Van Dijk segir að það hafi „klárlega verið brotið á sér“ í sigurmarkinu Óskar Ófeigur Jónsson skrifar 24. janúar 2026 20:03 Virgil van Dijk, fyrirliði Liverpool, ræðir við Michael Salisbury dómara í leiknum í kvöld. Getty/Catherine Ivill Liverpool var búið að vinna sig upp úr 2-0 holu á erfiðum útivelli en fékk á sig mark í uppbótartíma og tapaði 3-2 á móti Bournemouth í ensku úrvalsdeildinni í kvöld. Liðið hafði ekki tapað síðan í nóvember en hefur enn ekki unnið deildarleik á árinu 2026.
Fyrirliðinn Virgil van Dijk var líka niðurdreginn þegar hann kom í viðtal eftir leikinn. Mjög erfitt að kyngja því „Að fá á sig þetta mark á síðustu mínútu leiksins, það er mjög erfitt að kyngja því,“ segir Virgil van Dijk við Sky Sports. „Við lögðum mikið á okkur, sérstaklega í seinni hálfleik, til að komast aftur inn í leikinn. Að fá á sig mark svona seint eru mikil vonbrigði,“ sagði Van Dijk. Hann segir að það hafi „klárlega verið brotið á sér“ í sigurmarki Bournemouth. Varðandi fyrsta markið þeirra segir hann að vindurinn hafi gert það erfitt að meta boltann inn í teiginn og gaf í skyn að Liverpool hefði kannski átt að sparka boltanum út af til að fá varamanninn inn á. Dómarinn og VAR dæmdu ekki neitt Van Dijk sást ræða við dómarann eftir seint mark Bournemouth og útskýrði það fyrir okkur: „Það sem ég fann á vellinum var að það var klárlega brotið á mér en dómarinn og VAR dæmdu ekki neitt. Ég get staðið hér og sagt að þetta hefði ekki átt að vera mark en það var dæmt, svo það er bara þannig,“ sagði Van Dijk. Bournemouth skoraði tvö mörk á sjö mínútum í fyrri hálfleiknum. „Það var erfitt að meta fyrra markið, vindurinn var mjög erfiður svo það var flókið. Að fá það mark á sig er ekki stórmál en það er ekki gott. Að fá á sig tvö mörk á stuttum tíma er alls ekki gott. Markið sem við skoruðum rétt fyrir hálfleik var virkilega mikilvægt fyrir skriðþungann í seinni hálfleik,“ sagði Van Dijk sem skoraði það mark sjálfur. Þetta innkast kostaði okkur sigurinn „Á endanum kostaði þetta innkast okkur sigurinn. Eftir leik og á svona augnabliki er auðvelt að segja að hann hefði átt að gera þetta, hann hefði átt að gera hitt og ég veit að það er það sem mun gerast en við ákváðum að halda boltanum og á endanum náðu þeir honum. Það er aldrei góð tilfinning að tapa, sérstaklega sem leikmaður Liverpool,“ sagði Van Dijk. „Á þessu tímabili erum við að reyna að finna stöðugleika. Ég held að það sé engin spurning um samheldni okkar en við þurfum enn að finna stöðugleikann. Við fengum mikið lof fyrir frammistöðu okkar [gegn Marseille] og svo tapar maður leik eins og í dag og þá snýst heimurinn á hvolf,“ sagði Van Dijk.
Enski boltinn Liverpool FC Tengdar fréttir „Sigurmark undir lokin er fullkomið fyrir okkur“ Það var gríðarlegur fögnuður hjá Bournemouth-mönnum í kvöld eftir að þeir tryggðu sér dramatískan 3-2 sigur á Liverpool með marki í uppbótartíma. 24. janúar 2026 19:51 Liverpool-vandræðin halda áfram og Bournemouth með sigurmark í blálokin Liverpool tapaði sínum fyrsta deildarleik síðan í nóvember þegar liðið heimsótti Bournemouth á suðurströndina í ensku úrvalsdeildinni í dag. 24. janúar 2026 19:35 Mest lesið Blóðbað í Köben: „Þetta var helvítis bras“ Sport Gripinn í PSG-treyju í skrúðgöngu Arsenal Enski boltinn Missir af HM í fótbolta vegna samfélagsmiðlafærslu Fótbolti Draumurinn ekki dáinn hjá Bergrós Sport Dalglish greindi óvart frá baráttu sinni við krabbamein Enski boltinn Ver val á meintum kynferðisbrotamanni Fótbolti Fékk ekki að ferðast með landsliðinu til Bandaríkjanna Fótbolti Svíar tala um valdaskipti í skandinavískum íþróttum Fótbolti Steph Curry gerir risasamning við kínverskt íþróttamerki Körfubolti Bodö/Glimt græddi yfir sex milljarða á Evrópuævintýrinu Fótbolti Fleiri fréttir Segir að Real Madrid sé með munnlegt samkomulag við Konaté Rodri ætlar ekki að ræða framtíð sína fyrr en eftir HM Fer frá Fulham og tekur við Benfica Dalglish greindi óvart frá baráttu sinni við krabbamein „Öfundsýki alls staðar“ „Ef þú gerir þetta aftur drepurðu mig“ Hefja formlegar viðræður við Iraola Gripinn í PSG-treyju í skrúðgöngu Arsenal Stóru liðin á eftir Kroupi Óvíst hvort Arsenal-maðurinn geti verið með á HM Keegan með fjórða stigs krabbamein Slot segist skilja Liverpool eftir nákvæmlega þar sem liðið á heima Milner hættur í fótbolta Aðeins framúrskarandi stjóri hefði getað lagað Liverpool Taka gleði sína á ný í meistararútu í London Van Dijk sendi Slot kveðju Arftaki Slot hjá Liverpool fundinn Slot rekinn frá Liverpool Tottenham bætir í vörnina Sjáðu allar bestu stoðsendingar tímabilsins í enska boltanum Vilja ráða Iraola eða Lampard Vann tvo Evróputitla sama vorið Í keppni sem þeim var vísað út úr: „Ævintýri sem átti að enda svona“ Barcelona búið að landa Gordon Ederson nálgast Manchester United Stórlið slást um Gordon Siggi Bond með besta stjörnuliðið en Ragnar hætti snemma Tottenham leitar að rót meiðslavandans Nuno verður áfram stjóri West Ham Arteta valinn þjálfari ársins í fyrsta sinn Sjá meira
„Sigurmark undir lokin er fullkomið fyrir okkur“ Það var gríðarlegur fögnuður hjá Bournemouth-mönnum í kvöld eftir að þeir tryggðu sér dramatískan 3-2 sigur á Liverpool með marki í uppbótartíma. 24. janúar 2026 19:51
Liverpool-vandræðin halda áfram og Bournemouth með sigurmark í blálokin Liverpool tapaði sínum fyrsta deildarleik síðan í nóvember þegar liðið heimsótti Bournemouth á suðurströndina í ensku úrvalsdeildinni í dag. 24. janúar 2026 19:35