Ísland spilar við gestgjafa HM og Haítí Sindri Sverrisson skrifar 20. janúar 2026 09:00 Hákon Arnar Haraldsson og félagar í íslenska landsliðinu eru á leið til Kanada í lok mars. Getty/Catherine Steenkeste Íslenska karlalandsliðið í fótbolta mun eftir tvo mánuði spila vináttulandsleiki við tvær af þátttökuþjóðunum á HM sem fram fer í Kanada, Mexíkó og Bandaríkjunum næsta sumar.
Frá þessu greinir kanadíska íþróttastöðin TSN sem segir að Ísland verði ein fjögurra þjóða sem spila muni í Toronto í lok mars. Miðillinn segir að þetta verði gert opinbert í vikunni. Ísland mun samkvæmt þessu spila við Kanada og Haítí en fjórða þjóðin er svo Túnis sem Ísland mun ekki spila við, þar sem aðeins er pláss fyrir tvo leiki í þessum landsleikjaglugga. Kanadamenn eru eins og fyrr segir í hlutverki gestgjafa á komandi heimsmeistaramóti og lagði kanadíska knattspyrnusambandið á það áherslu að spila leikina í mars á heimavelli, til undirbúnings fyrir mótið, samkvæmt frétt TSN. Gætu mætt Davies og Isidor Þar segir einnig að allra augu beinist að því hvort að fyrirliðinn Alphonso Davies, vinstri bakvörður Bayern München, verði með gegn Íslandi og Túnis eftir að hafa slitið krossband í hné í mars í fyrra. Kanada er í 29. sæti heimslistans en Ísland í 74. sætinu. Haítí, sem spilar á HM í annað sinn, er svo í 83. sæti. Leið Haítí á HM var ansi merkileg því liðið varð að spila heimaleiki sína í öðru landi, í Curacao, vegna ólgunnar heima fyrir. Það þýðir jafnframt að franski þjálfari liðsins, Sebastien Migne, hefur enn ekki heimsótt Haítí. Mögulegt er að Haítí tefli fram nýjum leikmanni gegn Íslandi því viðræður hafa verið í gangi við Wilson Isidor, framherja Sunderland, um að spila fyrir þjóðina en Frakkinn á ættir að rekja til Haítí.
HM 2026 í fótbolta Landslið karla í fótbolta Mest lesið Vakinn með símtölum um miðja nótt: „Lenti í hakkavélinni“ Íslenski boltinn Heppinn að vera á lífi eftir rosalegan 15 bíla árekstur Sport „Ég sá fólk gráta úr gleði“ Fótbolti Man. United-stuðningsmaðurinn með hárið algjörlega búinn á því Enski boltinn Treyja Gylfa fór á milljón Íslenski boltinn Hver gæti tekið við af Carrick? Enski boltinn Utan vallar: Fólk með ADHD má spila íþróttir Sport Það er ekki hægt að reka allar þessar pissudúkkur Sport Uppaldir spiluðu eitt prósent mínútna hjá Val Íslenski boltinn Ræddu bann Veigars: „Hræðilegur tími“ en „heppinn með dóminn“ Körfubolti Fleiri fréttir Harma ákvörðun Hattar Ingibjörg valin sú efnilegasta Spila til að vinna deildina, ekki Barcelona Gullboltinn afhentur í kvöld Uppaldir spiluðu eitt prósent mínútna hjá Val Vakinn með símtölum um miðja nótt: „Lenti í hakkavélinni“ Kveðja Kristin og Kristin „Ég sá fólk gráta úr gleði“ Eiríkur nýr þjálfari Vals Treyja Gylfa fór á milljón Stuðningsmennirnir fögnuðu Carrick en bauluðu á leikmennina Hver gæti tekið við af Carrick? Þurfti að sauma 50 spor eftir hundaárás Sakar leikmenn Manchester United um ófagmennsku utan vallar KR á nú tvo yngstu markaskorara sögunnar Man. United-stuðningsmaðurinn með hárið algjörlega búinn á því „Hann brást hrapallega sem manneskja“ Sjáðu ræðu Óskars fyrir markaveislu KR-liðsins Mbappé með bæði mörkin í sigri á Barcelona „Guð morning!“ Skaut á Liverpool eftir leikinn: „Aðeins eitt lið reyndi að skapa“ Orri skoraði í þriðja leiknum í röð Katla tryggði Fiorentina sigur „Þetta snýst ekki um mig“ Hákon Arnar meiddist Guðlaugur Victor lagði upp mark í stórsigri í Íslendingaslag „Við verðum að líta í eigin barm“ Newcastle vann í London og sanngjarn jafntefli í Hull Siggi Raggi gerði NSÍ Runavík að meisturum Varð markahæstur í deildinni gegn bróður sínum. Sjá meira