Handbolti

Bein út­sending: Upp­fært spálíkan skömmu fyrir stór­leik Ís­lands á EM

Aron Guðmundsson skrifar
Ísland mætir Króatíu í fyrsta leik sínum í milliriðlum EM í handbolta klukkan hálf þrjú í dag.
Ísland mætir Króatíu í fyrsta leik sínum í milliriðlum EM í handbolta klukkan hálf þrjú í dag. Vísir/EPA

Strákarnir okkar mæta Króötum Dags Sigurðssonar í mikilvægum fyrsta leik beggja liða í milliriðlum EM í handbolta í dag. Dr. Peter O‘Donoghue, prófessors við íþróttafræðideild HR, hefur uppfært spálíkan sitt fyrir keppni í milliriðlum og verður það opinberað klukkan hálf eitt.

Fyrir keppni á EM voru leikir mótsins keyrðir eitt hundrað þúsund sinnum í gegnum spálíkan Peters sem hefur, undanfarin tvö ár, spáð rétt fyrir um gengi Íslands á stórmótum í handbolta. 

Var niðurstaðan sú að líklegast þætti að Ísland myndi enda í einu af sætum sjö til tólf á mótinu. Það er enn raunhæfur möguleiki en Strákarnir okkar hafa unnið alla leiki sína á mótinu til þessa, tóku tvö stig með sér í milliriðil og spila nú þýðingarmikinn leik gegn Króötum Dags Sigurðssonar klukkan hálf þrjú í dag. 

Líkt og í íslenska veðrinu hafa verið miklar sviptingar í nýja spálíkaninu en Peter uppfærði það seint í gærkvöldi eftir úrslitin á fyrsta leikdegi milliriðla Evrópumótsins.

Í HR-stofunni sem Háskólinn í Reykjavík stendur fyrir munu Kristján Halldórsson, kennari við íþróttafræðideild HR, Patrekur Jóhannesson, fyrrverandi landsliðsmaður í handbolta, og Arnar Pétursson, landsliðsþjálfari kvenna í handbolta, ræða málin, spá í spilin og fara yfir spálíkan Dr. Peter O‘Donoghue, prófessors við íþróttafræðideild HR.

Þá bætist í hópinn Chris (Christopher Ian Curtis) dósent við íþróttafræðideild sem hefur starfað bæði í fræðasamfélaginu í um áratug og innan íþróttaheimsins síðustu 15 ár og sérhæft sig þar í næringarfræði íþróttafólks. Hann mun fjalla um mikilvægi næringar fyrir íþróttafólk þegar leikið er svona þétt.

Beina útsendingu frá HR-stofunni má finna hér fyrir neðan: 


Tengdar fréttir

„Virkar eins og maður sé að væla“

Aukinn hvíldartími strákanna okkar í handboltalandsliðinu gæti skipt sköpum er þeir mæta Króötum síðdegis í dag, að sögn Dags Sigurðssonar, þjálfara króatíska liðsins.

Besta sætið um sóknarleikinn: „Að mínu mati dugar þetta ekki til“

Íslenska karlalandsliðið í handbolta hefur oft verið meira sannfærandi í sóknarleiknum en í sigrinum mikilvæga á móti Ungverjum í lokaleik riðilsins á EM í handbolta. Eftir leikinn velti Besta sætið því fyrir sér hvort við þurfum að hafa áhyggjur af sókninni í framhaldinu á mótinu.

Elvar vildi ekki stela fjölskyldubílnum

Elvar Ásgeirsson var kallaður inn í íslenska landsliðið í gær. Landsliðsþjálfararnir ákvaðu að hóa í Mosfellinginn eftir að Elvar Örn Jónsson meiddist.

„Mig kitlar svakalega í puttana“

Þorsteinn Leó Gunnarsson var á meðal hressari manna í Malmö í dag eftir að hafa tekið fullan þátt í æfingu í fyrsta sinn í tíu vikur.

„Ísland í betra formi en við höfum sýnt“

Dagur Sigurðsson býst við strembnum leik er hans menn í króatíska landsliðinu mæta Íslandi í fyrsta leik í milliriðli á EM á morgun. Sterka menn vanti í bæði lið.

Óðinn á eitt flottasta mark EM

Handknattleikssamband Evrópu hefur nú valið fimm flottustu mörkin sem skoruð voru í riðlakeppni Evrópumótsins, í Svíþjóð, Danmörku og Noregi. Eitt markanna er íslenskt.

„Ég er bara Króati á morgun“

Dagur Sigurðsson segir ávallt sérstakt að mæta Íslandi en hann mun stýra Króatíu gegn strákunum okkar á EM á morgun.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×