Skýrsla Vals: Vel nýttur veikindadagur Valur Páll Eiríksson skrifar 25. janúar 2026 22:30 Það er spurning hversu margir fóru að ráðum Viktors og tóku veikindadag til að vera í Malmö. Það er eflaust fyrirgefið eftir svona upplifun, þó höfundur greinar hafi farið á mis við hana, vegna veikinda. Vísir/Vilhelm Vá. Þetta var leikur í lagi. Það er eiginlega ótrúlegt að skrifa það en Ísland vann átta marka sigur á Svíum í kvöld. Það á þeirra heimavelli, og spilandi þeirra leik.
Annað sem er vart trúlegt er að ég hafi ekki verið í höllinni. Ég ligg veikur á hótelinu í Malmö og það liggur við að ég grenji í koddann yfir því að hafa misst af þessu. Það væri eflaust niðurstaðan ef þessir strákar væru ekki svona geggjaðir. Það er væri áhugavert að vita hversu margir tóku veikindadag í vinnunni fyrir Viktor og mættu hérna út. Talandi fyrir sjálfan mig var þetta sannarlega vel nýttur veikindadagur. Maður hefur beðið eftir góðri byrjun strákanna í leik á mótinu og það kom loks í dag. Eftir að hafa verið með tvær löglegar stöðvanir fyrsta korterið gegn Króötum voru þær sjö eftir fimmtán mínútur í dag. Svíar höfðu tapað 13 boltum allt mótið fyrir kvöldið, en þeir voru orðnir 17 talsins eftir tólf mínútur af leiknum. Það gekk allt upp í þessum leik. Ef einhver gaf eftir, meiddist eða fékk tvær mínútur stigu aðrir upp. Með betri vörn og vítanýtingu hefðum við unnið Króata og fengum sannarlega bæði í kvöld. Elliði og Ýmir með 20 stöðvanir samanlagt. Janus með átta í bakverðinum og svo var heljarinnar hundur í Hauki eftir höfuðhöggið – ekki skemmdi þegar hann lét Lagergren heyra það. Viggó á vítalínunni sá svalasti í höllinni í kvöld en Gísli, Bjarki Már og hinir ekki undanteknir. Ómar Ingi spilaði þá sínar bestu mínútur á mótinu eftir að Viggó meiddist. Maður fékk kunnuglegan hroll þegar Svíarnir minnkuðu muninn í eitt mark á mettíma. Maður velti fyrir sér hvort ekki hefði átt að hægja á, slaka, halda forystunni. Hvort það myndi koma í bakið á mönnum – að Ísland ætlaði að kasta þessu frá sér. Þá kom upp spurningin: Eru þetta menn eða mýs? Svarið: Þetta eru menn. Magnaðir menn. Við héldum bara okkar plani. Keyrðum hraðann upp, héldum áfram að hamra járnið og unnum sveitta Svía í þeirra leik, á þeirra heimavelli. Það var dúndrað í dvalarheimilinu í Malmö og sænskir helgarpabbar fóru úr höllinni áður en leikurinn kláraðist. Íslendingar sem töldu á við um einn fjórða af fjölda Svía tóku yfir stúkuna, líkt og strákarnir tóku yfir á vellinum. Strákarnir eru komnir aftur í lykilstöðu hvað undanúrslit varðar en þá taka við tveir úrslitaleikir. Sviss á þriðjudag og Slóvenía á miðvikudag. Ef Ísland spilar svona er ekki að spyrja að niðurstöðunni þar.
EM karla í handbolta 2026 Landslið karla í handbolta Mest lesið Bein útsending: Landsliðakeppni í Bakgarðshlaupi Sport Mögnuð Mari nýtti hverja einustu sekúndu Sport Kane brást illa við gríni Valsarans Körfubolti „Þetta var allt of mikið“ Fótbolti „Þess vegna hafði ég mjög miklar áhyggjur fyrir þetta hlaup“ Sport Fékk innilegt knús alla pásuna: „Höldum áfram þessari helvítis vitleysu“ Sport Leik lokið: FH - Þróttur 0-4 | Titilvonir FH-inga í tætlum Íslenski boltinn Sjáðu mark Sveindísar sem fer á kostum í Bandaríkjunum Fótbolti Tár féllu í Bakgarðshlaupinu Sport FH-ingar biðla til bareigenda, presta og trúarleiðtoga Íslenski boltinn Fleiri fréttir Reynir markahæstur í sigri Melsungen Kærkominn sigur KA/Þór FH gekk frá Fram í seinni hálfleik Sandra með tíu í sætum sigri á Fram en Haukar halda flugi Níu mörk Jóhannesar ekki nóg Finnur til með Arnari Sætur sigur Selfoss og Gunnar með fullkominn leik KA-menn brotlentu í Garðabæ Tólf marka Dagur kom ÍBV á rétta braut „Ekkert sem ég missti svefn yfir“ Snorri Steinn valdi tuttugu leikmenn fyrir komandi verkefni Átján ára með fjórtán mörk og Haukar fljúga áfram Afturelding í annað sæti Stórleikur Hauks í sáru tapi og Andri náði ekki að mæta pabba Úr leik þrátt fyrir sjö mörk Einars Braga Gísli markahæstur og Bjarki fagnaði stórsigri Nýr styrktaraðili dönsku úrvalsdeildarinnar í handbolta umdeildur Arnór Snær: „Þvílíka veislan“ FH þurfti að þola annan skell í Portúgal Valur - Tatabánya 38-34 | Annar frábær Evrópusigur Sá besti óvænt orðaður við brottför „Það rignir ekkert inn peningum“ Mál á borði lögreglu eftir leik hjá liði Donna Benedikt birtir mynd frá slysstað HK sótti fyrsta sigurinn með einu marki Flautumark í sigri Viggós á Reyni Þungt tap Íslendingaliðsins Viktor öflugur í öruggum sigri Enn með fullt hús ÍBV vann toppslaginn Sjá meira