Óvinur Íslands: „Aldrei stríða heilu landi“ Sindri Sverrisson skrifar 26. janúar 2026 07:32 Bjarki Már Elísson og félagar lækkuðu rostann í kokhraustum Svíum með ótrúlegri frammistöðu í Malmö í gær. VÍSIR/VILHELM Sænski handboltaþjálfarinn Andreas Stockenberg hefur átt í vök að verjast á samfélagsmiðlum eftir að hann hraunaði yfir íslenska landsliðið sem svo valtaði yfir það sænska á EM í gær. „
Aldrei stríða heilu landi!!“ skrifaði Stockenberg á Twitter í gær, eftir átta marka stórsigur Íslands gegn Svíþjóð sem hann hafði engan veginn séð fyrir. Reta aldrig ett helt land!!— Andreas Stockenberg (@AndreasStockenb) January 25, 2026 Stockenberg hafði nefnilega talað illa um íslenska liðið þegar það tapaði með eins marks mun gegn Króatíu á föstudaginn og lýst því sem skelfilegu liði sem ætti ekki séns í Svíþjóð. Síðan þá hefur Stockenberg, sem þjálfar hjá Önnered í heimalandinu, að eigin sögn eignast 1.100 nýja, íslenska fylgjendur sem virðast hafa verið duglegir að skjóta á hann og reyndar einnig kallað hann illum nöfnum. „Svíþjóð var jafn meinlaus og klaufaleg og Ísland á móti Króatíu. Þetta gengur ekki…“ skrifaði Stockenberg eftir leikinn í gær. Þar sagði hann Ísland hafa verið eins og nýtt lið og lært af því sem hann hefði skrifað. Alltaf líkað vel við Ísland Hann virðist ekki sjá eftir orðum sínum frá því á föstudaginn og ætlar að útskýra sitt mál betur í íslenskum miðlum í dag. „Mér hefur alltaf líkað vel við Ísland, bæði fólkið og það sem það gerir í handboltanum. Ég var harður en í fullum rétti að mínu mati? Ég tek öllu háði með brosi því ég hafði rétt fyrir mér,“ skrifaði Stockenberg. Hann sá hins vegar það sem allir aðrir sáu í gær, að Ísland getur á góðum degi gjörsigrað jafnvel eitt besta lið mótsins og það á þeirra heimavelli. „Það sem truflaði mig mest í dag var að Ísland stjórnaði gangi mála í Malmö Arena strax frá þjóðsöngnum. Þeir unnu leikinn því miður strax þá,“ skrifaði Stockenberg en íslenskir stuðningsmenn voru magnaðir í Malmö í gær eins og þeir hafa verið allt mótið. „Lít svo á að ég og sænski handboltinn höfum unnið“ Þrátt fyrir allt sem á undan er gengið þá lítur Stockenberg á sjálfan sig sem sigurvegara. „Harka mín í garð Íslands eftir leikinn við Króatíu hefur haft afleiðingar. Íslenskir stuðningsmenn sem hlæja að mér, kalla mig tussu, aumingja o.s.frv. En það hefur líka leitt til þess að sænski handboltinn hefur fengið 1.100 fleiri fylgjendur á X, ég mun taka þátt í tveimur sjónvarpsþáttum á morgun og einnig í hlaðvarpi. Ég lít svo á að ég og sænski handboltinn höfum unnið,“ skrifaði þjálfarinn.
EM karla í handbolta 2026 Landslið karla í handbolta Mest lesið Bein útsending: Landsliðakeppni í Bakgarðshlaupi Sport Mögnuð Mari nýtti hverja einustu sekúndu Sport Kane brást illa við gríni Valsarans Körfubolti „Þetta var allt of mikið“ Fótbolti Fékk innilegt knús alla pásuna: „Höldum áfram þessari helvítis vitleysu“ Sport Sjáðu mark Sveindísar sem fer á kostum í Bandaríkjunum Fótbolti FH - Þróttur | Mikilvægt fyrir titilbaráttuna að fá sigur Íslenski boltinn „Þess vegna hafði ég mjög miklar áhyggjur fyrir þetta hlaup“ Sport Tár féllu í Bakgarðshlaupinu Sport FH-ingar biðla til bareigenda, presta og trúarleiðtoga Íslenski boltinn Fleiri fréttir Reynir markahæstur í sigri Melsungen Kærkominn sigur KA/Þór FH gekk frá Fram í seinni hálfleik Sandra með tíu í sætum sigri á Fram en Haukar halda flugi Níu mörk Jóhannesar ekki nóg Finnur til með Arnari Sætur sigur Selfoss og Gunnar með fullkominn leik KA-menn brotlentu í Garðabæ Tólf marka Dagur kom ÍBV á rétta braut „Ekkert sem ég missti svefn yfir“ Snorri Steinn valdi tuttugu leikmenn fyrir komandi verkefni Átján ára með fjórtán mörk og Haukar fljúga áfram Afturelding í annað sæti Stórleikur Hauks í sáru tapi og Andri náði ekki að mæta pabba Úr leik þrátt fyrir sjö mörk Einars Braga Gísli markahæstur og Bjarki fagnaði stórsigri Nýr styrktaraðili dönsku úrvalsdeildarinnar í handbolta umdeildur Arnór Snær: „Þvílíka veislan“ FH þurfti að þola annan skell í Portúgal Valur - Tatabánya 38-34 | Annar frábær Evrópusigur Sá besti óvænt orðaður við brottför „Það rignir ekkert inn peningum“ Mál á borði lögreglu eftir leik hjá liði Donna Benedikt birtir mynd frá slysstað HK sótti fyrsta sigurinn með einu marki Flautumark í sigri Viggós á Reyni Þungt tap Íslendingaliðsins Viktor öflugur í öruggum sigri Enn með fullt hús ÍBV vann toppslaginn Sjá meira