Handbolti

„Þá myndu þeir ljúga að mér“

Valur Páll Eiríksson skrifar
Snorri Steinn segir stöðuna á leikmannahópi Íslands góða miðað við aðstæður. Öll eymsli gleymist strax og komið sé í svo stóran leik.
Snorri Steinn segir stöðuna á leikmannahópi Íslands góða miðað við aðstæður. Öll eymsli gleymist strax og komið sé í svo stóran leik. Vísir/Vilhelm

Snorri Steinn Guðjónsson segir leikmenn íslenska landsliðsins vera vel í stakk búna fyrir verkefni dagsins er liðið mætir Dönum í undanúrslitum á EM í Herning.

Íslenska liðið hefur spilað sjö leiki á undanförnum 13 dögum, þar á meðal tvo leiki á um það bil einum sólarhring, við Sviss og Slóveníu í milliriðli í vikunni.

Hvernig er staðan á leikmannahópnum eftir slík átök?

„Hún er allt í lagi held ég bara. Náttúrulega ef ég myndi spyrja þá segjast þeir bara vera frábærir en ef þeir væru eitthvað laskaðir myndu þeir bara ljúga að mér, eðlilega. Þeir vilja bara spila leikinn á morgun,“ segir Snorri Steinn og bætir við:

„En auðvitað eru menn alltaf eitthvað laskaðir þegar er komið svona langt í mótið. Það er örugglega sama staða hjá Dönum líka. En þegar komið er í leik eru menn fljótir að gleyma þessu.“

Verkefni dagsins er ekki af minni gerðinni. Að mæta Dönum, heimsmeisturum síðustu fjögurra móta, og ríkjandi Ólympíumeisturum. Á þeirra heimavelli fyrir framan 14 þúsund Dani í stúkunni.

„Þetta hefur verið besta lið í heimi undanfarin ár og hafa ekki sýnt á sér marga veikleika. En þeir töpuðu nú leik á þessu móti eins og við. Gleymum því nú ekki, þeir eru ekki ósigrandi,“ segir Snorri.

„En auðvitað er þetta frábært lið með mikla reynslu á þessu sviði, og er á heimavelli. Það vita allir að við erum að fara í mjög erfitt verkefni. En það breytir því ekki að við erum komnir hingað til að gera eitthvað,“ segir Snorri sem hefur trú á því að strákarnir okkar geti lagt danska veldið að velli.

„Við mætum ekki til leiks á morgun bara til þess að hafa gaman. Við ætlum að finna leiðir til að hægja á þeim og vinna þá. Við trúum því að við séum með það gott lið að við getum það. En þurfum, að sjálfsögðu, algjöra topp frammistöðu,“ segir Snorri.

Fleira kemur fram í viðtali við Snorra sem sjá má í spilaranum.

Ísland mætir Danmörku klukkan 19:30 í Boxen í Herning í kvöld. Íþróttateymi Sýnar mun fylgja landsliðinu eftir og koma stemningunni vel til skila í fréttatímum Sýnar sem og á Vísi í allan dag.


Tengdar fréttir

Sigvaldi kallaður inn í íslenska hópinn

Sigvaldi Björn Guðjónsson, leikmaður Kolstad í Noregi, hefur verið kallaður inn í íslenska landsliðshópinn sem ferðaðist í dag til Herning. 

Aldrei séð Dag svona reiðan

Dagur Sigurðsson lét ráðamenn EHF, Handknattleikssambands Evrópu, gjörsamlega heyra það á blaðamannafundi í Herning í gær. Króatískir miðlar segja Dag hafa reiðst sérstaklega við tíðindi sem hann fékk á miðvikudagskvöld.

„Þetta eru bara menn sem vilja mikið og meira“

Íslenska karlalandsliðið í handbolta ætlaði sér í undanúrslit á Evrópumótinu og nú þegar því markmiði er náð er hætta á að hungrið vanti til að fara enn lengra. Sérfræðingarnir í Bestu sætinu veltu þessu fyrir sér.

„Þetta er bara einn af mönnum mótsins hingað til“

Elliði Snær Viðarsson hefur átt tvo mjög flotta leiki í sókninni í röð og verið markahæstur hjá íslenska landsliðinu í þeim báðum. Hann skoraði átta mörk úr níu skotum á móti Sviss og fylgdi því eftir með átta mörkum í níu skotum í sigrinum á Slóvenum. Elliði fékk líka hrós frá sérfræðingunum í Besta sætinu.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×