Staðgöngumóðir „öruggasta leiðin“ til að stækka fjölskylduna Magnús Jochum Pálsson skrifar 21. janúar 2026 11:45 Meghan Trainor birti myndaröð af nýfæddri dótturinni og öðrum fjölskyldumeðlimum. Poppsöngkonan Meghan Trainor er orðin þriggja barna móðir eftir að staðgöngumóðir eignaðist stúlku. Trainor segir staðgöngumæðrun hafa verið öruggustu leiðina fyrir hjónin til að stækka fjölskyldu sína.
Staðgöngumóðirin eignaðist barnið þann 18. janúar síðastliðinn og hefur hún fengið nafnið Mikey Moon Trainor. Fyrir á hin 32 ára Trainor tvo syni með manni sínum, 33 ára Spy Kids-leikaranum Daryl Sabara, sem hún eignaðist sjálf. „Dóttir okkar, Mikey Moon Trainor, er loksins komin í heiminn þökk sé ótrúlegu, ofurmannlegu staðgöngumóður okkar,“ skrifaði Trainor í Instagram-færslu 20. janúar þar sem hún tilkynnti fregnirnar. View this post on Instagram A post shared by Meghan Trainor (@meghantrainor) „Við erum að eilífu þakklát öllum læknunum, hjúkrunarfræðingunum og fólkinu sem gerði þennan draum mögulegan. Við áttum endalaust af samtölum við læknana okkar á þessu ferðalagi og þetta var öruggasta leiðin fyrir okkur til að stækka fjölskylduna.“ Meghan Trainor, sem vakti fyrst athygli fyrir lagið „All About That Bass“ árið 2014, giftist leikaranum Daryl Sabara, sem er þekktastur fyrir leik sinn í Spy Kids, árið 2018 og eiga þau, auk nýfæddrar dótturinnar, synina Riley og Barry. Deilt hefur verið um lagalega, félagslega, læknisfræðilega og siðfræðilega þætti staðgöngumæðrunar sem er ekki lögleg á Íslandi. Þingsályktunartillögur og frumvörp um staðgöngumæðrun hafa reglulega komið fyrir þingið en ekki verið samþykkt.
Hollywood Bandaríkin Tímamót Barnalán Börn og uppeldi Mest lesið Grenjaði, veipaði og keyrði stanslaust Lífið Tólf barna móðir selur sveitadraum Lífið Gengst við slúðursögu um þungunarpróf Lífið Haribo-kastalar og hrekkjavökugleði í Bónus Lífið samstarf Stjörnuleikur Góa og Unnar bjargar Höggi Gagnrýni Góðgerðartreyja til styrktar Ingvari hönnuð af 66° Norður Tíska og hönnun Eignaðist barn, missti ömmu sína og erfði púðlusafnið Menning Ölvuðu Íslendingarnir í Kristjaníu stóðu upp úr Tónlist Konur æfi með líkamanum, ekki gegn honum Lífið Glee snýr aftur Bíó og sjónvarp Fleiri fréttir Grenjaði, veipaði og keyrði stanslaust Gengst við slúðursögu um þungunarpróf Konur æfi með líkamanum, ekki gegn honum Tólf barna móðir selur sveitadraum Rekinn úr körfuboltaliði FSU fyrir að detta í það Bólginn á höndunum skríðandi til Bessastaða Erfitt að geta ekki eytt peningunum í föt Kristófer Acox selur íbúð með potti í Urriðaholti Umdeildur hlaðvarpspabbi orðinn móðir Harry vill sættast við fjölskylduna Miðaldra kona þóttist vera sofandi í Epal Ranglega greind með MS-sjúkdóm Tískudrottning og fréttamaður selja í Vesturbæ Jennifer Lopez að hitta Ted Lasso-stjörnu Wahlberg segir flugmennina hafa bjargað lífi sínu Hvað veistu um… Nylon? Sahara Ray látin Bjarni Ben og Inga Lind gæddu sér á túnfiski Richard Riehle látinn Costanza á klakanum Gjörbreytti einbýli í Kópavoginum Píparapæja selur pent „penthouse“ Sló í brýnu milli poppara yfir Ratcliffe Diljá Mist á lausu Stjörnulífið: Hannes heppinn með Diego Crawford minnist sonarins Pattra og Brynjar slá sér upp Eignar Ingu Sæland plötutitilinn „Ég held að maður megi semja svona við móður sína” Hefur beðið í fjögur ár eftir að frændinn afpláni dóm sinn Sjá meira