðaustanlands um kvöldið. Frost yfirleitt 0 til 12 stig, minnst syðst. Á fimmtudag: Austan og norðaustan 5-13 m/s, en 13-20 syðst fram eftir degi. Skýjað að mestu og dálítil él austantil og með suðurströndinni, en annars bjart með köflum. Frost 0 til 8 stig, minnst syðst. Á föstudag: Hæg norðlæg eða breytileg átt og snjókoma með köflum, en úrkomulasut að kalla sunnan heiða. Kalt í veðri. Á laugardag: Líklega vaxandi norðaustanátt með snjókomu austantil um kvöldið, en annars dálítil él og áfram kalt í veðri. Á sunnudag: Útlit fyrir stífa norðanátt með slyddu eða snjókomu.
Veður Mest lesið „Hvað eruð þið að biðja mig um og hvers vegna? Hvar ætti ég að hafa dvalið?“ Innlent „Ég var gjörsamlega svo hissa að ég vissi ekki hvert ég ætlaði“ Innlent Bretar og Frakkar ætla að leiða aðgerðir við Hormússund Erlent Miðflokkurinn á Hornafirði segir ásakanirnar fjarri sanni Innlent Leiðir saman týnda hluti og eigendur þeirra Innlent Meirihlutinn fallinn samkvæmt nýrri könnun Innlent Prestur afþakkar „ömurlegan málflutning“ Miðflokksins Innlent Sættir sig ekki við sýknu lögreglumannsins Innlent Sögufrægt og aldursfriðað hús orðið að slysagildru Innlent Hefur áhrif að vera háður umönnunaraðilum Innlent Fleiri fréttir Rólegheitaveður og smá skúrir Víða skúrir en hiti gæti skriðið yfir tólf stig Norðaustan strekkingur og rigning Hæg austlæg átt en skilabakki nálgast Smálægðir á sveimi og hvessir á morgun Hviður þvert á Vesturlandsveg á Kjalarnesi Oftar en ekki viðvörun í gildi í mars Má búast við mikilli úrkomu á Austfjörðum Útlit fyrir vorveður á næstu dögum Minnkandi vindur og stöku él Víða skúrir og hvessir eftir hádegi Allhvass vindur og rigning Önnur lægð nálgast landið Fylgstu með óveðrinu ganga yfir Vaktin: Austanbylur annan í páskum Loka Holtavörðuheiði í hádeginu og um Suðurlandið strax í fyrramálið Viðvaranirnar appelsínugular og hviður yfir 40 metrum á sekúndu Logn í dag á undan storminum á morgun Mæla með að fólk leggi fyrr af stað Gul viðvörun vegna austan stórhríðar annan í páskum Þungfært víða um land Kalt í veðri miðað við árstíma Snjóflóð skammt frá borginni líklega af mannavöldum Þungbúið fyrir norðaustan en heiðskírt víða annars staðar Gular viðvaranir taka gildi í enn eitt skiptið Gular viðvaranir vegna storms í kvöld og á morgun Hæðarhryggur yfir landinu í dag og stormur í nótt Lægð með snjókomu fer hratt yfir landið Snýst í austan og suðaustan í kvöld með snjókomu og slyddu Slydduél og snjókoma í kortunum Sjá meira