Var á ráðstefnunni í Davos: „Fólk andaði kannski aðeins léttar“ Tómas Arnar Þorláksson skrifar 21. janúar 2026 19:10 Ingibjörg Þórðardóttir, er fyrrverandi fréttastjóri hjá BBC og CNN en vinnur nú að málefnum hafsins. AP/Gian Ehrenzeller/CNN „Ég held að það sem að fólk hafi aðallega verið að ræða um eftir þessa ræðu er þessi ruglingur með Ísland og Grænland. Og hvort hann sé að meina Grænland þegar hann segir Ísland eða hvort að Ísland þurfi að hafa áhyggjur af því sem hann er að segja. Ég held að það sé ekki alveg á hreinu.“
Þetta segir Ingibjörg Þórðardóttir, fyrrverandi fréttastjóri hjá BBC og CNN, í samtali við fréttastofu en hún er stödd á Alþjóðaefnahagsráðstefnunni (World Economic Forum) í Davos í Sviss þar sem Donald Trump Bandaríkjaforseti fór mikinn í dag. Ingibjörg er á ráðstefnunni til að vinna að málefnum hafsins en það er einmitt kjarni og meginumfjöllunarefni ráðstefnunnar í ár. Hún segir viðveru Trump ekki hafa grafið undan þeirri vinnu þó að hann hafi vissulega fengið mikla athygli, eins og eðlilegt sé. „Það var áhugavert fyrir okkur sem erum að vinna í ákveðnum málum eins og ég sem er að vinna í hafverndunarmálum, að þá tók maður ekkert eftir þessu strax. Ef maður var ekki inni í salnum, þá var enginn mikið að pæla í þessu sem hann hafði að segja. Síðan þegar það fóru að berast fréttir af því sem hann hafði sagt þá stoppaði fólk aðeins og fór að spá í hvað væri í gangi.“ Á ráðstefnunni, þar sem margir þjóðarleiðtogar heims eru staddir, hélt Trump langa ræðu og ræddi málefni Grænlands sem hafa tekið mikið pláss í umfjöllun síðustu daga. Hann sagði til að mynda að hann myndi ekki nýta hervald til að komast yfir Grænland. Hann tilkynnti um helgina að hann myndi leggja tíu prósenta toll á átta þjóðir Atlantshafsbandslagsins sem hafa sent mannafla til Grænlands. Sá tollur mun hækka í 25 prósent þann fyrsta júní ef Bandaríkin verða ekki búin að innlima Grænland fyrir þann tíma. Ingibjörg segir það hafa verið ákveðinn létti að heyra forsetann segjast ekki ætla nota hervald. „Ég held að flestir séu mjög fegnir því að hann hafi sagt að það yrði ekki notaður hernaður á Grænlandi. Ég veit ekki hvort að spennustigið hafi beint minnkað. Kannski var fólk bara í afneitun með það að hann myndi nokkurn tímann gera það. Þegar það kom staðfesting á því þá gat fólk kannski andað aðeins léttar,“ segir hún og tekur fram að umræðan um Grænland hafi ekki borið mikið á góma á ráðstefnunni fyrr en að Trump mætti á svæðið. Hún segir ruglinginn varðandi Ísland og Grænland hafa vakið mesta athygli gesta á ráðstefnunni sem hún var í kringum. Í ávarpi sínu nefndi Trump Ísland á nafn nokkru sinnum og virðist hafa ruglast á eyjunum tveimur. „Þegar hann byrjar að tala um Ísland þá eru fyrstu viðbrögð hjá mér að hann sé að ruglast á löndum. Síðan hélt hann áfram að segja það. Ég held það hafi verið fjórum eða fimm sinnum sem hann talaði um Ísland. Ég tók þessu ekkert mjög alvarlega. Ég er á þeirri skoðun að hann sé að rugla og ætli ekkert að falast eftir Íslandi. Maður getur aldrei ekki tekið mark á Trump. Ég lærði það nú í fjölmiðlunum að maður verður alltaf að hafa varann á þegar hann er að tala. Ég reikna með að það verði gerð einhvers konar leiðrétting á þessu. Ég vonast til þess að ríkisstjórn Bandaríkjanna komi með leiðréttingu á þessu.“
Bandaríkin Donald Trump Hótanir Bandaríkjanna vegna Grænlands Sviss Mest lesið Sjö sakaðir um að nauðga samnemanda klukkustundum saman Erlent Mannasaur og hanskar um allar koppagrundir Innlent Tók stúlku kverkataki og nauðgaði Innlent Ekið á fimm ára barn á hjóli Innlent Farþegi handtekinn í Hollandi vegna skemmdarverka Innlent Gætir fengið allt rétt á prófi en átta í einkunn Innlent Svindlaði ítrekað í sjálfsafgreiðslu og fékk dóm Innlent Furðar sig á tali um taktík með gjaldahækkanir Innlent „Sorglegt að þetta sé staðan“ Innlent Sækja fram gegn Rússum í Dónetsk Erlent Fleiri fréttir Hlýtur ríflega sjötíu svipuhögg fyrir að koma fram án höfuðslæðu Sækja fram gegn Rússum í Dónetsk Hryðjuverkamönnunum grunuðu sleppt úr haldi Starship á sporbraut í fyrsta sinn Allir mennirnir breskir ríkisborgarar Spurði Xi hvort hann vildi kaupa bandarísk vopn Sjö sakaðir um að nauðga samnemanda klukkustundum saman Vilja formlega afsökun frá Selenskí Trump vill fleiri bensínháka á göturnar Segist hafa gefist upp á stjórnarmyndun í Svíþjóð Rannsaka möguleg tengsl Íran við meinta hryðjuverkamenn Aðeins samningaviðræður geti leyst deiluna Forseti Serbíu segir af sér í skugga mótmæla Tvö lík fundin eftir að snjóðflóð lenti á búðum Yfirgefa heimili sín og flykkjast í neyðarskýlin Meintu hryðjuverkamennirnir lengi undir eftirliti Fimm handteknir og grunaðir um skipulagningu hryðjuverks Vill gera á Vesturbakkanum það sem gert var á Gasa Þúsundir tálma göngu Óraníureglunnar Hátt í þrjátíu drepnir í tveimur skotárásum Heimili rýmd nærri herflugstöð Skrúðgangan aftur leyfð þrjátíu árum eftir hryllinginn Rafflugvélin jafnar stærð innanlandsvéla Icelandair „Ég hafna samningi þeirra“ Nýr sendiherra er Búi og kannast ekki við „þjóðarmorð á hvítum“ Allt ætlaði um koll að keyra þegar grímuskylda var afnumin Gríðarlegur fjöldi fagnaði páfanum Sex látnir eftir að íbúðarbygging hrundi Stofna „samskiptarás“ til að meðhöndla gervigreind Sex ára stúlka setti heimsmet Sjá meira