Lærisveinn Heimis að finna taktinn Valur Páll Eiríksson skrifar 6. janúar 2026 18:57 Ferguson fagnar ásamt Stephan El Sharaawy í kvöld. Maurizio Lagana/Getty Images Evan Ferguson virðist loks vera að finna fjölina í ítölsku höfuðborginni. Hann skoraði í 2-0 sigri Roma á Þóri Jóhanni Helgasyni og félögum í Lecce í kvöld.
Ferguson er á láni hjá Roma frá Brighton á Englandi en hann hefur ekki átt sjö dagana sæla í Rómarborg. Hann hafði aðeins skorað tvö deildarmörk fyrir leik kvöldsins. Hann er af mörgum talin vonarstjarna Íra, en hefur dalað eftir frábæra spilamennsku með Brighton í ensku úrvalsdeildinni fyrir tveimur árum. Mikil umræða hefur skapast um það hvort Brighton hyggist hreinlega kalla hann heim í janúar en stjórnarmenn hjá Brighton gáfu lítið fyrir slíkt í vikunni. Annað marka Ferguson kom í þarsíðasta leik, í 3-1 sigri á Genoa, en Roma tapaði 1-0 fyrir Atalanta um helgina í kjölfarið. Roma spilaði í búningi í írsku fánalitunum er liðið heimsótti Lecce í kvöld og írska framherjanum virtist líða vel. Ferguson skoraði er hann kom Roma yfir eftir stoðsendingu frá Paulo Dybala. Úkraínski framherjinn Artem Dovbyk skoraði svo seinna mark Roma á 71. mínútu. 2-0 sigur Roma staðreynd og Ferguson kominn með tvö mörk í síðustu þremur eftir að hafa skorað aðeins eitt í tólf leikjum þar á undan. Þórir Jóhann kom inn á sem varamaður í stöðunni 2-0, á 75. mínútu, og spilaði síðasta stundarfjórðunginn á miðsvæði Lecce. Roma er eftir sigurinn með 36 stig í fjórða sæti, þremur frá toppliði Inter, tveimur frá AC Milan og einu á eftir Napoli í því þriðja. Öll þrjú liðin fyrir ofan Roma hafa hins vegar spilað tveimur leikjum færra en höfuðborgararnir. Lecce er með 17 stig í 16. sæti, fimm stigum fyrir ofan fallsæti.
Ítalski boltinn Mest lesið Áhrifavaldar sýna vanvirðingu á risamóti í tennis Sport „Gangandi martröð“ Enski boltinn Sér enn eftir að hafa hafnað tækifærinu Enski boltinn Fólskubrot á Gísla sem var sjálfur rekinn af velli Handbolti Laus úr banni aðeins mánuði eftir að hafa tekið kókaín Sport Tróð inn lagatitlum og enginn tók eftir því Enski boltinn Sjáðu rauða spjaldið sem Gísli fiskaði og fékk svo sjálfur Handbolti „Var ekki langt frá því að tárast“ Handbolti Stórir póstar utan Meistaradeildarhóps Liverpool Enski boltinn Hætti er liðið sótti rússneskan leikmann Körfubolti Fleiri fréttir Carrick himinlifandi eftir kaup sumarsins Mætir gömlu félögunum í Manchester United í endurkomunni til Englands Fékk bombu í andlitið en meiddist á hné Erfitt verkefni FH og Breiðablik til Póllands Tróð inn lagatitlum og enginn tók eftir því Sér enn eftir að hafa hafnað tækifærinu „Gangandi martröð“ Stórir póstar utan Meistaradeildarhóps Liverpool Gætu tekið þátt í meti en fráfall konungsins hefur mikil áhrif Skaðar orðspor dómara: Lék sér að því að flauta ekki upp á grín Nýi Japaninn aðstoðaði Hákon við rán FIFA tekur til varna og sakar UEFA um ófrægingarherferð gegn Infantino Tielemans tók vítið með Bruno Martinelli seldur til Sádi-Arabíu Hver var í flottustu treyjunni? Bestu kaupin í sögu enska boltans Barcola í hóp á morgun Tekur aftur við tveimur mánuðum eftir að hafa hætt Tufegdzic bræður til Malmö Klopp umbreytir starfinu Íhugar að hætta með argentínska landsliðinu eftir þungt bann Allir leikir stoppaðir fyrir Messi Stjarnan spilar aftur í Miðgarði Frá Keflavík til Noregs Daníel Leó til dönsku meistaranna Banni Aubameyang með landsliðinu aflétt en hann hættir samt KSÍ kaupir pulsuna og búið er að koma henni fyrir á Laugardalsvelli Bayern lenti óvænt undir í fyrstu umferð bikarsins Elías Rafn hélt hreinu og kom Midtjylland á toppinn Cecilía Rán tryggði Inter í Meistaradeildina Sjá meira