„Þeir virðast bara vilja brjóta múra fyrir hann“ Óskar Ófeigur Jónsson skrifar 29. janúar 2026 07:00 Snorri Steinn Guðjónsson sést hér hvetja íslensku strákana á hliðarlínunni. Vísir/Vilhelm Snorri Steinn Guðjónsson er búinn að skila íslenska landsliðinu alla leið í undanúrslit á sínu þriðja stórmóti með liðið. Sérfræðingar Besta sætisins voru skiljanlega mjög sáttir með landsliðsþjálfarann.
Jóhann Gunnar Einarsson, Einar Jónsson og Stefán Árni Pálsson gerðu upp stórsigur Íslands á Slóvenum sem gerði það að verkum að Ísland er komið í undanúrslit á EM í fyrsta sinn í sextán ár. Magnaður árangur og þjálfarinn á mikið hrós skilið. Stefán Árni segir að Besta sætið hafi ekki sett mikið út á störf Snorra í mótinu. „Þið fóruð nú silkihönskum um hann eftir síðasta leik,“ sagði Einar Jónsson í léttum tón en hélt svo áfram: „Hann á bara stærsta þáttinn í því“ „Snorri er búinn að vera frábær á þessu móti og hann var það á síðasta móti líka. Þú ert bara dæmdur á niðurstöðunni þegar þú ert að þjálfa íslenska landsliðið í handbolta. Þá ertu bara dæmdur á niðurstöðunni og niðurstaðan núna er stórkostleg. Hann á bara stærsta þáttinn í því, það er bara þannig,“ sagði Einar. „Af því að þú talar um þjálfaraugu. Þegar gengur vel, þá er það leikmennirnir sem eru svo frábærir en þegar gengur illa, þá er það alltaf þjálfarinn. Hann má bara fá allt það hrós sem hann á skilið og hann á skilið bara hellings hrós,“ sagði Einar. „Sýnir bara ótrúlega mikil gæði“ „Hann er búinn að taka nokkrar ákvarðanir inni í þessu móti, fyrir mótið og inni í leikjunum sem hefðu getað fallið bæði neikvætt og jákvætt. Hann á nokkrar stórar ákvarðanir sem hafa bara gengið upp. Það er bara það fallega við þetta. Hann sýnir bara ótrúlega mikil gæði sem þjálfari með þessu,“ sagði Einar. Jóhann Gunnar Einarsson hrósaði Snorra fyrir að nota hópinn betur en áður. „Þó að hann gefi nú ekki mikið af sér í viðtölum, hann er oft svona frekar þurr á manninn, þá fer hann aldrei í vörn með neitt. Hann var spurður hvort Viggó hefði átt að vera búinn að spila meira á þessu móti? Og hann segir bara: „Já, mjög líklega,“ sagði Jóhann en þessi spurning kom eftir að Viggó sló í gegn á móti Svíum. Fer ekki í vörn „Hann er ekki að fara í einhverja vörn,“ sagði Jóhann. „Þegar Gummi [Guðmundur Guðmundsson] var spurður: „Af hverju varstu ekki með neitt varaplan í vörninni?“ Þá kom bara tíu mínútna einræða um hvernig það væri allt. Það er það sem maður tekur eftir,“ sagði Jóhann. „Svo virðist hann alveg vera með þessa stráka bara í vasanum. Þeir virðast bara vilja brjóta múra fyrir hann og tala ótrúlega vel um hann. Menn gera það alltaf en maður svona skynjar það líka að þetta sé alveg, það er eitthvað á bak við það,“ sagði Jóhann. Hér fyrir neðan má hlusta á allan þáttinn þar sem Besta sætið fór yfir leikinn á móti Slóveníu.
EM karla í handbolta 2026 Landslið karla í handbolta Besta sætið Mest lesið Bein útsending: Landsliðakeppni í Bakgarðshlaupi Sport Mögnuð Mari nýtti hverja einustu sekúndu Sport Kane brást illa við gríni Valsarans Körfubolti FH-ingar biðla til bareigenda, presta og trúarleiðtoga Íslenski boltinn Tár féllu í Bakgarðshlaupinu Sport Nokkuð viss um að Íslandsmetið verði slegið Sport Sindri áfram í sextán liða úrslit Körfubolti „Falleg stund að fá að keppa á móti litla bróður“ Fótbolti Finnur til með Arnari Handbolti Sjáðu tvennuna hjá sjóðheitum Andra Lucasi Enski boltinn Fleiri fréttir Reynir markahæstur í sigri Melsungen Kærkominn sigur KA/Þór FH gekk frá Fram í seinni hálfleik Sandra með tíu í sætum sigri á Fram en Haukar halda flugi Níu mörk Jóhannesar ekki nóg Finnur til með Arnari Sætur sigur Selfoss og Gunnar með fullkominn leik KA-menn brotlentu í Garðabæ Tólf marka Dagur kom ÍBV á rétta braut „Ekkert sem ég missti svefn yfir“ Snorri Steinn valdi tuttugu leikmenn fyrir komandi verkefni Átján ára með fjórtán mörk og Haukar fljúga áfram Afturelding í annað sæti Stórleikur Hauks í sáru tapi og Andri náði ekki að mæta pabba Úr leik þrátt fyrir sjö mörk Einars Braga Gísli markahæstur og Bjarki fagnaði stórsigri Nýr styrktaraðili dönsku úrvalsdeildarinnar í handbolta umdeildur Arnór Snær: „Þvílíka veislan“ FH þurfti að þola annan skell í Portúgal Valur - Tatabánya 38-34 | Annar frábær Evrópusigur Sá besti óvænt orðaður við brottför „Það rignir ekkert inn peningum“ Mál á borði lögreglu eftir leik hjá liði Donna Benedikt birtir mynd frá slysstað HK sótti fyrsta sigurinn með einu marki Flautumark í sigri Viggós á Reyni Þungt tap Íslendingaliðsins Viktor öflugur í öruggum sigri Enn með fullt hús ÍBV vann toppslaginn Sjá meira