Tekur Ómar hlutverki fyrirliða Íslands of alvarlega? Aron Guðmundsson skrifar 28. janúar 2026 07:00 Landsliðsfyrirliðinn Ómar Ingi Magnússon hefur ekki náð fram sínu allra besta á EM Vísir/Vilhelm Ómar Ingi Magnússon, fyrirliði íslenska landsliðsins hefur ekki verið líkur sjálfum sér á yfirstandandi Evrópumóti handbolta. Frammistaða hans var til umræðu í Besta sætinu og sérfræðingur sem þekkir vel til Ómars segir það gilda spurningu hvort hann sé að taka hlutverki landsliðsfyrirliða of alvarlega.
Ísland gerði slæmt jafntefli gegn Sviss í milliriðlum EM í gær, lokatölur 38-38. Úrslit sem gerðu leið Strákanna okkar að undanúrslitum torfærari, örlögin ekki lengur aðeins í þeirra höndum. Landsliðsfyrirliðinn Ómar Ingi Magnússon átti ekki sérstakan leik og hefur þegar fleiri leikir eru skoðaðir á mótinu ekki komist í sinn takt og náð sínu besta fram. „Slakur í vörninni og var eins og svo oft áður hikandi í sókninni. Viggó varð meira ágengt í leiknum. Ómar átti ágætan kafla í seinni hálfleik en maður gerir meiri kröfur til hans. Það geislar svo ekki beint af fyrirliðanum í öllu hans fasi inni á vellinum,“ sagði í einkunnargjöf íþróttadeildar Vísis um Ómar. Frammistaða landsliðsfyrirliðans var til umræðu í hlaðvarpsþættinum Besta sætinu. „Þú sérð ekkert rosalega mikil svipbrigði hjá Ómari en ég veit að honum líður ekkert alltaf vel,“ sagði Sebastian Alexandersson, handboltaþjálfari, sem bætti því við að hann þekkti Ómar vel. „Þú sérð ekkert mun á honum þegar að hann er ánægður eða óánægður. Það má ekki dæma hann fyrir það en þú sérð það langar leiðir í dag að hann er ekkert líkur sér á þessu móti.“ „Hann tekur sárafá skot utan af velli og ég veit ekki hvort að hann þurfi bara tíma til þess að melta það að hann sé orðinn fyrirliði íslenska landsliðsins. Ég held að Ómar taki þetta hlutverk mun alvarlegra en nokkur annar í hópnum. Það er spurning hvort hann taki því of alvarlega?“ Hlusta má á Besta sætið í spilaranum hér fyrir ofan eða á streymisveitum í gegnum hlekkina hér fyrir neðan:
EM karla í handbolta 2026 Landslið karla í handbolta Besta sætið Mest lesið Bein útsending: Landsliðakeppni í Bakgarðshlaupi Sport Mögnuð Mari nýtti hverja einustu sekúndu Sport Kane brást illa við gríni Valsarans Körfubolti FH-ingar biðla til bareigenda, presta og trúarleiðtoga Íslenski boltinn Tár féllu í Bakgarðshlaupinu Sport Nokkuð viss um að Íslandsmetið verði slegið Sport Finnur til með Arnari Handbolti „Falleg stund að fá að keppa á móti litla bróður“ Fótbolti Sindri áfram í sextán liða úrslit Körfubolti Kærkominn sigur KA/Þór Handbolti Fleiri fréttir Reynir markahæstur í sigri Melsungen Kærkominn sigur KA/Þór FH gekk frá Fram í seinni hálfleik Sandra með tíu í sætum sigri á Fram en Haukar halda flugi Níu mörk Jóhannesar ekki nóg Finnur til með Arnari Sætur sigur Selfoss og Gunnar með fullkominn leik KA-menn brotlentu í Garðabæ Tólf marka Dagur kom ÍBV á rétta braut „Ekkert sem ég missti svefn yfir“ Snorri Steinn valdi tuttugu leikmenn fyrir komandi verkefni Átján ára með fjórtán mörk og Haukar fljúga áfram Afturelding í annað sæti Stórleikur Hauks í sáru tapi og Andri náði ekki að mæta pabba Úr leik þrátt fyrir sjö mörk Einars Braga Gísli markahæstur og Bjarki fagnaði stórsigri Nýr styrktaraðili dönsku úrvalsdeildarinnar í handbolta umdeildur Arnór Snær: „Þvílíka veislan“ FH þurfti að þola annan skell í Portúgal Valur - Tatabánya 38-34 | Annar frábær Evrópusigur Sá besti óvænt orðaður við brottför „Það rignir ekkert inn peningum“ Mál á borði lögreglu eftir leik hjá liði Donna Benedikt birtir mynd frá slysstað HK sótti fyrsta sigurinn með einu marki Flautumark í sigri Viggós á Reyni Þungt tap Íslendingaliðsins Viktor öflugur í öruggum sigri Enn með fullt hús ÍBV vann toppslaginn Sjá meira