„Eitt besta lið í heimi“ Valur Páll Eiríksson skrifar 25. janúar 2026 08:00 Snorri Steinn var kátur á æfingu landsliðsins í gær. Vísir/Vilhelm Snorri Steinn Guðjónsson segir ljóst að þörf sé á afar góðri frammistöðu frá íslenska landsliðinu ætli það sér að hafa betur gegn Svíum í Malmö í dag. „
Það er alltaf erfitt að tapa og maður er svekktur en getur ekki farið of langt niður. Við undirbúum næsta leik og fókusinn er á Svíana,“ sagði Snorri Steinn þegar hann var tekinn tali fyrir æfingu íslenska liðsins í keppnishöllinni í Malmö í gær. Það er því nýr dagur og ný tækifæri. Næsta verkefni er að fagna sigri gegn Svíum í dag í fyrsta úrslitaleik Íslands af þremur, ætli liðið sér í undanúrslit. „Þannig virkar stórmótabransinn í handboltanum. Þú hefur lítinn tíma og við þurfum að einbeita okkur að næsta verkefni. Við erum búnir að fara yfir leikinn í gær og það er margt þar sem er svakalega svekkjandi. Sérstaklega þegar leikurinn tapast með einu marki er auðveldlega hægt að taka til hluti sem við hefðum getað lagað eða gert aðeins betur. En við græðum lítið á því núna,“ segir Snorri og bætir við: „Við þurfum bara að bretta upp ermar. Við erum að fara að mæta einu besta liði í heimi sem hefur verið frábært í síðustu leikjum og það á þeirra heimavelli. Það segir sig sjálft að það er alvöru verkefni.“ Ekki orðið var við gagnrýnina Landsliðsfyrirliðinn Ómar Ingi Magnússon hefur sætt eilítilli gagnrýni af sérfræðingum heima fyrir vegna lítils markaskors úr opnum leik. Snorri segist lítið geta tjáð sig um gagnrýni sem hann þekki ekki til. „Ég get ekki kommentað á eitthvað sem ég hef hvorki lesið né heyrt. Ég veit ekki alveg að hverju hún snýr. Ég hef bara verið ánægður með hann. Hann eins og aðrir geta alveg gert betur en það er erfitt fyrir mig að tjá mig um eitthvað sem ég hef ekki séð eða lesið,“ segir Snorri Steinn. En kemur til greina að hlutverk Viggós Kristjánssonar verði stærra á kostnað Ómars? „Viggó er bara frábær. Hann hefur reynst okkur mjög vel. Ef ég tek leikinn í gær, þá var það sem við lögðum upp með sóknarlega að virka og gekk vel. Það var góður taktur í Janusi, Gísla, Ómari og Hauki þegar hann kom. Það þarf lítið út af að bregða gegn Króötum sóknarlega til að maður lendi í ákveðnu öngstræti. Mér fannst við finna lausnirnar þar og þess vegna hélt ég Ómari inni. En Viggó kemur eins og alltaf mjög vel til greina,“ segir Snorri. Gríðarlega sterkur andstæðingur Sænska landsliðið er meðal þeirra betri í heimi, líkt og Snorri nefnir að ofan. Verkefnið er ærið, að ætla að vinna Svía í Malmö, en búast má við töluvert frábrugðnu verkefni frá leiknum við Króata. „Þetta sænska lið er allt öðruvísi en Króatarnir með öðruvísi áherslur. En eins og Króatarnir eru þeir frábærir í því sem þeir gera. Bæði sóknarlega og varnarlega, frábært hraðaupphlaupslið sem gerir ótrúlega fáa tæknifeila. Svo það er rosa margt sem þarf að varast á móti þeim,“ segir Snorri. En mun stemningin og heimavöllurinn skipta miklu máli á morgun? „Það er yfirleitt mjög gaman að spila á móti heimaþjóðinni. En ég er ekkert viss um að við séum með frábæra tölfræði. Óskar Ófeigur fer í að skoða það fyrir okkur. Yfirleitt er það gaman í troðfullu húsi og mikilli stemningu. Þú pælir ekkert svakalega í því þegar á hólminn er komið. Ég væri alveg til í að allir væru á okkar bandi en ég held það verði ekki þannig á morgun,“ segir Snorri Steinn léttur að endingu.
Landslið karla í handbolta EM karla í handbolta 2026 Mest lesið Víkingur Reykjavík - Breiðablik | Besta deildin hefst með stórleik Íslenski boltinn Björgvins Halldórssonar minnst með einnar mínútu þögn Handbolti Grindavík - Njarðvík 2-1 | Deildarmeistararnir taka forystuna í einvíginu Körfubolti Leik lokið: Stjarnan - KR 104-80 | Stjarnan setti KR á grillið í seinni hálfleik Körfubolti Haukar - FH | Á heimavelli en undir í baráttunni um Hafnarfjörð Handbolti „Galið“ að Stjörnumenn spili sig sem fórnarlömb Körfubolti „Margir sem töldu þetta vera galin skipti fyrir rúmu ári síðan“ Handbolti Sendu Tottenham niður í fallsæti með stórsigri Enski boltinn „Alls ekki áhyggjuefni“ Íslenski boltinn Sjáðu upphitunarþátt Stúkunnar í heild Íslenski boltinn Fleiri fréttir „Þetta er ákveðin skák“ Haukar - FH | Á heimavelli en undir í baráttunni um Hafnarfjörð Björgvins Halldórssonar minnst með einnar mínútu þögn „Margir sem töldu þetta vera galin skipti fyrir rúmu ári síðan“ „Heyrum varla í hvor öðrum“ Svartfellingar gerðu stelpunum okkar góðan greiða Blær situr sem límdur við botninn Arnór með bakið upp við vegg en Einar fagnar KA - Valur 30-33 | Svöruðu fyrir sig en tókst ekki að landa sigri „Ég vildi óska þess að ég hefði ekki verið svona mikið veik“ Sagt upp störfum hjá Aftureldingu Stjarnan með sterka yfirlýsingu í fyrsta leik Titilvörnin hefst vel hjá Óðni Janus fagnaði jafntefli og mætir Magdeburg næst Uppgjörið: Færeyjar - Ísland 35-30 | Valtað yfir stelpurnar okkar í Þórshöfn „Allt of margir leikmenn sem þurfa að stíga upp“ „Þetta er margfræg klisja“ „Tel mig vera rosalegan stemningskarl“ Uppgjörið: FH - Haukar 27-21 | Hafnarfjörður er hvítur í bili Íslendingaliðið áfram eftir frábæran sigur Stórleikur Kristjáns dugði skammt Uppgjörið: Valur - KA 39-21 | Algjör slátrun á Hlíðarenda „Þeir refsa fyrir öll mistök og þeir refsuðu vel í dag“ Viggó fer til Flensburg Kraftaverkið í Barcelona: „Næst er ég undir öllu Haukaliðinu“ Gísli með sjö stoðsendingar þegar Magdeburg endurheimti sjö stiga forskot Stórleikur Hauks dugði ekki til sigurs Goðsögn hleður Guðjón Val og Gummersbach lofi Díana Dögg innsiglaði deildarmeistaratitil í toppslag Stjarnan og Hörður berjast um sæti í Olís deildinni Sjá meira