Ragna í nýju hlutverki hjá TBR Ágúst Orri Arnarson skrifar 29. janúar 2026 17:02 Ragna Ingólfsdóttir, nýráðinn íþróttastjóri, og Ástþór Magnús Þórhallsson, framkvæmdastjóri TBR. TBR Ragna Ingólfsdóttir hefur verið ráðin til starfa sem íþróttastjóri afreks- og þróunarmála hjá Tennis- og Badmintonfélagi Reykjavíkur.
Ragna keppti tvisvar í badminton fyrir Íslands hönd á Ólympíuleikunum, í Peking 2008 og í Lundúnum 2012. Alls á hún að baki tuttugu Íslandsmeistaratitla í badminton og hæst náði hún 37. sæti heimslistans, þá var hún einnig meðal tíu efstu í einliðaleik kvenna á Evrópumótaröðinni. Ragna er með BA gráðu í heimspeki og sálfræði og er lærður jógakennari og heilsunuddari. Hún er nú í meistaranámi í íþróttavísindum með íþróttasálfræði sem sérgrein í Háskólanum í Reykjavík. Ragna hefur starfað síðustu ár sem þjálfari hjá TBR en félagið segir þessa breytingu marka nýja tíma. Með henni fáist skýrari sýn á framtíð félagsins, sem samræmist metnaði stjórnar og félagsins að efla enn frekar grasrótarstarf, afreksstarf og framþróun innan félagsins. „Ástríða mín er íþróttir, íþróttafólk og íþróttahreyfingin á Íslandi. Ég hef unnið við ýmislegt tengt íþróttum í gegnum tíðina, m.a. starfaði ég sem verkefnastjóri hjá Íþrótta- og Ólympíusambandi Íslands í sjö ár og þekki því íþróttahreyfinguna vel. Ég hef mikla reynslu úr íþróttaheiminum, en ég æfði badminton í 21 ár og þar af í 11 ár sem atvinnumaður. Ég öðlaðist dýrmæta reynslu í gegnum feril minn í badmintoninu, þar sem ég ferðaðist um allan heim og keppti á alþjóðlegum mótum til þess að koma mér sem hæst á heimslista og spila á meðal bestu einliðaleikskvenna í heimi. Sú reynsla nýtist mér vel í leik og starfi í dag“ sagði Ragna. „Markmið mitt í starfi íþróttastjóra afreks- og þróunarmála er að byggja upp markvisst og faglegt afreksumhverfi í TBR. Ég vil leggja áherslu á að styrkja iðkendur sem hafa skýra sýn og metnað og veita þeim heildræna og einstaklingsmiðaða þjálfun. Við í TBR viljum fjölga iðkendum sem stefna á alþjóðlega mótaþátttöku, vilja koma sér ofar á heimslista og stefna á keppni á Evrópu- og heimsmeistaramótum ásamt Ólympíuleikum. Lykilatriði næstu ára hvað varðar þennan hluta starfsins er að byggja upp afreksmenningu í TBR þar sem fagmennska og metnaður eru í forgrunni og þar sem iðkendur fá þann stuðning sem þeir þurfa til að ná sínum hámarksárangri á heilbrigðan hátt.“
Tennis Badminton Mest lesið „Hvers konar spurning er þetta?“ Sport Bestu kaupin í sögu enska boltans Enski boltinn Klopp umbreytir starfinu Fótbolti KSÍ kaupir pulsuna og búið er að koma henni fyrir á Laugardalsvelli Íslenski boltinn Allir leikir stoppaðir fyrir Messi Fótbolti Íhugar að hætta með argentínska landsliðinu eftir þungt bann Fótbolti Lando Norris stofnar sitt eigið lið Formúla 1 Tekur aftur við tveimur mánuðum eftir að hafa hætt Fótbolti Barcola í hóp á morgun Enski boltinn Stjarnan spilar aftur í Miðgarði Íslenski boltinn Fleiri fréttir Martinelli seldur til Sádi-Arabíu Antonelli refsað og byrjar heimakappaksturinn aftastur Hver var í flottustu treyjunni? Bestu kaupin í sögu enska boltans „Leikmenn í hópnum sem þurfa að taka við keflinu“ Ekki sofa á Valsmönnum Barcola í hóp á morgun Tekur aftur við tveimur mánuðum eftir að hafa hætt Sextán tíma flug og spilað fyrir hádegi Tufegdzic bræður til Malmö Klopp umbreytir starfinu Íhugar að hætta með argentínska landsliðinu eftir þungt bann Allir leikir stoppaðir fyrir Messi Stjarnan spilar aftur í Miðgarði Frá Keflavík til Noregs Löng bönn, risa sektir og bannaðir frá nýliðavalinu Daníel Leó til dönsku meistaranna „Hvers konar spurning er þetta?“ Banni Aubameyang með landsliðinu aflétt en hann hættir samt Dagskráin í dag: Íslendingarnir í Magdeburg í eldlínunni Heims- og Ólympíumeistari lenti í árekstri og getur ekki æft KSÍ kaupir pulsuna og búið er að koma henni fyrir á Laugardalsvelli Lando Norris stofnar sitt eigið lið Bayern lenti óvænt undir í fyrstu umferð bikarsins Lærisveinar Guðjóns Vals ekki lengi að jafna sig á tapi í fyrsta leik Elías Rafn hélt hreinu og kom Midtjylland á toppinn Cecilía Rán tryggði Inter í Meistaradeildina Hadjar frá í aðra keppni Arna og Fanney áfram í Evrópubikarnum Andrea Rán Snæfeld Hauksdóttir: ,,Hleyptum óþarfa stressi í leikinn” Sjá meira