Menntun barna byrjar ekki í kennslustofunni - ekki dæma skólann áður en þú skilur hann Emilía Jóhanna Guðjónsdóttir skrifar 18. janúar 2026 08:01 Góðir Íslendingar. Tilgangur þessa pistils er ekki að skamma, heldur að varpa ljósi á þá flóknu og oft vanmetnu ábyrgð sem kennarar bera og að minna á að menntun barna er sameiginlegt verkefni heimila og skóla. Umræðan um skólamál er mikil og hávær og margir telja sig búa yfir skýrri sýn á hvað betur mætti fara. Áður en dómar eru felldir er þó rétt að staldra við, setja hlutina í samhengi og reyna að sjá skólakerfið frá sjónarhorni þeirra sem starfa þar daglega. Að hafa setið í bekk gerir þig ekki að sérfræðingi Það er athyglisvert (og jafnvel fróðlegt) að sjá og heyra hversu margir úr almenningi – og aðrir sérfræðingar – telja sig almennt þekkja til kennslu og skilja skólamál betur en kennarar og þeir sem vinna í skólum landsins. Ég velti því fyrir mér hvort þessi sérfræðiþekking, sem þið teljið ykkur búa yfir, sé til komin vegna þess að eitt sinn voruð þið sjálf nemendur í grunnskóla og trúið því, af þeirri ástæðu, að þið vitið betur og getið sinnt starfinu betur en nokkur annar. Læsið sem þú nýtur í dag var ekki sjálfgefið Ég vona að þið, sem þessu trúið, hafið verið svo heppin að sú færni og menntun sem þið öðluðust, kæru Íslendingar, í gegnum ykkar grunnskólagöngu – ásamt öllum þeim dýrmæta tíma og hvatningu sem foreldrar ykkar veittu ykkur heima til að læra að lesa – sé ástæðan fyrir því að þið getið lesið og skilið þennan pistil í dag. Ég stórefa að það séu nánast bara stelpur, kvár og konur sem geti lesið og skilið hvað þessi pistill fjallar um, þar sem það er, jú, okkur kennurum að kenna að drengir séu ólæsir og eigi sér enga framtíð. Ábyrgðin á lærdómi barns er ekki einkamál skólans Ef þú, kæri Íslendingur, skilur ekki eða átt erfitt með að lesa þennan pistil, þá biðst ég innilegrar „afsökunar“ – fyrir hönd þeirra sem stóðu þér næst – og veittu þér ekki þann tíma, stuðning, hvata og þá aðstoð sem þú þurftir á að halda til að öðlast góða lestarfærni. Sjáðu til, það er nefnilega þannig að ábyrgðin á lestarfærni þinni er ekki alfarið í höndum þeirra kennara sem þú hafðir í gegnum skólagöngu þína, heldur einnig foreldra eða forráðamanna þinna. Já, ábyrgðin er nefnilega þeirra líka. Endurtekin ósannindi verða að „staðreyndum“ Það hefur reyndar verið sagt í – jaa, ég veit ekki í hvað mörg ár – að drengir nenni ekki, hafi ekki áhuga eða getu til að læra. Við skulum hafa það alveg á hreinu: það er einfaldlega ekki staðreyndin. En ef drengir eru sífellt mataðir af þessari „staðreynd“ í áratugi, þá fara þeir að trúa því að þeir geti ekki lært að lesa, hafi ekki getuna til þess. Börn trúa nefnilega auðveldlega því sem þau sjá og heyra. Meira að segja fullorðið fólk fer að trúa því að það geti ekki hitt og þetta – eða að heimurinn sé svona eða hinsegin – af sömu ástæðum. Börn læra ekki eins – hættu að láta eins og þau geri það Það er staðreynd að við erum ekki öll eins og við lærum og tileinkum okkur hluti ekki á sama hátt. Önnur staðreynd er sú að innan hvers heimilis ríkir fjölbreytileiki og að þarfir hvers og eins eru langt frá því að vera þær sömu. Þarfir systkina geta verið mjög ólíkar og krefjandi. Foreldrar þurfa að finna mismunandi leiðir til að sinna þörfum barna sinna og bera fulla ábyrgð á velferð þeirra. Nú skulum við setja þessar staðreyndir saman og yfirfæra þær inn í kennslustofur umsjónarkennara í grunnskólum landsins – í skóla án aðgreiningar. Misjafn fjöldi nemenda. Óteljandi þarfir. Fáir kennarar. Nemendahópar umsjónarkennara samanstanda jafnan af fjölbreyttum hópi nemenda, oft um tuttugu – ósjaldan fleiri – þar sem hver einstaklingur býr yfir sínum eigin þörfum. Þarfirnar eru aldrei jafnmargar og nemendurnir sjálfir; þær eru einfaldlega óteljandi. Kennsla er fag – ekki einhver skoðun Kennarar þurfa að greina hverjar þarfir nemenda þeirra eru og aðlaga kennslu sína að hverjum og einum. Þeir þurfa að vinna sér inn traust og virðingu allra nemenda sinna. Þeir þurfa að átta sig á hvar hver nemandi er staddur, bæði námslega og félagslega, hvaða kennsluaðferðir henta og hvaða aðferðir henta ekki hverjum og einum. Settu þig í spor kennarans áður en þú talar Kennarar þurfa einnig að finna leiðir til að sinna hverjum nemanda án þess að það bitni á þörfum annarra nemenda. Núna er kominn tími til að þið, kæru lesendur, setjið ykkur í spor þessara kennara og leggið til hliðar þá sérfræðiþekkingu sem þið teljið ykkur búa yfir á sviði skólamála og kennsluaðferða. Talið um skólamál og nám barna ykkar á jákvæðan hátt og berið virðingu fyrir námi þeirra. Bakvið hvern árangur er vinna sem þú sérð ekki Ég hef síðustu ár verið með mjög ólíka nemendahópa, þar sem allur fjölbreytileikinn hefur fengið að njóta sín, ásamt þeim ólíku þörfum sem honum fylgja. Ég hef lagt alla mína getu, þekkingu, svita og tár í að koma til móts við þarfir nemenda minna, svo þeir öðlist jákvæða, góða og skemmtilega skólagöngu. Umfram allt hef ég, ásamt mínum „kollegum”, gert allt sem í okkar valdi stendur til að börnin ykkar fái þá aðstoð og hjálp sem þau þurfa til að öðlast góða lestarfærni. Það er mér sannur heiður að hafa fengið að kenna ótal mörgum af ykkar frábæru og dýrmætu börnum. Og ég er alls ekki ein um allt þetta. Virðing fyrir skólanum skiptir börnin máli Ég vil að lokum þakka öllum kennurum, stjórnendum og öðru starfsfólki í skólum landsins fyrir framúrskarandi og óeigingjörn störf. Ykkur, kæru Íslendingar, óska ég alls hins besta. Verið stolt og gleðjist yfir þeim árangri sem börnin ykkar hafa náð – og umfram allt: gefið börnunum ykkar ykkar tíma til að nýta og njóta. Menntun barna byrjar ekki í kennslustofunni – hún byrjar hjá fullorðnum sem axla ábyrgð. Höfundur er umsjónarkennari á yngsta stigi grunnskóla þar sem kennt er eftir aðferðum Byrjendalæsis. Viltu birta grein á Vísi? Kynntu þér reglur ritstjórnar um skoðanagreinar. Senda grein Skóla- og menntamál Mest lesið Gott bú stendur undir sér Róbert Ragnarsson Skoðun Þegar samþykki virðist verða að ábyrgð brotaþola Herdís Ósk Sveinbjörnsdóttir Skoðun Fæðingarorlof fyrir ömmu og afa? Magnea Gná Jóhannsdóttir Skoðun Skörum fram úr í skaðlegu skattaumhverfi Elliði Vignisson Skoðun Að byrja á röngum enda – vítahringur vímuefnavanda, afbrota og refsinga Margrét Dís Yeoman Skoðun Af þreyttasta frumvarpi íslenskrar þingsögu Árni Guðmundsson Skoðun Börn þurfa úrræði, ekki innantóm loforð Ása Berglind Hjálmarsdóttir Skoðun Hvers vegna skiptir bókun 35 máli? Eiríkur S. Svavarsson Skoðun Hver ætlar að hjúkra þér? Helga Rósa Másdóttir Skoðun Var Stonehenge sláturhús? Ása Hlín Benediktsdóttir Skoðun Skoðun Skoðun Hamfarir í hversdagslegum kringumstæðum Sanna Magdalena Mörtudóttir skrifar Skoðun Heimilin eiga ekki alltaf að borga brúsann Alexander M. Árnason skrifar Skoðun Fleiri krónur taldar – fáar nýjar Daði Freyr Ólafsson skrifar Skoðun Samráð stórveldanna þriggja – ný leið til heimsfriðar? Aðalsteinn Júlíus Magnússon skrifar Skoðun Mikilvægt er að draga lærdóm af smáíbúðamálinu i Hafnarfirði Árni Rúnar Þorvaldsson skrifar Skoðun Farsælt ferðalag fólks og fisks Heiðrún Lind Marteinsdóttir skrifar Skoðun Orkan í ólgusjó efnahagsmála Tinna Traustadóttir skrifar Skoðun Fæðingarorlof fyrir ömmu og afa? Magnea Gná Jóhannsdóttir skrifar Skoðun Gott bú stendur undir sér Róbert Ragnarsson skrifar Skoðun Loksins get ég notið þess að vera heima Ingibjörg Dóra Scheving Bjarnadóttir skrifar Skoðun Þegar samþykki virðist verða að ábyrgð brotaþola Herdís Ósk Sveinbjörnsdóttir skrifar Skoðun Sama fötlun en ólík réttindi - Aldurinn ræður úrslitum - Ásta Ólafsdóttir skrifar Skoðun Umskiptingar Flokks fólksins á Alþingi Júlíus Valsson skrifar Skoðun Okkar fé í Heimum Bergur Hauksson skrifar Skoðun Hver ætlar að hjúkra þér? Helga Rósa Másdóttir skrifar Skoðun Er alveg sama hvað Ísland er dýrt? Björn Ragnarsson skrifar Skoðun Krossinn er ekki matseðill Hilmar Kristinsson skrifar Skoðun Við mælum hávaða en mælum við óskýrleikann? Ragnhildur Bjarkadóttir skrifar Skoðun Hvað gerist í síðari hálfleik? Lovísa Oktovía Eyvindsdóttir skrifar Skoðun Hvers vegna skiptir bókun 35 máli? Eiríkur S. Svavarsson skrifar Skoðun Skörum fram úr í skaðlegu skattaumhverfi Elliði Vignisson skrifar Skoðun Hvernig getum við dregið úr einmanaleika mæðra í fæðingarorlofi? Sigrún Þóra Sveinsdóttir skrifar Skoðun Arfurinn og réttur ríkisins til skattheimtu Gunnar Ármannsson skrifar Skoðun Undir sömu stjörnu – ópera fyrir alla þjóðina Sævar Þór Halldórsson skrifar Skoðun Börn þurfa úrræði, ekki innantóm loforð Ása Berglind Hjálmarsdóttir skrifar Skoðun Ísland á ekki að verða land gjaldhliða Þórir Garðarsson skrifar Skoðun Fokk, ég er með ristilkrabbamein! Matthías Freyr Matthíasson skrifar Skoðun Lofthjúpurinn er ekki verðbólguspá – þegar prófessorinn villist út fyrir sitt sérfræðisvið Sveinn Atli Gunnarsson skrifar Skoðun Af þreyttasta frumvarpi íslenskrar þingsögu Árni Guðmundsson skrifar Skoðun Samfélagsbanki: Opið bréf til ríkisstjórnarinnar Guðmundur D. Haraldsson,Sævar Finnbogason skrifar Sjá meira
Að byrja á röngum enda – vítahringur vímuefnavanda, afbrota og refsinga Margrét Dís Yeoman Skoðun
Skoðun Mikilvægt er að draga lærdóm af smáíbúðamálinu i Hafnarfirði Árni Rúnar Þorvaldsson skrifar
Skoðun Hvernig getum við dregið úr einmanaleika mæðra í fæðingarorlofi? Sigrún Þóra Sveinsdóttir skrifar
Skoðun Lofthjúpurinn er ekki verðbólguspá – þegar prófessorinn villist út fyrir sitt sérfræðisvið Sveinn Atli Gunnarsson skrifar
Skoðun Samfélagsbanki: Opið bréf til ríkisstjórnarinnar Guðmundur D. Haraldsson,Sævar Finnbogason skrifar
Að byrja á röngum enda – vítahringur vímuefnavanda, afbrota og refsinga Margrét Dís Yeoman Skoðun