Íhuga að reka Glasner eftir reiðikastið Ingvi Þór Sæmundsson skrifar 18. janúar 2026 11:32 Steve Parish (til hægri), stjórnarformanni Crystal Palace, var brugðið vegna ummæla knattspyrnustjórans Olivers Glasners (til vinstri) eftir tapið fyrir Sunderland í gær og íhugar hvort hann eigi að segja Austurríkismanninum upp störfum. getty/MI News Stjórnarformaður Crystal Palace, Steve Parish, var undrandi og reiður vegna ummæla knattspyrnustjóra liðsins, Olivers Glasner, í viðtali eftir leikinn gegn Sunderland í gær og íhugar að reka hann.
Palace tapaði fyrir Sunderland, 2-1, og eftir leikinn á Ljósvangi gagnrýndi Glasner forráðamenn liðsins harðlega og sagði þá hafa skilið hann og leikmannahópinn eftir á köldum klaka. Á föstudaginn var greint frá því að fyrirliði Palace, Marc Guehi, yrði seldur til Manchester City. Glasner gerði enga skiptingu í leiknum í gær og eftir hann kvartaði hann yfir því að fá enga hjálp frá forráðamönnum Palace. „Þetta er það sem gerist þegar hjarta liðsins er í tvígang rifið úr liðinu á sama ári,“ sagði Glasner en fyrr á tímabilinu var Eberechi Eze seldur til Arsenal, degi fyrir leik. „Ég bara skil þetta ekki. Á mínum þrjátíu ára ferli í fótbolta hef ég aldrei upplifað annað eins,“ bætti Austurríkismaðurinn við. Á blaðamannafundi á föstudaginn greindi Glasner frá því að hann yrði ekki áfram hjá Palace eftir tímabilið. En hann gæti hafa stýrt liðinu í síðasta sinn. Samkvæmt heimildum Sky Sports fóru ummæli Glasners eftir leikinn gegn Sunderland ekki vel í Parish og hann veltir því nú fyrir sér hvort hann eigi að reka þann austurríska. Illa hefur gengið hjá Palace að undanförnu eftir góða byrjun á tímabilinu. Ernirnir hafa ekki unnið í tíu leikjum í röð og töpuðu meðal annars fyrir utandeildarliði Macclesfield í 3. umferð ensku bikarkeppninnar um síðustu helgi. Palace varð bikarmeistari á síðasta tímabili en þátttaka liðsins í bikarkeppninni í vetur hlaut fremur snautlegan endi. Glasner tók við Palace fyrir tæpum tveimur árum. Auk þess að gera liðið að bikarmeisturum í fyrra vann það Samfélagsskjöldinn í upphafi þessa tímabils. Palace er í 13. sæti ensku úrvalsdeildarinnar með 28 stig eftir 22 leiki. Næsti leikur liðsins er gegn Chelsea á heimavelli eftir viku.
Enski boltinn Crystal Palace FC Tengdar fréttir Mætti brjálaður í viðtal og hjólaði í stjórnina Oliver Glasner, knattspyrnustjóri enska úrvalsdeildarfélagsins Crystal Palace er allt annað en sáttur við forráðamenn félagsins og lét óánægju sína í ljós í viðtali eftir tap gegn Sunderland í dag. 17. janúar 2026 19:50 Glasner hættir með Crystal Palace í vor og Guehi fer nú í janúar Oliver Glasner knattspyrnustjóri Crystal Palace hefur nú gefið það út að hann verður ekki áfram með Lundúnaliðið. 16. janúar 2026 14:30 Mest lesið Áhrifavaldar sýna vanvirðingu á risamóti í tennis Sport Uppgjörið: FH - Stjarnan | Sannfærandi sigur í fyrsta leik undir stjórn Arons Handbolti Isak heitur í sigri Liverpool og strax búinn að jafna síðustu leiktíð Enski boltinn „Gangandi martröð“ Enski boltinn Sér enn eftir að hafa hafnað tækifærinu Enski boltinn Fólskubrot á Gísla sem var sjálfur rekinn af velli Handbolti Laus úr banni aðeins mánuði eftir að hafa tekið kókaín Sport Taktík að taka á sig þessa hörðu refsingu Formúla 1 Hætti er liðið sótti rússneskan leikmann Körfubolti Tróð inn lagatitlum og enginn tók eftir því Enski boltinn Fleiri fréttir Sjáðu mörk Isaks í fyrsta leik Barcola Isak heitur í sigri Liverpool og strax búinn að jafna síðustu leiktíð Carrick himinlifandi eftir kaup sumarsins Mætir gömlu félögunum í Manchester United í endurkomunni til Englands Fékk bombu í andlitið en meiddist á hné Tróð inn lagatitlum og enginn tók eftir því Sér enn eftir að hafa hafnað tækifærinu „Gangandi martröð“ Stórir póstar utan Meistaradeildarhóps Liverpool Skaðar orðspor dómara: Lék sér að því að flauta ekki upp á grín Tielemans tók vítið með Bruno Martinelli seldur til Sádi-Arabíu Bestu kaupin í sögu enska boltans Barcola í hóp á morgun Liðin í enska boltanum eyddu meira en stærstu deildir Evrópu til saman Liverpool fékk nýjan markvörð Stóðst læknisskoðun og stakk svo af Liverpool hringdi svo hann sagði nei við Chelsea Lækkaði launin til að upplifa drauminn Fengu þrjá á lokadegi Tókst ekki að ræna Belganum Dagskráin í dag: Einn leikur á sviðið út af fyrir sig Ndiaye til Manchester City Man ekki eftir Chelsea-liðinu svona lítið með boltann City borgar 125 milljónir punda fyrir Enzo Mbaye til Aston Villa Ensku félögin með bókhaldsbrellur Arteta vill bæta við hópinn í dag „Ef hann gerir það verða mörg félög í vandræðum“ Sanchez á förum frá Chelsea eftir komu Martinez Sjá meira
Mætti brjálaður í viðtal og hjólaði í stjórnina Oliver Glasner, knattspyrnustjóri enska úrvalsdeildarfélagsins Crystal Palace er allt annað en sáttur við forráðamenn félagsins og lét óánægju sína í ljós í viðtali eftir tap gegn Sunderland í dag. 17. janúar 2026 19:50
Glasner hættir með Crystal Palace í vor og Guehi fer nú í janúar Oliver Glasner knattspyrnustjóri Crystal Palace hefur nú gefið það út að hann verður ekki áfram með Lundúnaliðið. 16. janúar 2026 14:30