Helsta klappstýran sögð slegin yfir sálarástandi Trumps Kjartan Kjartansson skrifar 28. janúar 2026 13:42 Mynd sem slóvakíska stjórnarrráðið birti af Robert Fico, forsætisráðherra, (t.v.) með Donald Trump Bandaríkjaforseta (t.h.) í Mar-a-Lago í síðustu viku. Stjórnarráð Slóvakíu Forsætisráðherra Slóvakía og ein helsta klappstýra Donalds Trump í Evrópu er sagður hafa verið sleginn yfir því hvernig bandaríski forsetinn talaði til hans og sálarástandi hans á dögunum. Trump hafi virst „hættulegur“. Ráðherrann hafnar fréttum af meintum ummælum hans.
Robert Fico, forsætisráðherra Slóvakíu, fundaði með Trump í Mar-a-Lago á Flórída 17. janúar. Fimm dögum síðar sagði Fico evrópskum kollegum sínum að hann hefði áhyggjur af „andlegu ástandi“ Bandaríkjaforseta vegna þess hvernig hann talaði. Dagblaðið Politico hefur þetta eftir erindrekum fimm Evrópuríkja sem voru upplýstir um samtal Fico við kollega sína þegar leiðtogaráð ESB kom saman til óformlegs neyðarfundar til að ræða ásælni Bandaríkjanna í Grænland 22. janúar. Fico er sagður hafa notað orðið „hættulegur“ um hvernig Trump kom fyrir á fundi þeirra á Flórída. Hann er sagður hafa lýst því þannig að Trump væri „viti sínu fjær“. Hafnar fréttinni alfarið Engum sögum fer af því hvað Trump á að hafa sagt við slóvakíska leiðtogann nákvæmlega sem skaut honum skelk í bringu. Talsmenn Fico svöruðu ekki fyrirspurnum Politico um það sem er haft eftir honum um Trump. Fico fordæmdi hins vegar fréttaflutning blaðsins í færslu á samfélagsmiðlum í morgun. „Ég hafna alfarið haturslygum frjálslyndu málpípu Brussel Politico,“ segir í færslunni. Fullyrðir Fico að enginn hafi heyrt eða orðið vitni að neinu sem hann sagði um bandaríska forsetann. Hann hafi alls ekki rætt óformlega við neina „forsætisráðherra eða forseta“ um fund sinn með Trump á neyðarfundinum í Brussel. Talsmaður Hvíta hússins sagði fregnirnar uppspuna evrópskra embættismanna. Fundur Trump og Fico hefði verið jákvæður og uppbyggilegur. Ein helsta klappstýran í Evrópu Ætluð ummæli Fico um Trump vekja ekki síst athygli vegna þess að slóvakíski forsætisráðherran hefur verið ein helsta klappstýra Bandaríkjaforseta í Evrópu. Hann hefur meðal annars stutt nálgun Bandaríkjastjórnar á stríðið í Úkraínu og tekið undir gagnrýni Trump á Evrópu. Evrópskir leiðtogar eru sagðir hafa vaxandi áhyggjur af heilsu Trump og ófyrirsjáanlegri hegðun hans, ekki síst vegna ásælni hans í Grænland. Trump hefur ítrekað ýjað að því að hann gæti beitt vopnavaldi til þess að hrifsa Grænland af Dönum þótt hann hefði sagt fundargestum í Davos í síðustu viku að hann ætlaði sér ekki að láta verða af þeim hótunum. Virtist gleyma hvað Alzheimers héti Trump hafnaði því sjálfur í viðtali í vikunni að hann þjáðist af nokkurs konar elli- eða vitglöpum. Hann virtist þó gleyma hvað Alzheimerssjúkdómurinn héti þegar hann neitaði því að hann væri haldinn honum. Í sömu ræðu í Davos virtist Trump ítrekað ruglast á Íslandi og Grænlandi. Honum hefur einnig orðið tíðrætt um að lækka verð á lyfjum í Bandaríkjunum um mörg hundruð prósent, það er að segja langt umfram heildarsöluverð þeirra. Allt þetta ásamt, mari á báðum höndum sem forsetinn hefur reynt að hylja með einhvers konar farða, hefur gefið vangaveltum um hnignandi heilsu forsetans, sem er 79 ára gamall, byr undir báða vængi.
Bandaríkin Donald Trump Slóvakía Evrópusambandið Mest lesið Aukafundur borgarfulltrúa: Tugir stöðugilda í nýrri hrinu uppsagna og niðurskurðar Innlent Gefur meirihlutanum falleinkunn Innlent Sjötíu ákærðir fyrir svíkja fé út úr Landsbankanum Innlent Ákærður fyrir að drepa tvo af gáleysi Innlent Segir Íslendinga á tímamótum og verða að bregðast við Innlent „Ljóst að þetta snýst um rekstur borgarinnar“ Innlent Markmið að kanna aðstæður en ekki björgun Innlent Fækka um rúmlega sjötíu stöðugildi Innlent „Von okkar er að lík Lúlla finnist og við getum jarðað hann“ Innlent „Við eigum bara að þegja og sætta okkur við þetta“ Innlent Fleiri fréttir Efins um „einkaframtak Norðmanna og Finna“ Tveir ákærðir vegna uppákomu við bandaríska herstöð á Englandi Ákæra Comey enn eina ferðina Stubb og Støre ræddu við Pútín Fóðruðu loftslagsvá aðeins minna en metárið á undan Kjörstaðir opnir í Ísrael Óljóst hver mun leiða ríkisstjórn Stúdenta í Serbíu Trump segir svindlað í brasilísku kosningunum Kosningar í Ísrael: Arabaflokkarnir gætu ráðið úrslitum Biskupar sjá eftir bænastund með Trump Fundu 31 byssu, Hitler-brjóstmynd og danskan fána Áhrifavaldar sektaðir fyrir að auglýsa veðmál Stór hluti Oxford Street orðinn göngugata Sagðir vilja fá Orbán til að stýra Sameinuðu þjóðunum Áfall fyrir Donald Trump og Vladimír Pútín Tókst ekki moða neitt úr miðjunni Fundu auðgað úran í dánarbúi Óvæntur sigur Lula en Bolsonaro vill ógilda úrslitin „Noregur sökkar“ Vučić játar ósigur Stúdentahreyfing freistar að velta þaulsetnum Vučić Leikur á hnífsegg í Brasilíu Machado snýr heim eftir nær árs útlegð Hinn grunaði með geðklofa og fluttur á geðdeild Stefna Anthropic fyrir brot á höfundarrétti Presley Loka Vesturbakkanum á kjördag Ísraela Serbar ganga til skyndikosninga Baráttan um Brasilíu Sleit sambandi við föður sinn í ljósi ásakana Nóg sé komið af Trump Sjá meira