Ríkjandi meistarar Frakka bíða strákanna okkar Sindri Sverrisson skrifar 9. janúar 2026 21:46 Dika Mem og félagar munu eflaust bjóða upp á alvöru próf fyrir strákana okkar í síðasta leik fyrir EM. Getty/Sanjin Strukic Generalprufa strákanna okkar fyrir EM í handbolta verður gegn ríkjandi Evrópumeisturum Frakklands, á þeirra heimavelli, á sunnudaginn. Fyrstu mótherjar Íslands á EM, Ítalir, fögnuðu sigri í kvöld.
Þetta varð ljóst í kvöld eftir að Ísland vann Slóveníu og Frakkland hafði betur gegn Austurríki, á fjögurra liða æfingamóti í Frakklandi. Sigur Íslands á Slóveníu var afar öruggur en Frakkar áttu í meiri vandræðum með að hrista Austurríkismenn af sér, þó að þeir hafi á endanum unnið fimm marka sigur, 34-29. Frakkar voru vel studdir í hinni risastóru höll Paris La Défense Arena en höfðu lengst af aðeins naumt forskot og voru 18-16 yfir í háfleik. Munurinn var aðeins eitt mark, 28-27, þegar sjö mínútur voru eftir en Frakkar reyndust sterkari á lokasprettinum. Markvörðurinn Charles Bolzinger átti góða innkomu og var valinn maður leiksins. Ítalir fögnuðu sigri í Þórshöfn Það verða því Frakkland og Íslands sem mætast í úrslitaleik mótsins á sunnudaginn, klukkan 16 að íslenskum tíma, áður en liðin halda svo á Evrópumótið þar sem þau munu ekki mætast nema í fyrsta lagi í undanúrslitum eða leik um sæti. Fyrsti leikur Íslands á EM verður við Ítalíu á föstudaginn eftir slétta viku. Ítalir eru staddir í Færeyjum og unnu þar fyrri leik sinn við heimamenn í kvöld, 36-34, eftir að Færeyingar höfðu verið 19-17 yfir í hálfleik.
EM karla í handbolta 2026 Landslið karla í handbolta Mest lesið „Þetta er eins og aftanákeyrsla“ Íslenski boltinn Ísak Bergmann trúlofaður Fótbolti Þýskaland - Curacao | Slá HM-met Íslendinga Fótbolti Forseti FIFA móðgaði Ítali Fótbolti Alisson Becker missti af leikjum Liverpool til að spara sig fyrir HM Enski boltinn Fjörið og fegurðin var í fyrri hálfleik Fótbolti Harden handtekinn fyrir ólöglegan vopnaburð Körfubolti Meistari í fyrsta skipti í 53 ár Körfubolti Þór - ÍBV | Landsbyggðarslagur af bestu gerð Fótbolti Potter spurður hvort það hafi hjálpað að vera ekki danskur Fótbolti Fleiri fréttir Magdeburg fékk bronsið Viktor Gísli í úrslitaleik Meistaradeildarinnar Magdeburg tapaði í undanúrslitum Strákarnir okkar stálheppnir með riðil á HM Benedikt verður lærisveinn Arnórs Engin Ungverjagrýla á HM Orri Freyr hetjan og Sporting bikarmeistari Valskonur styrkja sig Markakóngurinn endaði tímabilið með látum Lið Blæs bjargaði lærisveinum Rúnars „Hann breytti kúlturnum“ Örn tekur við karlaliði Selfoss Guðjón Valur þjálfari ársins í Þýskalandi Löðrandi sveittur Donni þurfti að sætta sig við silfur Silfurdrengurinn Ingimundur þjálfar Aftureldingu ásamt Hrannari Stórt tap tryggði sæti í Meistaradeildinni Lovísa og Arnór Snær best í Olís deildinni Missti af dýrmætum stigum gegn meisturunum Jafnir leikir hjá Íslendingunum Guðjón Valur ósáttur því lið gæti grætt á tapi Ráða Svíann sem var einu sinni orðaður við íslenska landsliðið „Þetta hefði ekki getað endað betur“ Bjarki Már ungverskur meistari fjórða árið í röð Hættur og farinn í meistaranám til Bandaríkjanna Hættir með vefinn sinn Handbolti.is Íslendingalið Melsungen er Evrópudeildarmeistari Íslenska þríeykið þýskur meistari Donni lék Landin grátt en mátti þola sárt tap í fyrsta leik um titilinn Óðinn fékk silfrið í fyrsta sinn Arnar og Reynir spila við Kiel um titilinn Sjá meira