Sænska goðsögnin: Þeir hafa ekki viljann sem Íslendingar hafa Óskar Ófeigur Jónsson skrifar 25. janúar 2026 20:11 Elliði Snær Viðarsson liggur í gólfinu eftir að hafa skorað hjá Svíum. Hann náði ellefu löglegum stöðvunum í leiknum. Vísir/Vilhelm Einn fremsti handboltamaðurinn í sögu Svía var allt en ánægður með frammistöðu sænska landsliðsins í skellinum á móti strákunum okkar í kvöld.
Magnus Wislander vann ófáa titla með sænska landsliðinu og var fyrirliði sænska landsliðsins sem fór oft illa með íslenska landsliðið á stórmótum. Wislander starfar nú sem handboltasérfræðingur og var að tjá sig um átta marka skellinn á móti Íslandi í Malmö í kvöld. „Síðustu tíu mínúturnar voru algjört hrun,“ sagði Magnus Wislander á Radiosporten. Expressen sagði frá. „Þetta er komið í hausinn á leikmönnunum. Taugaveiklunin breiðist út um allt núna,“ sagði Martin Frändesjö í útsendingu hjá hinni sænsku útgáfu af Viaplay. Á sama tíma setti Magnus Wislander spurningamerki við hugarfar Svía þegar leikaðferðin bregst. „Fyrir Svía snýst þetta um að spila aðeins meira með höfðinu. Þeir hafa ekki viljann sem Íslendingar hafa meira af í augnablikinu,“ sagði Wislander. „Það er virkilega niðurdrepandi að Ísland leiði með sex mörkum,“ sagði Wislander. Magnus Wislander skorar í síðasta landsleik sínum gegn Íslandi sem var á EM 2002.vísir/epa Byrjun seinni hálfleiks var alls ekki jafn niðurdrepandi en það hjálpaði lítið þegar Ísland valtaði yfir Svíþjóð á lokamínútunum. „Síðustu tíu mínúturnar er algjört hrun hjá sænska liðinu. Ekkert virkaði í sókninni,“ sagði Wislander í útsendingunni. Vonbrigðin voru áþreifanleg hjá sænska liðinu og það leit út fyrir að allur hópurinn og sérfræðingarnir líka væru í sjokki eftir þetta óvænta stóra tap. Svíar voru á heimavelli og búnir að finna fyrstu fjóra leiki sína sannfærandi í mótinu. Þeir lentu hins vegar á íslenskum vegg, íslenska geðveikin var mætt en með skynsemina og útsjónarsemina að leiðarljósi. Fyrir vikið komust Svíar ekkert áleiðis og töpuðu fyrir Íslandi í fyrsta sinn í sjö ár. Magnus Wislander lék alls 386 landsleiki fyrir Svía frá 1985 til 2002. Svíar unnu ellefu marka sigur á Íslendingum í síðasta landsleik hans á móti íslenska landsliðinu. Wislander vann alls þrettán verðlaun með sænska landsliðinu á stórmótum, þar af fjóra Evrópumeistaratitla og tvo heimsmeistaratitla.
EM karla í handbolta 2026 Landslið karla í handbolta Mest lesið Bein útsending: Landsliðakeppni í Bakgarðshlaupi Sport Mögnuð Mari nýtti hverja einustu sekúndu Sport „Þetta var allt of mikið“ Fótbolti Kane brást illa við gríni Valsarans Körfubolti Sjáðu mark Sveindísar sem fer á kostum í Bandaríkjunum Fótbolti Tár féllu í Bakgarðshlaupinu Sport FH-ingar biðla til bareigenda, presta og trúarleiðtoga Íslenski boltinn Sjáðu mörkin: KR tryggði annað sætið og fallbaráttan tók óvænta stefnu Íslenski boltinn Nokkuð viss um að Íslandsmetið verði slegið Sport „Falleg stund að fá að keppa á móti litla bróður“ Fótbolti Fleiri fréttir Reynir markahæstur í sigri Melsungen Kærkominn sigur KA/Þór FH gekk frá Fram í seinni hálfleik Sandra með tíu í sætum sigri á Fram en Haukar halda flugi Níu mörk Jóhannesar ekki nóg Finnur til með Arnari Sætur sigur Selfoss og Gunnar með fullkominn leik KA-menn brotlentu í Garðabæ Tólf marka Dagur kom ÍBV á rétta braut „Ekkert sem ég missti svefn yfir“ Snorri Steinn valdi tuttugu leikmenn fyrir komandi verkefni Átján ára með fjórtán mörk og Haukar fljúga áfram Afturelding í annað sæti Stórleikur Hauks í sáru tapi og Andri náði ekki að mæta pabba Úr leik þrátt fyrir sjö mörk Einars Braga Gísli markahæstur og Bjarki fagnaði stórsigri Nýr styrktaraðili dönsku úrvalsdeildarinnar í handbolta umdeildur Arnór Snær: „Þvílíka veislan“ FH þurfti að þola annan skell í Portúgal Valur - Tatabánya 38-34 | Annar frábær Evrópusigur Sá besti óvænt orðaður við brottför „Það rignir ekkert inn peningum“ Mál á borði lögreglu eftir leik hjá liði Donna Benedikt birtir mynd frá slysstað HK sótti fyrsta sigurinn með einu marki Flautumark í sigri Viggós á Reyni Þungt tap Íslendingaliðsins Viktor öflugur í öruggum sigri Enn með fullt hús ÍBV vann toppslaginn Sjá meira