Erfitt fyrir Íslendinga að komast að: „Það er bara uppselt“ Valur Páll Eiríksson skrifar 27. janúar 2026 09:52 Jón Halldórsson, formaður HSÍ, segir að HSÍ muni gera allt sem í valdi sambandsins stendur til að fá miða fyrir íslenskt stuðningsfólk, fari Ísland áfram til Danmerkur. Samsett/Vísir Fari svo að Ísland komist í undanúrslit á yfirstandandi Evrópumóti karla í handbolta um helgina verður snúið fyrir stuðningsfólk að fá miða á úrslitahelgina í Herning. Uppselt er á leikina.
Ísland stendur nokkuð vel að vígi fyrir komandi tvo leiki, við Sviss í dag og Slóveníu á morgun, en þarf þó að vinna þá báða til að ganga að sæti í undanúrslitum sem vísu. Eftir stórsigur á Svíum í Malmö í fyrradag huga margir Íslendingar að því að fara til Danmerkur að sjá úrslitahelgina. Undanúrslit fara fram á föstudag og úrslitaleikur auk bronsleiks á sunnudag. Þeir hafa þó margir komið að luktum dyrum, þar sem miðar fyrir almenning eru löngu seldir upp. Danir eiga flesta þeirra miða enda á heimavelli og flestum ljóst að þeir myndu taka þátt í úrslitahelginni. Jón Halldórsson, formaður HSÍ, segir sambandið hafa skoðað miðamálin, þó tveir strembnir leikir séu eftir hjá íslenska liðinu. Allt verði gert til að fjölga miðum, komist Ísland áfram. „Það er bara uppselt. Það er auðvitað ekki orðið víst að við förum þangað en við erum í virku sambandi að heyra í öllum aðilum varðandi möguleika á miðum,“ segir Jón í samtali við Vísi. Aðeins 100 miðar á hvert lið Aðeins 400 miðar séu teknir frá fyrir sambönd þeirra liða sem komast áfram í 14.500 manna höll í Herning. „Reglurnar eru þannig að 400 miðar eru teknir frá fyrir þau fjögur lið sem fara komast í undanúrslit, 100 á hvert lið. Það er bara staðan. Við munum athuga málið frekar ef Ísland kemst áfram en framhaldið verður bara að koma í ljós,“ segir Jón enn fremur. Einhverjir vonir standa til um að miðar losni skyldu stuðningsmenn ákveðinna liða hafa keypt slíka í von um undanúrslit. Danir tryggðu sæti sitt í gær og má gera ráð fyrir að langflestir verði danskir í stúkunni um helgina. Þjóðverjar eru grannþjóð Dana og hafa líklega keypt þónokkra miða sem og Svíar. Þjóðverjar spila úrslitaleik við Frakka um sæti í undanúrslitum á morgun en Svíar eru í svipaðri stöðu og Ísland í milliriðli 2. Líkt og Jón segir verður ekkert í hendi fyrr en Ísland klárar fyrst leikina tvo við Sviss og Slóveníu. Leikur Íslands við Sviss hefst klukkan 14:30 í dag og verður lýst beint á Vísi.
EM karla í handbolta 2026 Landslið karla í handbolta Mest lesið Hvað afleiðingar hefur fallið á West Ham ? Fótbolti Tottenham bjargaði sér og Liverpool tók eina lausa sætið Enski boltinn Antonelli styrkir stöðu sína í efsta sætinu Formúla 1 Stúkan: FH í miklum vandræðum Fótbolti Bruno bætti metið eða hvað? Enski boltinn Como í Meistaradeild í fyrsta skipti í sögu félagsins Fótbolti Daníel Tristan lagði upp í tapi Malmö Fótbolti Martin stigahæstur og tryggði oddaleik Körfubolti Bolton flaug upp en Benoný og félagar sátu eftir Enski boltinn Elín Klara sænskur meistari Handbolti Fleiri fréttir Elín Klara sænskur meistari Haukur kom að tíu mörkum en meistararnir fögnuðu sigri Nýjasti titillinn í næstmestu uppáhaldi hjá Gísla Góður sigur en erfitt að ná Meistaradeildarsæti Rúnar sigraði á móti sínum gömlu íslensku lærisveinum Donni og félagar komnir í úrslit Allt jafnt í úrslitaeinvíginu Einar Rafn snýr aftur í Fjörðinn Haukur mikilvægari en Gidsel Haukur fær nýjan samning eftir ótrúlega leiktíð Samningur í höfn: Þjóðverjar treysta á Alfreð fram yfir ÓL í Los Angeles Dagur orðaður við stórlið en kapallinn langur Skipað að ganga frá samningi við Alfreð sem fyrst Gísli Þorgeir tryggði Magdeburg þýska meistaratitilinn Elín Klara endaði leikinn með látum og er einum sigri frá titlinum Þjálfari Magdeburg sækist ekki eftir starfi Alfreðs Donni dreginn að landi af liðsfélögunum Magnaður Einar Bragi með ellefu mörk í fyrsta úrslitaleiknum Íslenskættaða goðsögnin hættir 44 ára að aldri Guðjón Valur pollrólegur yfir stöðunni Hörð gagnrýni á Alfreð: „Hann hefur ekkert lært“ Ungverjagrýlunni hent út en gæti enn fengið boð á ballið Naumt tap hjá Íslendingaliðinu í fyrri úrslitaleiknum Færeyingar í skýjunum með HM-sætið: „Eigum bara eftir að verða betri“ Færeyjar á HM í fyrsta sinn Strákarnir hans Dags unnu Svía Yngri bróðir Sagosen steig á svið er Noregur komst á HM Alfreð og hans menn fengu ekki að hefna sín neitt Egyptaland - Ísland 27-30 | Tveggja sigra ferð til Kaíró Dagur snýr heim úr atvinnumennsku Sjá meira