„Lítill stuðningur við strákana okkar að auglýsa í fjölmiðlum“ Óskar Ófeigur Jónsson skrifar 29. janúar 2026 22:51 Íslensku strákarnir þurfa að standa saman inn á vellinum en það verður líka að passa upp á að styðja landsliðið utan vallar. Vísir/Vilhelm Pétur Hrafn Sigurðsson, fyrrverandi framkvæmdastjóri KKÍ og sviðsstjóri getraunasviðs hjá Íslenskum getraunum, benti á athyglisverðan hlut í stuttum pistli um íslenska handboltalandsliðið á samfélagsmiðlum í dag.
Handknattleikssamband Íslands glímir við stóran skuldabagga en hefur engu að síður tekist að búa til eitt besta handboltalandslið í Evrópu. „Nú dynja á landsmönnum auglýsingar þar sem hin ýmsu fyrirtæki auglýsa að þau styðji „strákana okkar“. Það er samt lítill stuðningur við „strákana okkar“ að auglýsa í fjölmiðlum. Alvöru stuðningur frá fyrirtækjunum er fjárstuðningur við fjárvana HSÍ. Árangur kostar peninga,“ skrifaði Pétur Hrafn. Pétur Hrafn Sigurðsson Hann kallar eftir því að fyrirtækin fari að standa betur við þá fullyrðingu að þau standi á bak við íslenska handboltalandsliðið. „Fyrirtækin sem auglýsa stuðning við „strákana okkar“ hljóta að standa við stóru orðin. Ef hvert þeirra greiðir tvær milljónir króna til HSÍ er um alvöru stuðning að ræða sem fljótt vinnur á skuldabagga sambandsins. HSÍ á þá meiri möguleika á að undirbúa „strákana okkar“ fyrir næsta stórmót ásamt „stúlkunum okkar“ og öllum yngri landsliðum sambandsins,“ skrifaði Pétur Hrafn. Hann gengur lengra og gagnrýnir þau fyrirtæki sem láta ekki verkin tala þegar kemur að því að hjálpa HSÍ í gegnum fjárhagsvandræðin sín. „Fylgi auglýsingunum ekki fjármagn til HSÍ er ekki um stuðning að ræða og þá er það ekkert annað en ómerkilegt auglýsingaskrum,“ skrifaði Pétur. Hann vill fá opinbera pressu á þessi fyrirtæki með því að fá markaðsstjóra HSÍ til að taka saman stuðningsauglýsingar fyrirtækja í fjölmiðlum og bera þær saman við fjárframlög þeirra til HSÍ og birta niðurstöðurnar til dæmis á vef HSÍ. „Hann gæti líka hringt í framkvæmdastjóra viðkomandi fyrirtækja og boðið þeim að styðja sambandið um tvær milljónir eða svo,“ skrifaði Pétur eins og sjá má hér fyrir neðan.
EM karla í handbolta 2026 Landslið karla í handbolta Mest lesið Bein útsending: Landsliðakeppni í Bakgarðshlaupi Sport Mögnuð Mari nýtti hverja einustu sekúndu Sport Kane brást illa við gríni Valsarans Körfubolti „Þetta var allt of mikið“ Fótbolti „Þess vegna hafði ég mjög miklar áhyggjur fyrir þetta hlaup“ Sport Fékk innilegt knús alla pásuna: „Höldum áfram þessari helvítis vitleysu“ Sport Leik lokið: FH - Þróttur 0-4 | Titilvonir FH-inga í tætlum Íslenski boltinn Sjáðu mark Sveindísar sem fer á kostum í Bandaríkjunum Fótbolti Tár féllu í Bakgarðshlaupinu Sport FH-ingar biðla til bareigenda, presta og trúarleiðtoga Íslenski boltinn Fleiri fréttir Reynir markahæstur í sigri Melsungen Kærkominn sigur KA/Þór FH gekk frá Fram í seinni hálfleik Sandra með tíu í sætum sigri á Fram en Haukar halda flugi Níu mörk Jóhannesar ekki nóg Finnur til með Arnari Sætur sigur Selfoss og Gunnar með fullkominn leik KA-menn brotlentu í Garðabæ Tólf marka Dagur kom ÍBV á rétta braut „Ekkert sem ég missti svefn yfir“ Snorri Steinn valdi tuttugu leikmenn fyrir komandi verkefni Átján ára með fjórtán mörk og Haukar fljúga áfram Afturelding í annað sæti Stórleikur Hauks í sáru tapi og Andri náði ekki að mæta pabba Úr leik þrátt fyrir sjö mörk Einars Braga Gísli markahæstur og Bjarki fagnaði stórsigri Nýr styrktaraðili dönsku úrvalsdeildarinnar í handbolta umdeildur Arnór Snær: „Þvílíka veislan“ FH þurfti að þola annan skell í Portúgal Valur - Tatabánya 38-34 | Annar frábær Evrópusigur Sá besti óvænt orðaður við brottför „Það rignir ekkert inn peningum“ Mál á borði lögreglu eftir leik hjá liði Donna Benedikt birtir mynd frá slysstað HK sótti fyrsta sigurinn með einu marki Flautumark í sigri Viggós á Reyni Þungt tap Íslendingaliðsins Viktor öflugur í öruggum sigri Enn með fullt hús ÍBV vann toppslaginn Sjá meira