Handbolti

Mætir sínu gamla lands­liði í miklum granna­slag í riðli Ís­lands

Sindri Sverrisson skrifar
Zvonimir Srna, Marin Jelinic og Mario Sostaric kampakátir eftir sigurinn gegn Íslendingum síðasta föstudag.
Zvonimir Srna, Marin Jelinic og Mario Sostaric kampakátir eftir sigurinn gegn Íslendingum síðasta föstudag. Getty/Sanjin Strukic

Þó að augu Íslendinga séu á leiknum mikilvæga við Sviss í dag þá tekur við í kjölfarið afar áhugaverður grannaslagur Slóveníu og Króatíu í sama riðli, á EM í handbolta. Þar er leikmaður sem spilað hefur fyrir bæði landslið.

Rétt eins og Íslendingar þá eru Slóvenar með örlög sín í eigin höndum. Vinni þeir Króatíu þá geta þeir tryggt sig áfram í undanúrslit með sigri gegn Íslandi á morgun. Lærisveinar Dags Sigurðssonar þurfa hins vegar að vinna sína leiki og treysta á að Ísland eða Svíþjóð tapi leik.

Slóvenar urðu fyrir miklum skakkaföllum í aðdraganda EM en slóvenski miðillinn Ekipa segir þjálfarann Uros Zorman ekki lengur hafa afsakanir til að stefna ekki á verðlaun á mótinu. Liðið hafi sýnt hvað það geti með því að vinna Sviss, Færeyjar og Svartfjallaland, sem og svo Ungverja 35-32 á sunnudaginn. Eina tapið til þessa er 35-31 gegn heimamönnum, Svíum, í hörkuleik.

Skipti um landslið eftir EM 2020

Einn þeirra sem Slóvenar þurfa að glíma við í dag er hægri hornamaðurinn Mario Sostaric sem var slóvenskur landsliðsmaður en gafst upp vegna skorts á tækifærum, eftir leikinn um bronsverðlaunin á EM 2020. Hann var orðinn þreyttur á að vera í skugganum á Blaz Janc og fleirum, og fór svo yfir landamærin í króatíska landsliðið.

Mario Sostaric og félagar í króatíska landsliðinu eru ekki með örlögin í eigin höndum.EPA/Andreas Hillergren

Sostaric mætti einmitt Slóvenum og vann þá á HM fyrir ári síðan, í leik sem skipti Íslendinga gríðarlegu máli. Króatar unnu þann leik 29-26, við gríðarlegan fögnuð á heimavelli sínum í Zagreb, en jafntefli eða sigur Slóvena hefði skilað Íslandi áfram í 8-liða úrslit á kostnað Króata.

Grínast fyrst en svo tekur alvaran við

„Við erum tilbúnir og búumst við afar tilfinningaríkum leik,“ sagði Sostaric við króatíska miðilinn RTL.

„Þetta verður alvöru fullorðins slagur. Það er undir okkur komið að halda tilfinningunum í skefjum þar til leikurinn hefst. Við viljum færa þjóðinni sigur,“ sagði Sostaric og átti þá við króatísku þjóðina. Hann er orðinn vanur að mæta Slóvenum.

„Ég hef mætt þeim oft og veit hvernig það er. Við grínumst aðeins og heilsumst en því er svo öllu ýtt til hliðar þegar leikurinn hefst og ég get ekki beðið eftir því,“ sagði Sostaric og kvaðst vongóður um að tveir sigrar myndu á endanum skila Króötum í undanúrslit mótsins.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×