Skýrsla Henrys: Sláturtíð í Kristianstad Henry Birgir Gunnarsson skrifar 16. janúar 2026 22:01 Bjarki Már Elísson fagnaði öllu með stæl í kvöld. vísir/epa Ísland er komið á blað á EM eftir að hafa labbað mjög harkalega yfir sprækt ítalskt lið. Eftir erfiðar upphafsmínútur gáfu okkar menn í og unnu að lokum risasigur, 39-26.
Fyrir leik var talað af virðingu um ítalska liðið sem hefur verið á hraðri uppleið og verið að ná áhugaverðum úrslitum. Það sást strax að okkar menn tóku leikinn mjög alvarlega og ætluðu svo sannarlega ekki að gefa Ítölum blóð á tennurnar. Þeir vildu drepa allar vonir þeirra sem fyrst. Leikurinn var tekinn alvarlega og hann var afgreiddur fagmannlega. Algjör slátrun og draumabyrjun hjá okkar mönnum. Janus Daði var maður leiksins og um leið og hann kom af bekknum kom krafturinn sem vantaði svo hægt væri að skilja ítalska liðið eftir. Hann lék svo sannarlega við hvurn sinn fingur og það á báðum endum vallarins því hann var líka frábær í vörninni. Þessi framliggjandi vörn Ítalana var veisla fyrir Janus og einnig fyrir Gísli Þorgeir. Þeir skildu andstæðingana eftir og Ísland fékk á köflum ekkert nema dauðafæri. Snorri Steinn var mættur með lausnir og okkar menn leystu verkefnin af krafti. Það var skemmtilegt að sjá Snorra svara fjögurra manna útilínu Ítalana með því að gera slíkt hið sama. Kannski nýtt vopn? Það fengu allir að spila og þessi leikur var hin fullkomna byrjun á mótinu. Þessi sigur segir okkur ekkert um hversu langt liðið er komið en hann vissulega gefur góð fyrirheit. Við fáum svo svör við stóru spurningunum gegn Ungverjalandi. Þetta var frábært föstudagskvöld þar sem íslenska liðið fór ekki bara á kostum heldur gerðu íslenskir stuðningsmenn það líka. Svakaleg stemning og gott teiti. Megi vera framhald á þessu teiti næstu vikurnar.
EM karla í handbolta 2026 Landslið karla í handbolta Mest lesið Bein útsending: Landsliðakeppni í Bakgarðshlaupi Sport Mögnuð Mari nýtti hverja einustu sekúndu Sport „Þess vegna hafði ég mjög miklar áhyggjur fyrir þetta hlaup“ Sport Kane brást illa við gríni Valsarans Körfubolti „Þetta var allt of mikið“ Fótbolti Fékk innilegt knús alla pásuna: „Höldum áfram þessari helvítis vitleysu“ Sport Leeds - Manchester United | Halda vandræði Manchester-manna áfram? Enski boltinn Uppgjörið: FH - Þróttur 0-4 | Titilvonir FH-inga í tætlum Íslenski boltinn Sjáðu mark Sveindísar sem fer á kostum í Bandaríkjunum Fótbolti Sjáðu lygilegt mark Brighton frá miðju Enski boltinn Fleiri fréttir Elvar markahæstur en Donni fagnaði sigri Reynir markahæstur í sigri Melsungen Kærkominn sigur KA/Þór FH gekk frá Fram í seinni hálfleik Sandra með tíu í sætum sigri á Fram en Haukar halda flugi Níu mörk Jóhannesar ekki nóg Finnur til með Arnari Sætur sigur Selfoss og Gunnar með fullkominn leik KA-menn brotlentu í Garðabæ Tólf marka Dagur kom ÍBV á rétta braut „Ekkert sem ég missti svefn yfir“ Snorri Steinn valdi tuttugu leikmenn fyrir komandi verkefni Átján ára með fjórtán mörk og Haukar fljúga áfram Afturelding í annað sæti Stórleikur Hauks í sáru tapi og Andri náði ekki að mæta pabba Úr leik þrátt fyrir sjö mörk Einars Braga Gísli markahæstur og Bjarki fagnaði stórsigri Nýr styrktaraðili dönsku úrvalsdeildarinnar í handbolta umdeildur Arnór Snær: „Þvílíka veislan“ FH þurfti að þola annan skell í Portúgal Valur - Tatabánya 38-34 | Annar frábær Evrópusigur Sá besti óvænt orðaður við brottför „Það rignir ekkert inn peningum“ Mál á borði lögreglu eftir leik hjá liði Donna Benedikt birtir mynd frá slysstað HK sótti fyrsta sigurinn með einu marki Flautumark í sigri Viggós á Reyni Þungt tap Íslendingaliðsins Viktor öflugur í öruggum sigri Enn með fullt hús Sjá meira