Leitað að fleira fólki á lista Samfylkingarinnar í Reykjavík Elín Margrét Böðvarsdóttir skrifar 27. janúar 2026 10:51 Samfylkingin valdi fólk í efstu sæti á lista flokksins í Reykjavík um helgina, en enn er óljóst hvort sitjandi borgarstjóri ætli að þiggja 2. sætið. Vísir/Samsett Samfylkingin í Reykjavík óskar nú eftir tilnefningum á lista flokksins fyrir kosningarnar í vor. Um helgina var valið í efstu sex sætin á lista flokksins, en nú leitar uppstillingarnefndin að fólki sem vill sitja í sætum 7. til 46. á lista. Enn liggur ekki fyrir hvort Heiða Björg Hilmisdóttir borgarstjóri ætli að taka 2. sætið á listanum sem hún tryggði sér í prófkjörinu um helgina þar sem hún tapaði oddvitasætinu. Gert er ráð fyrir að endanlegur listi verði kynntur í síðasta lagi í lok febrúar.
Í tölvupósti sem skráðir félagar í Samfylkingunni í Reykjavík fengu í morgun er kallað eftir tilnefningum í næstu sætum listans fyrir sveitarstjórnarkosningarnar sem fara fram þann 16. maí. „Takk fyrir ykkar framlag í lýðræðisveislu Samfylkingarinnar um helgina. Nú höfum við valið sex efstu frambjóðendur fyrir borgarstjórnarkosningarnar 16. maí. Það verða aðalkosningarnar sem við ætlum að vinna saman,“ segir meðal annars í póstinum sem fréttastofa hefur undir höndum. Alls verða 46 nöfn á listanum þar sem borgarfulltrúar eru 23 og varaborgarfulltrúar 23. Í póstinum segir að félagsmenn geti boðið sig sjálfir fram eða tilnefnt aðra sem þeir telji að eigi erindi á framboðslistann. Tekið er á móti framboðum og tilnefningum í gegnum netfangið uppstillingarnefnd26@gmail.com til klukkan 16 á föstudaginn, 30. janúar. „Uppstillingarnefnd mun skoða allar tillögur. Samkvæmt samþykkt Fulltrúaráðsins í Reykjavík skal framboðslisti kynntur eins fljótt sem auðið er og ekki síðar en 28. febrúar. Þá verður tillaga uppstillingarnefndar að framboðslista lögð fyrir allsherjarfund FSR. Uppstillingarnefnd skipa Björk Vilhelmsdóttir, Gréta Dögg Þórisdóttir, Magnús Skjöld, Starri Reynisson og Vilborg Oddsdóttir,“ segir ennfremur í póstinum.
Samfylkingin Reykjavík Sveitarstjórnarkosningar 2026 Mest lesið Tók reiðiskast í beinni og snerist gegn bandamönnum sínum Erlent Draumur Demókrata að rætast Erlent Sýknaður vegna manndráps á Skjólbraut Innlent Dragi uppsagnirnar til baka Innlent Trump hafi nú engu að tapa Erlent Sögulegir sigrar í Bandaríkjunum Erlent Sigraði þrátt fyrir peningaflóð og svik á lokametrunum Erlent Sýknaður vegna fíkniefnaviðskipta hins látna Innlent „Hann hótaði að drepa okkur“ Innlent Þreytast ekki á að tuða yfir veginum Innlent Fleiri fréttir Dómurinn skoðaður og farið yfir framhaldið í Bandaríkjunum Sé óásættanlegt að vændiskaupendur hafi sloppið með sekt „Hann hótaði að drepa okkur“ Sýknaður vegna fíkniefnaviðskipta hins látna Lögreglumenn fari huldu höfði af ótta við ofbeldi Forvitinn minnihluti styggir bæjarstjórn: „Sláandi tölfræði“ Sýknaður vegna manndráps á Skjólbraut Miðflokkurinn bætir við sig fylgi Skoða fæðingarorlofsmálin Dragi uppsagnirnar til baka Þreytast ekki á að tuða yfir veginum Þrír handteknir fyrir rán Telur uppsagnir geta leitt til kostnaðar seinna meir Hækka framfærsluskilyrði innflytjenda verulega Nemandi nýtti sér öryggisbrest og reyndi að breyta einkunum annarra Feðgin felldu tár yfir reynslu af meintum eltihrelli „Rangfærslur og jafnvel hreinar lygar“ Lögregla telur sig komna með „þokkalega skýra mynd“ Barði barn en málið fyrndist Bárust skrýtin skilaboð þegar sambandinu lauk „Fræða en ekki hræða“ „Það er öllum ljóst að hann hefur frekar verið þeirra megin“ Fullyrða að Daði Már hafi logið að þinginu „Hvernig getur svona klikkuð manneskja ekki ákveðið að gera neitt meira?“ Kosningar í Bandaríkjunum og utanríkisráðherra ræðir Rússa Skipaður formaður 6. áfanga rammaáætlunar Reikna með þrettán milljarða afgangi á næsta ári Fluttur með björgunarskipi þegar þyrlan gat ekki lent vegna þoku Kynntu fjárhagsáætlun borgarinnar Kolbeinsey lifir enn þrátt fyrir spádóma um annað Sjá meira