Verða að koma með stemninguna sjálfir Sindri Sverrisson skrifar 28. janúar 2026 10:34 Það var dauft yfir strákunum okkar eftir leik í gær og í raun á meðan á leiknum stóð. VÍSIR/VILHELM Gísli Þorgeir Kristjánsson benti á að mörg sæti hefðu verið auð í höllinni í Malmö í gær, á leiknum við Sviss á EM, og ekki ríkt sama andrúmsloft og á móti Svíum á sunnudaginn. Rúnar Kárason segir íslenska liðið verða að mynda eigin stemningu, alveg sama hver staðan sé í stúkunni.
Málið var til umræðu í Besta sætinu en hægt er að hlusta á þáttinn í spilaranum hér að neðan eða á hlaðvarpsveitum. Ísland mætir Slóveníu í dag í úrslitaleik um að komast í undanúrslit og er leiktíminn sá sami og í gær og í tapinu gegn Króatíu á föstudag, klukkan 14:30 að íslenskum tíma (eða 15:30 að staðartíma). Vissulega engin draumatímasetning og það virðist hafa neikvæð áhrif á strákana okkar: „Þá þurfum við að búa þetta [andrúmsloftið] til sjálfir og við náðum því ekki í dag. Vorum bara allt of linir. Þeir náðu bara að spila nákvæmlega eins og þeir vildu, óáreittir,“ sagði Gísli við Vísi eftir leik í gær. Rúnar og Sebastian Alexandersson segja ábyrgðina liggja hjá leikmönnum. Þeir verði að mynda stemninguna. „Svo mæta þeir bara til leiks og maður sér ekki hnefana á lofti og menn að fagna öllu. Ef þið komið með það strákar þá er andrúmsloftið innra með ykkur í lagi. Jú, jú, að vera að spila um hábjartan dag á þriðjudegi, í hálftómri höll, það er alveg skrýtið en eitthvað sem þessir gæjar hafa gert hundrað sinnum áður á stórmótum eða æfingamótum. Þú verður að koma með þetta sjálfur,“ sagði Rúnar. Vanir að spila fyrir framan fáa áhorfendur „Ekki gleyma upprunanum. Þeir koma allir héðan og hafa allir spilað fyrir framan 50-100 manns en samt verið geðveikt ON,“ sagði Sebastian og Rúnar tók við: „Öskrað á alla og verið með geðveika stemningu. Við verðum að koma með hana og þá virkar stúkan ennþá betur með manni. Ef þú kemur ekki með þetta sjálfur þá getur stúkan öskrað að vild án þess að það hreyfi við þér.“ Eyjamaðurinn Elliði Snær Viðarsson kann að kveikja í áhorfendum.VÍSIR/VILHELM Ekkert jess heldur bara hjúff Íslensku stuðningsmennirnir hafa hins vegar verið frábærir á EM og munu ekki láta sitt eftir liggja ef leikmenn ná upp stemningu. „Svo geta verið 2-3 leikmenn kannski sem eru mjög „vocal“ en ef þeir fá engar undirtektir þá bara hætta þeir. Ég hef séð þetta þúsund sinnum,“ sagði Sebastian. „Gísli skoraði geðveikt mikilvægt mark í lokin og ég hjó eftir því að hann sagði ekki einu sinni „jess!“ Það var miklu frekar bara „ókei, ég skoraði, hjúff“,“ sagði Rúnar en umræðuna má heyra í spilaranum hér að ofan, seint í þættinum.
EM karla í handbolta 2026 Landslið karla í handbolta Mest lesið Bein útsending: Landsliðakeppni í Bakgarðshlaupi Sport Mögnuð Mari nýtti hverja einustu sekúndu Sport Kane brást illa við gríni Valsarans Körfubolti FH-ingar biðla til bareigenda, presta og trúarleiðtoga Íslenski boltinn Tár féllu í Bakgarðshlaupinu Sport Nokkuð viss um að Íslandsmetið verði slegið Sport Finnur til með Arnari Handbolti „Falleg stund að fá að keppa á móti litla bróður“ Fótbolti Sindri áfram í sextán liða úrslit Körfubolti Kærkominn sigur KA/Þór Handbolti Fleiri fréttir Reynir markahæstur í sigri Melsungen Kærkominn sigur KA/Þór FH gekk frá Fram í seinni hálfleik Sandra með tíu í sætum sigri á Fram en Haukar halda flugi Níu mörk Jóhannesar ekki nóg Finnur til með Arnari Sætur sigur Selfoss og Gunnar með fullkominn leik KA-menn brotlentu í Garðabæ Tólf marka Dagur kom ÍBV á rétta braut „Ekkert sem ég missti svefn yfir“ Snorri Steinn valdi tuttugu leikmenn fyrir komandi verkefni Átján ára með fjórtán mörk og Haukar fljúga áfram Afturelding í annað sæti Stórleikur Hauks í sáru tapi og Andri náði ekki að mæta pabba Úr leik þrátt fyrir sjö mörk Einars Braga Gísli markahæstur og Bjarki fagnaði stórsigri Nýr styrktaraðili dönsku úrvalsdeildarinnar í handbolta umdeildur Arnór Snær: „Þvílíka veislan“ FH þurfti að þola annan skell í Portúgal Valur - Tatabánya 38-34 | Annar frábær Evrópusigur Sá besti óvænt orðaður við brottför „Það rignir ekkert inn peningum“ Mál á borði lögreglu eftir leik hjá liði Donna Benedikt birtir mynd frá slysstað HK sótti fyrsta sigurinn með einu marki Flautumark í sigri Viggós á Reyni Þungt tap Íslendingaliðsins Viktor öflugur í öruggum sigri Enn með fullt hús ÍBV vann toppslaginn Sjá meira