Segir að Brasilía þurfi á Neymar að halda Óskar Ófeigur Jónsson skrifar 12. janúar 2026 17:30 Gabriel Barbosa og Neymar Jr. fagna hér marki saman með brasilíska landsliðinu. Getty/MB Media Nýjasti liðsfélagi Neymar hjá Santos hefur sterkar skoðanir á því hvort Brasilíumenn eigi að taka Neymar með á heimsmeistaramótið í sumar
Hinn 29 ára gamli Gabriel „Gabigol“ Barbosa gekk nýlega aftur til liðs við Santis á láni frá Cruzeiro út tímabilið og mun spila við hlið Neymars í sóknarlínu Santos. Neymar skrifaði undir nýjan samning við Santos til loka árs 2026 fyrr í síðustu viku. Neymar reynir nú að sýna Carlo Ancelotti, þjálfara Brasilíu, að hann sé í fullkomnu formi og verðugur þess að vera valinn á heimsmeistaramótið. Goðsögnin mín og vinur „Allir vita að Neymar er goðsögnin mín og vinur,“ sagði Gabigol þegar hann var kynntur sem nýr leikmaður Santos. Gabigol vill hjálpa liðsfélaga sínum í brasilíska landsliðinu að komast á HM 2026. Ég vil hjálpa honum „Ég fékk að spila með honum í landsliðinu. Við vorum mjög ánægðir. Ég vil hjálpa honum að verða hundrað prósent heill, við þurfum á honum að halda fyrir heimsmeistaramótið og til að hjálpa Santos að berjast um titla,“ sagði Gabigol. Neymar fór í minni háttar aðgerð á vinstra hné þann 22. desember, skömmu eftir að hafa hjálpað Santos að forðast fall. Hann hafði slitið krossband og liðþófa í sama hné í október 2023 þegar hann var í landsliðsverkefni með Brasilíu og hefur glímt við meiðsli síðan. Skoraði mikilvæg mörk Þrátt fyrir að hafa aðeins spilað í helmingi leikja Brasilíu í Serie A-deildinni frá því hann sneri aftur til Santos í janúar 2025, voru átta mörk hans í deildinni, þar af fjögur í lokaumferðunum, mikilvæg fyrir liðið til að forðast fall. Gabigol og Neymar spiluðu stuttlega saman hjá Santos í upphafi ferils síns og voru báðir í hópum Brasilíu sem unnu gull á Ólympíuleikunum 2016 og lentu í öðru sæti á Copa America 2021.
HM 2026 í fótbolta Mest lesið Vakinn með símtölum um miðja nótt: „Lenti í hakkavélinni“ Íslenski boltinn Heppinn að vera á lífi eftir rosalegan 15 bíla árekstur Sport „Ég sá fólk gráta úr gleði“ Fótbolti Man. United-stuðningsmaðurinn með hárið algjörlega búinn á því Enski boltinn Treyja Gylfa fór á milljón Íslenski boltinn Hver gæti tekið við af Carrick? Enski boltinn Utan vallar: Fólk með ADHD má spila íþróttir Sport Uppaldir spiluðu eitt prósent mínútna hjá Val Íslenski boltinn Það er ekki hægt að reka allar þessar pissudúkkur Sport Ræddu bann Veigars: „Hræðilegur tími“ en „heppinn með dóminn“ Körfubolti Fleiri fréttir Ringulreið á Ballon d'Or: Birtu fréttir um sigurvegara áður en hátíðin hófst Harma ákvörðun Hattar Ingibjörg valin sú efnilegasta Spila til að vinna deildina, ekki Barcelona Gullboltinn afhentur í kvöld Uppaldir spiluðu eitt prósent mínútna hjá Val Vakinn með símtölum um miðja nótt: „Lenti í hakkavélinni“ Kveðja Kristin og Kristin „Ég sá fólk gráta úr gleði“ Eiríkur nýr þjálfari Vals Treyja Gylfa fór á milljón Stuðningsmennirnir fögnuðu Carrick en bauluðu á leikmennina Hver gæti tekið við af Carrick? Þurfti að sauma 50 spor eftir hundaárás Sakar leikmenn Manchester United um ófagmennsku utan vallar KR á nú tvo yngstu markaskorara sögunnar Man. United-stuðningsmaðurinn með hárið algjörlega búinn á því „Hann brást hrapallega sem manneskja“ Sjáðu ræðu Óskars fyrir markaveislu KR-liðsins Mbappé með bæði mörkin í sigri á Barcelona „Guð morning!“ Skaut á Liverpool eftir leikinn: „Aðeins eitt lið reyndi að skapa“ Orri skoraði í þriðja leiknum í röð Katla tryggði Fiorentina sigur „Þetta snýst ekki um mig“ Hákon Arnar meiddist Guðlaugur Victor lagði upp mark í stórsigri í Íslendingaslag „Við verðum að líta í eigin barm“ Newcastle vann í London og sanngjarn jafntefli í Hull Siggi Raggi gerði NSÍ Runavík að meisturum Sjá meira