Sex sagt upp í menntamálaráðuneytinu Hólmfríður Gísladóttir skrifar 21. janúar 2026 09:32 Inga Sæland, er nýr mennta- og barnamálaráðherra. Vísir/Vilhelm Sex starfsmönnum mennta- og barnamálaráðuneytisins hefur verið sagt upp störfum. Frá þessu er greint í tilkynningu frá ráðuneytinu. Þar segir að ráðherra hafi innleitt nýtt skipurit og verklag í kjölfar mats á hlutverki og verkefnum ráðuneytisins. Markmið breytinganna sé að styrkja faglega stjórnsýslu, skýra ábyrgð og umboð, bæta ákvarðanatöku og tryggja að ráðuneytið sé enn betur í stakk búið til að sinna lögbundnu hlutverki sínu.
Einnig segir í tilkynningunni að dregið verði úr yfirbyggingu en fagleg sérþekking og sérhæfing innan málaflokka styrkt. „Með breytingunum nú viljum við einfalda verklag og gera það skilvirkara. Við viljum lyfta upp menntamálum og setja aukinn slagkraft í málefni barna í viðkvæmri stöðu. Það er mikilvægt að nýta þá miklu sérþekkingu sem til staðar er í ráðuneytinu og stytta boðleiðir, sem ég tel að nýtt skipurit muni gera. Ætlunin er að sigla umbótum hratt og vel í höfn, barnanna vegna,“ er haft eftir Ingu Sæland, sem tók við ráðuneytinu á dögunum. Breytingarnar fela í sér að skrifstofa ráðuneytisstjóra er lögð niður, með það í huga að færa framkvæmdalega ábyrgð nær málaflokkunum sjálfum, segir í tilkynningunni. Þá verða fimm teymi, teymisstjórar og teymisstjórnir, lögð niður. Eftirtaldir aðilar hafa verið fluttir í embætti skrifstofustjóra á nýjum skrifstofum: Skrifstofustjóri fjármála og innri þjónustu er Ásgeir Runólfsson sem var áður skrifstofustjóri fjárlaga og rekstrar í félags- og húsnæðismálaráðuneytinu. Hafþór Einarsson sem var skrifstofustjóri fjármála og rekstrar í mennta- og barnamálaráðuneytinu verður skrifstofustjóri fjárlaga og rekstrar í félags- og húsnæðismálaráðuneytinu. Skrifstofustjóri stjórnsýslu er Anna Tryggvadóttir sem var skrifstofustjóri stjórnsýslu, mats og eftirlits. Skrifstofustjóri barnamála er Halldóra Dröfn Gunnarsdóttir sem áður var skrifstofustjóri stefnumótunar og innleiðingar. Auglýst verður eftir skrifstofustjóra leikskóla, grunnskóla og íþróttamála á næstu dögum. Björk Óttarsdóttir mun leiða starf skrifstofunnar þar til skrifstofustjóri hefur verið skipaður. Auglýst verður eftir skrifstofustjóra framhaldsskóla og framhaldsfræðslu á næstu dögum. Ragnhildur Bolladóttir mun leiða starf skrifstofunnar þar til skrifstofustjóri hefur verið skipaður.
Skóla- og menntamál Ríkisstjórn Kristrúnar Frostadóttur Vinnumarkaður Stjórnsýsla Rekstur hins opinbera Mest lesið Hafi loks slíðrað sverðin Innlent Útgrátin og brotin frammi fyrir öllum Innlent Starfsmenn séu eltir heim og lífi þeirra ógnað Innlent „Það er bara mjög sorglegt“ Innlent Operation Matrix: Fjölmörg burðardýr fluttu inn minnst 100 kíló af kókaíni Fréttir Kvikumagnið undir Svartsengi orðið mun meira en áður Innlent Stjórnendur Sorpu slegnir Innlent Lét maka vinna fyrir sig í skólanum Innlent Samþykkja sölu á hundruðum Patriot-flauga Erlent Ráðherrar einnig látið sig vanta í atkvæðagreiðslur Innlent Fleiri fréttir Nota allar leiðir til þess að smygla fíkniefnum Samþykkja tillögu Ástráðs Ráðherrar einnig látið sig vanta í atkvæðagreiðslur Kvikumagnið undir Svartsengi orðið mun meira en áður Frestur til miðnættis að taka afstöðu til tillögu ríkissáttasemjara Umferðarslys í Bolungarvík Kennarar boðaðir á fund hjá sáttasemjara „Miður að við séum komin á þennan stað“ „Það er bara mjög sorglegt“ Skringileg túlkun á regnbogafánanum og aukið eftirlit í Grindavík Hafi loks slíðrað sverðin Ökumenn beðnir um að aka sérstaklega varlega Starfsmenn séu eltir heim og lífi þeirra ógnað Útgrátin og brotin frammi fyrir öllum Ósáttir sendlar bjóða Wolt fram aðstoð sína Lét maka vinna fyrir sig í skólanum Stjórnendur Sorpu slegnir Landsbankamálið gæti kostað ríkið hundruð milljóna Veltir fyrir sér hvort Viðskiptaráð haldi að Íslendingar séu hálfvitar Heimir Már biðst afsökunar á orðum sínum Wolt kærir hótanir til lögreglu Boðið upp á bólusetningar í apótekum í fyrsta sinn „Mínar skoðanir skipta í þessu máli litlu“ Höskuldur tapaði aftur fyrir Magnúsi „Hafðu kjarnorkuvopnin tilbúin“ Vill loka Stuðlum og opna nýtt úrræði Telur ekki að verið sé að víkja frá gildandi samningi Ætla að brenna rusl og skapa orku Kjarasamningar kennara í uppnámi Bein útsending: Peptíð, töfralausn eða heilsufarsleg áhætta? Sjá meira