Portúgölsku bræðurnir sendu Svía sára heim Ágúst Orri Arnarson skrifar 30. janúar 2026 15:45 Martim Costa skoraði sigurmarkið á lokasekúndu leiksins. Portúgal vann 36-35 sigur gegn Svíþjóð og tryggði sér þar með fimmta sætið á EM í handbolta, eftir mikinn baráttuleik. Martim Costa var markahæstur í leiknum og er markahæsti maður mótsins hingað til.
Leikurinn bauð upp á hörkuspennu. Portúgal gat með sigri tryggt sinn besta árangur frá upphafi á EM. Svíarnir vildu hins vegar enda mótið á góðum nótum eftir að hafa misst af undanúrslitum með slæmum frammistöðum á heimavelli. Það verður því ekki sagt að þessi leikur hafi ekki skipt liðin máli eða boðið upp á litla ákefð. Æsispennandi slagur Liðin tókust vel á og skiptust margoft á forystunni, en aldrei munaði meira en tveimur mörkum nema alveg í upphafi fyrri hálfleiks. Portúgalir byrjuðu betur og voru skrefinu á undan mest allan leikinn, en á lokamínútunum náði Svíþjóð tveggja marka forystu og virtist ætla að vinna. Martim Costa átti hins vegar stórkostlegar lokamínútur, og bróðir hans Francisco Costa var engu síðri. Bræðurnir tóku forystuna á ný fyrir Portúgal, en línumaðurinn Oscar Bergendahl jafnaði fyrir Svíþjóð þegar aðeins sex sekúndur voru eftir. Bræðurnir komu aftur til bjargar Þá voru góð ráð dýr og Portúgal bað um leikhlé, með aðeins sex sekúndur til að ná upp skoti. Portúgalski þjálfarinn teiknaði upp leikkerfi, þar sem allir héldu að Francisco Costa væri að fara að skjóta, en hann stökk upp í loft þegar tvær sekúndur voru eftir og gaf boltann á bróður sinn, Martim Costa, sem skoraði sigurmarkið með skoti af nokkuð löngu færi í þann mund sem lokaflautið gall. Fagnaðarlætin voru gríðarleg eftir þessa miklu dramatík og Portúgal getur þakkað Costa bræðrum mikið fyrir besta árangur þjóðarinnar í sögu EM.
EM karla í handbolta 2026 Mest lesið Aldrei séð Dag svona reiðan Handbolti Ræða Dags bar árangur og EHF lofar breytingum Handbolti Danmörk - Ísland | Undanúrslit í gini ljónsins Handbolti Tennisstjörnurnar fela hluti í nærfötunum Sport „Þetta er bara einn af mönnum mótsins hingað til“ Handbolti EM-Pallborðið: Rýndu í möguleika Íslands gegn Danmörku Handbolti „Gjörsamlega glórulaust“ Handbolti „Lítill stuðningur við strákana okkar að auglýsa í fjölmiðlum“ Handbolti Sömu og dæmdu í sigrinum á Svíum en fyrst dæma Íslendingar Handbolti Þýskaland - Króatía | Dagur eða Alfreð í úrslit á EM Handbolti Fleiri fréttir Þýskaland - Króatía | Dagur eða Alfreð í úrslit á EM Portúgölsku bræðurnir sendu Svía sára heim „Eins og Gísli Þorgeir en getur líka skotið fyrir utan“ Vilja þagga niður í 14 þúsund Dönum Algjörlega magnaður árangur: „Ákveðin vonbrigði að þeir séu ekki fjórir“ EM-Pallborðið: Rýndu í möguleika Íslands gegn Danmörku Danir með tromp á hendi: „Auðvitað hrikalega mikilvægt“ Anton og Jónas með myndavél á sér í Boxen Danmörk - Ísland | Undanúrslit í gini ljónsins Tókst eftir tíu ára bið: „Hef alltaf haft trú“ Ræða Dags bar árangur og EHF lofar breytingum Stutt síðan Gísli var ekki sérlega vel liðinn af íslensku þjóðinni Dani segir gagnrýni Dags illa tímasetta „Langstærsta prófið“ en Danir hafa misstigið sig „Megum ekki gleyma því að við erum frábærir líka“ Sömu og dæmdu í sigrinum á Svíum en fyrst dæma Íslendingar „Þá myndu þeir ljúga að mér“ „Aðrir sjá um að tuða yfir því“ Ísland næstbesta sóknarlið EM en því miður er Danmörk best Aldrei séð Dag svona reiðan „Þetta eru bara menn sem vilja mikið og meira“ „Þetta er bara einn af mönnum mótsins hingað til“ „Lítill stuðningur við strákana okkar að auglýsa í fjölmiðlum“ Sjötti sigur Valskvenna í röð og KA/Þór vann Stjörnuna „Eins og íslenska krónan, okkur vantar stöðugleika“ Uppgjörið: Haukar - ÍR 23-22 | Dramatískur sigur hjá Haukakonum EM í dag: EHF ekki í neinu uppáhaldi hjá Degi Sig og öðrum Íslendingum Sigvaldi kallaður inn í íslenska hópinn Eyjakonur lifðu af stórleik Ethel Gyðu í Eyjum Alfreð stóð með Degi: „Ekki eins og best verður á kosið“ Sjá meira