Börnin geta ekki beðið lengur. Hættum að ræða og byrjum að framkvæma Róbert Ragnarsson skrifar 15. janúar 2026 09:16 Við vitum hvað þarf að gera. Hugmyndirnar liggja fyrir, tillögurnar eru til, fagþekkingin er til staðar. Það sem vantar er pólitískur vilji til að klára málin. Það er einfaldlega óásættanlegt að ár eftir ár ræðum við sama úrræðaleysið í skólakerfinu án þess að gripið sé til raunverulegra aðgerða. Börnin geta ekki beðið lengur. Skóli án aðgreiningar hefur haft gríðarlega jákvæð áhrif. Hann hefur rofið félagslega einangrun barna með fötlun, aukið þátttöku þeirra og bætt lífsgæði margra fjölskyldna. Hugmyndafræðin er mikilvæg og rétt, en hún dugar ekki fyrir öll börn, alltaf. Raunveruleikinn er sá að sum börn þurfa mjög sérhæfða þjónustu sem verður ekki veitt innan almenns skólastarfs, jafnvel þótt viljinn sé fyrir hendi. Umræða um skólaþjónustu á ekki að snúast um „annað hvort eða“, heldur bæði og. Úrræði eiga að ráðast af þörfum barnsins en ekki hugmyndafræðilegri rörsýn eða kreddum. Foreldrar barna með sérþarfir verja ómældum tíma og orku í að berjast fyrir grunnþjónustu. Tíma sem ætti að fara í að styðja börnin sín og vera fjölskylda. Ég hef hitt forsvarskonur biðlisti.is sem hafa skýra sýn á hvernig megi bæta þjónustuna. Við verðum að hlusta á notendur og leyfa fagfólki að útfæra lausnir byggðar á bestu þekkingu og reynslu. Sérskólar Klettaskóli og Brúarskóli eru sprungnir, biðlistar langir og eftirspurn langt umfram framboð. Nemendur koma úr mörgum sveitarfélögum, en ábyrgðin hvílir að mestu á Reykjavíkurborg. Þar þarf að taka af skarið og kalla önnur sveitarfélög að borðinu. Ég hef starfað sem ráðgjafi fyrir Reykjavíkurborg og komið að úrbótatillögum í rekstri sérskólanna. Niðurstaðan er að það þarf að opna annan sérskóla. Að ekki hafi tekist að ná pólitískri samstöðu um slíkt er óásættanlegt þegar börn bíða eftir nauðsynlegri þjónustu. Íslenskubrú Svipaður vandi blasir við í þjónustu við nemendur af erlendum uppruna. Kennarar hafa kallað eftir markvissari úrræðum, meðal annars með innleiðingu svokallaðs brúarnáms, á borð við Íslenskubrú. Í þessum úrræðum fá nemendur markvissan tungumálastuðning samhliða því að taka þátt með sínum bekk í íþróttum og verklegum greinum. Smám saman færast þeir svo inn í almennt nám með stuðningi. Þetta er mannúðleg, fagleg og skynsamleg leið sem gagnast bæði nemendum og kennurum. Slík úrræði eru þekkt víða á Norðurlöndum. Þar sýna rannsóknir jafnframt að þegar nemendur af erlendum uppruna eru spurðir um reynslu sína af brúarnámi eru þeir sammála um að þeir hefðu viljað komast fyrr inn í almennan bekk. Þar ná þeir betri tökum á tungumálinu, þjálfa samskipti og efla menningarlæsi sitt. Við verðum að þora að endurskoða kerfin okkar þegar þau virka ekki nægilega vel. Börn eiga ekki að falla milli kerfa vegna skorts á hugrekki í ákvarðanatöku. Sem leiðtogi Viðreisnar í Reykjavík mun ég beita mér fyrir skýrum og raunhæfum lausnum. Stytta biðlista og fjölga úrræðum í samstarfi sveitarfélaga. Höfundur er stjórnmálafræðingur Msc og frambjóðandi í 1. sæti í prófkjöri Viðreisnar í Reykjavík. Viltu birta grein á Vísi? Kynntu þér reglur ritstjórnar um skoðanagreinar. Senda grein Róbert Ragnarsson Skoðun: Sveitarstjórnarkosningar 2026 Mest lesið Við getum ekki sagt körlum að tala og svo ekki hlustað Grétar Björnsson Skoðun Lindsay Clancy: Konur eru „hysterískar” þegar það hentar þeim Íris Erlingsdóttir Skoðun Ef fréttir eru nauðsynjavara, hver á að borga? Gunnar Salvarsson Skoðun Hvenær er faglegt að spyrja fagfólk? Kristín Ólafsdóttir Skoðun Reynsla, fagmennska og framtíð SÁÁ Jón Páll Hallgrímsson Skoðun Próf eiga að vera áttaviti, ekki áfangastaður Hólmfríður Jennýjar Árnadóttir Skoðun 11 ógnir sem Ísland þarf að búa sig undir Ingólfur Shahin Skoðun Gervi hvað? Eggert Gunnarsson Skoðun Blómleg ferðaþjónusta skilar sér heim til íslenskra samfélaga Sigfinnur Björnsson Skoðun Höfum við tíma fyrir börnin okkar? jóhann Rúnar Pálsson Skoðun Skoðun Skoðun Gervi hvað? Eggert Gunnarsson skrifar Skoðun 11 ógnir sem Ísland þarf að búa sig undir Ingólfur Shahin skrifar Skoðun Hvenær er faglegt að spyrja fagfólk? Kristín Ólafsdóttir skrifar Skoðun Ef fréttir eru nauðsynjavara, hver á að borga? Gunnar Salvarsson skrifar Skoðun Reynsla, fagmennska og framtíð SÁÁ Jón Páll Hallgrímsson skrifar Skoðun Próf eiga að vera áttaviti, ekki áfangastaður Hólmfríður Jennýjar Árnadóttir skrifar Skoðun Við getum ekki sagt körlum að tala og svo ekki hlustað Grétar Björnsson skrifar Skoðun Blómleg ferðaþjónusta skilar sér heim til íslenskra samfélaga Sigfinnur Björnsson skrifar Skoðun Höfum við tíma fyrir börnin okkar? jóhann Rúnar Pálsson skrifar Skoðun Lindsay Clancy: Konur eru „hysterískar” þegar það hentar þeim Íris Erlingsdóttir skrifar Skoðun Óþægilegar niðurstöður gera könnun ekki ómarktæka Ingrid Kuhlman,Svanur Sigurbjörnsson skrifar Skoðun Bilið sem skilningurinn fyllir ekki Sigurður Árni Reynisson skrifar Skoðun Marta Kos verður að virða niðurstöðuna Erna Bjarnadóttir skrifar Skoðun Þegar góður ásetningur skilur börn eftir Guðjóna Eygló Friðriksdóttir skrifar Skoðun Gagnaver, Verne og Ísrael Halldór Reynisson skrifar Skoðun Sterkari innviðir fyrir STEM menntun Huld Hafliðadóttir skrifar Skoðun Ísland sagði nei – en sagði það nei við Evrópu? Valerio Gargiulo skrifar Skoðun EES-samningurinn og regluverk atvinnulífsins Ólafur Stephensen skrifar Skoðun Ábyrgur hagsmunaseggur eða óábyrgt fórnarlamb? Þórdís Hólm Filipsdóttir skrifar Skoðun Milljón hugmyndir, hundrað tímamót Sigvaldi Einarsson skrifar Skoðun Fjórða valdið? En það ert þú! Þorsteinn J. Vilhjálmsson skrifar Skoðun Að velta eigin sök á aðra Sigurjón Þórðarson skrifar Skoðun Próf, einkunnir og (PISA) mat á skólakerfi. Hluti 1. Jón Torfi Jónasson skrifar Skoðun Hvers eiga börnin að gjalda? Magnea Gná Jóhannsdóttir skrifar Skoðun Á að mismuna lántökum? Jón Guðni Ómarsson skrifar Skoðun Þegar öll hafa svörin skiptir hugsunin mestu Hjálmar Bogi Hafliðason skrifar Skoðun Bubbi Morthens og endalok alheimsins Kristján Logason skrifar Skoðun Þýsklendingar á meðal vor Darri Eyþórsson skrifar Skoðun Þöllin á þorpinu Jakob Tryggvason skrifar Skoðun Þjóðin sagði nei. En „látum eins og ekkert sé…” Íris Erlingsdóttir skrifar Sjá meira
Skoðun Blómleg ferðaþjónusta skilar sér heim til íslenskra samfélaga Sigfinnur Björnsson skrifar
Skoðun Óþægilegar niðurstöður gera könnun ekki ómarktæka Ingrid Kuhlman,Svanur Sigurbjörnsson skrifar