Að byggja upp flæði og traust í heilbrigðiskerfinu Sandra B. Franks skrifar 20. janúar 2026 08:34 Í nýlegri grein hér á Vísi setur Jón Magnús Kristjánsson skýrt fram hvers vegna endurtekið álag og ófremdarástand skapast á bráðamóttöku Landspítala. Umfjöllunin er mikilvæg og gagnleg og setur í orð þann veruleika sem heilbrigðisstarfsfólk og sjúklingar upplifa ítrekað. Hún sýnir að álag á bráðamóttöku er ekki einangrað vandamál, heldur afleiðing flæðisvanda annars staðar í heilbrigðiskerfinu, greining sem er bæði rétt og nauðsynleg. Til að byggja upp traust í heilbrigðiskerfinu þurfum við þó að horfa á alla keðjuna, ekki aðeins rými og ferla, heldur einnig mannauð, hlutverk og samfellu þjónustunnar. Fráflæðisvandi snýst um fólk, ekki aðeins pláss Skortur á hjúkrunarrýmum, endurhæfingarúrræðum og stuðningi utan spítala hefur bein áhrif á bráðamóttöku. Það er vel þekkt. Rúm og ferlar segja þó aðeins hluta sögunnar, því þar á bakvið eru sjúklingar og fagfólk. Þegar uppsöfnun verður á bráðamóttöku eru það sjúkraliðar, hjúkrunarfræðingar, læknar og annað heilbrigðisstarfsfólk sem sinnir sjúklingum og aðstandendum við erfiðar aðstæður, oft í þrengslum og undir miklu álagi. Það er gert af fagmennsku og ábyrgðartilfinningu, jafnvel þegar aðstæður eru langt frá því að vera ásættanlegar. En styrkur kerfisins verður að veikleika ef þetta er gert að varanlegu ástandi. Heimahjúkrun, mannauður og samhæfing Ein af rótum flæðisvandans er að heimahjúkrun og þjónusta utan spítala hefur ekki verið efld í sama takti og ábyrgð hennar hefur aukist. Sífellt veikari og hrumari einstaklingar búa heima lengur, sem er rétt stefna, en aðeins ef þjónustan fylgir með. Heimahjúkrun er ekki jaðarþjónusta heldur kjarnastarf heilbrigðiskerfisins og forsenda öruggra útskrifta. Þegar hún er vanmönnuð eða veik í framkvæmd verður spítalinn sjálfkrafa endastöð kerfisins, með fyrirsjáanlegum afleiðingum á bráðamóttöku. Mönnun er oft nefnd sem áskorun í umræðu um flæði, en hún er jafnframt lykilforsenda þess að lausnir skili árangri. Allri þjónustu er haldið uppi af fólki með rétta þekkingu og reynslu, á réttum stað í kerfinu. Sjúkraliðar eru meðal þeirra stétta sem bera uppi daglega heilbrigðisþjónustu og sinna grunnþörfum sjúklinga allan sólarhringinn, oft við krefjandi aðstæður. Menntun þeirra hefur þróast hratt á undanförnum árum, meðal annars með sérhæfðu diplómanámi við Háskólann á Akureyri. Það er mjög brýnt er að sú þekking nýtist í skýrum og markvissum hlutverkum. Ein leið til að bæta flæði er að efla samhæfingu í nærþjónustu með því að nýta betur sérhæfða þekkingu sem þegar er til staðar. Slík nálgun gæti aukið yfirsýn og samfellu í þjónustu við fólk með flóknar og langvarandi þarfir. Í því samhengi mætti hugsa sér ný eftirfylgni- og samhæfingarhlutverk í heilsugæslu fyrir sérhæfða sjúkraliða, til dæmis sem málastjóra aldraðra, í samræmi við viðbótarmenntun þeirra og reynslu. Slík hlutverk gætu styrkt tengingu milli spítala, heimahjúkrunar og félagsþjónustu og stutt aðstandendur með markvissri eftirfylgd. Skýr ábyrgð og framtíðarsýn Mikilvægt er að halda þessari umræðu á málefnalegum og uppbyggilegum nótum. Allt fagfólk heilbrigðis- og velferðarþjónustunnar vinnur að sama markmiði, þ.e. að tryggja örugga, faglega og mannsæmandi þjónustu. Viðvarandi álag á bráðamóttöku er ekki óhjákvæmilegt, heldur merki um kerfi sem þarf a‘ styrkja. Með markvissri uppbyggingu heimahjúkrunar, betri nýtingu á sérhæfðri þekkingu sjúkraliða og skýrri samhæfingu í nærþjónustu má rjúfa vítahringinn og byggja upp traust til framtíðar. Til þess þarf skýra forgangsröðun og samræmda ábyrgð ríkis og sveitarfélaga. Höfundur er formaður Sjúkraliðafélags Íslands. Viltu birta grein á Vísi? Kynntu þér reglur ritstjórnar um skoðanagreinar. Senda grein Sandra B. Franks Heilbrigðismál Ástand á bráðamóttöku Landspítalans Mest lesið Ef Ísland gengur í Evrópusambandið flyt ég til Danmerkur Benedikt Jóhannesson Skoðun Gætum við haft það betra? Eydís Ásbjörnsdóttir Skoðun Skítamixsumarið mikla Hulda Hallgrímsdóttir Skoðun 30 dæmi um villandi framsetningu í efnahagsgreiningu Áfram Íslands Gauti B. Eggertsson Skoðun Ísland á eilífa hagsmuni en ekki eilífa bandamenn Lára Herborg Ólafsdóttir Skoðun Þarftu að vita mikið um ESB til að kjósa 29. ágúst? Árný Elínborg Ásgeirsdóttir Skoðun Já við fleiri verkfærum fyrir byggðir landsins Arna Lára Jónsdóttir Skoðun Að gera illt verra - Verðbólgan og ábyrgð stjórnvalda Jón Ferdínand Estherarson Skoðun Þessir þröngsýnu ungu bændur Sunna Þórarinsdóttir Skoðun Ekki láta plata þig þann 29. ágúst Sveinn Atli Gunnarsson Skoðun Skoðun Skoðun Við getum þetta sjálf – en hver græðir á því? Margrét Högnadóttir skrifar Skoðun Þarf fimm háskólagráður til að segja já? Berglind Guðmundsdóttir skrifar Skoðun Já, já eða nei Þorsteinn Bergsson skrifar Skoðun Hvar má sleppa taumnum? Sigvaldi Einarsson skrifar Skoðun Um sameiginleg verðmæti og veikleika stjórnkerfisins Sigurður Sigurðsson skrifar Skoðun Nei við hindrunum - Ákvarðanir um Ísland á Íslandi Guðmundur Fertram Sigurjónsson skrifar Skoðun Ísland á eilífa hagsmuni en ekki eilífa bandamenn Lára Herborg Ólafsdóttir skrifar Skoðun Lífeyrissjóðirnir og aðalfundur Icelandair Kjartan Björgvinsson skrifar Skoðun Ísland og Færeyjar, yfirráð yfir auðlindum og fullveldi Ásgeir Daníelsson skrifar Skoðun Evrópskir hægrimenn eru Evrópusinnar Svavar Halldórsson skrifar Skoðun Evrópa - frá velferð til vígvæðingar Ólöf Benediktsdóttir skrifar Skoðun Ekki láta plata þig þann 29. ágúst Sveinn Atli Gunnarsson skrifar Skoðun Hver á fiskinn – og hvar verða verðmætin til? Baldur Johnsen skrifar Skoðun Gögnin sýna að Evrópa er langmikilvægasta markaðssvæði Íslands Gísli Hjálmtýsson skrifar Skoðun Grænland – áttu við Ísland? Damien Degeorges skrifar Skoðun Skítamixsumarið mikla Hulda Hallgrímsdóttir skrifar Skoðun Vextir, verðbólga, verðtrygging og íslenska veðráttan Árni Rúnar Þorvaldsson skrifar Skoðun 30 dæmi um villandi framsetningu í efnahagsgreiningu Áfram Íslands Gauti B. Eggertsson skrifar Skoðun Já til að sjá – áhættuspil? Guðmundur Edgarsson skrifar Skoðun Það eru breyttir tímar Þóroddur Ingvarsson skrifar Skoðun Er íslensk útgerð og kvótakerfi góð ástæða til að kjósa já 29. ágúst? Arndís Vala Arnfinnsdóttir skrifar Skoðun Ef Ísland gengur í Evrópusambandið flyt ég til Danmerkur Benedikt Jóhannesson skrifar Skoðun ESB hefur styrkt gróðahyggju á kostnað félagshyggju Ögmundur Jónasson skrifar Skoðun Hver ætlar að hafa augun á boltanum? Hnikarr Bjarmi Franklínsson skrifar Skoðun Þessir þröngsýnu ungu bændur Sunna Þórarinsdóttir skrifar Skoðun Brexit rútan mætt til Íslands! Andrés Pétursson skrifar Skoðun Að gera illt verra - Verðbólgan og ábyrgð stjórnvalda Jón Ferdínand Estherarson skrifar Skoðun Íslenski hesturinn og ESB: Hræðsluáróður eða raunveruleg hætta? Begga Rist skrifar Skoðun Landbúnaður og matvælaverð – Framtíðar þróun Guðjón Sigurbjartsson skrifar Skoðun Þegar stjórnvöld og stórfyrirtæki standa ekki við orð sín Jóhann Helgi Stefánsson,Jón Helgi Björnsson skrifar Sjá meira
Skoðun 30 dæmi um villandi framsetningu í efnahagsgreiningu Áfram Íslands Gauti B. Eggertsson skrifar
Skoðun Er íslensk útgerð og kvótakerfi góð ástæða til að kjósa já 29. ágúst? Arndís Vala Arnfinnsdóttir skrifar
Skoðun Þegar stjórnvöld og stórfyrirtæki standa ekki við orð sín Jóhann Helgi Stefánsson,Jón Helgi Björnsson skrifar