„Margar ákvarðanir hjá dómurunum sem ég á erfitt með að lifa með“ Ágúst Orri Arnarson skrifar 30. janúar 2026 21:46 Eitt af mörgum skiptum þar sem rifið var í Gísla Þorgeir Kristjánsson. vísir / Vilhelm „Mér fannst við eiga mjög góða möguleika í dag að vinna þetta“ sagði Gísli Þorgeir Kristjánsson eftir 31-28 tap Íslands gegn Danmerkur í undanúrslitum EM. Hann er ósáttur með margar ákvarðanir dómara leiksins. „
Það þarf allt að vera fullkomið á móti svona liði eins og Danmörku, en það var það ekki. Við brennum fjórum vítum, sem er ótrúlega mikið á móti svona sterku liði og þeir refsa í hvert skipti sem við skorum ekki. Það er það fyrsta sem kemur upp í hausinn en svo eru margar ákvarðanir hjá dómurunum sem ég á erfitt með að lifa með“ sagði Gísli í viðtali við Val Pál Eiríksson og útskýrði hvað hann átti við með dómgæsluna. „Við fáum oft og tíðum bara ekki að spila handbolta. Við erum að brjótast í gegn en þeir bara stoppa. Afhverju veit ég ekki. Það tekur líka flæðið úr okkur, þegar þeir eru alltaf að stoppa leikinn og leyfa okkur ekki bara að spila handbolta. Þetta er kannski aðeins of mikið tuð um dómara en þetta eru fyrstu viðbrögð.“ Mikið hangið í þér líka og fullt af fríköstum sem hefðu getað verið vítaköst? „Já. Algjörlega. Kannski er maður aðeins of neikvæður en það voru mörg móment þarna sem voru bara fríköst, en það var líka mín tilfinning að þær ákvarðanir hafi farið þeirra megin í dag. Það svíður auðvitað mikið því mér fannst við verðskulda meira.“ Gísli segir það alls ekki staðreynd að danska liðið sé of stór biti fyrir það íslenska kynga. „Ég sé það ekki þannig. Við vorum sannarlega með alla möguleika til að vinna þá í dag og það sýnir líka hvað við erum komnir langt sem lið. Mér fannst þeir alls ekki sterkari aðilinn í dag, þó þeir hafi verið með yfirhöndina síðustu fimmtán mínúturnar. En mér fannst við eiga meira inni.“ „Við ætlum að vinna bronsið“ sagði Gísli að lokum. Klippa: Gísli Þorgeir ósáttur með dómgæsluna í Danmörku
Landslið karla í handbolta EM karla í handbolta 2026 Mest lesið Bein útsending: Landsliðakeppni í Bakgarðshlaupi Sport Mögnuð Mari nýtti hverja einustu sekúndu Sport Kane brást illa við gríni Valsarans Körfubolti „Þetta var allt of mikið“ Fótbolti FH-ingar biðla til bareigenda, presta og trúarleiðtoga Íslenski boltinn Tár féllu í Bakgarðshlaupinu Sport Nokkuð viss um að Íslandsmetið verði slegið Sport „Falleg stund að fá að keppa á móti litla bróður“ Fótbolti Finnur til með Arnari Handbolti Sindri áfram í sextán liða úrslit Körfubolti Fleiri fréttir Reynir markahæstur í sigri Melsungen Kærkominn sigur KA/Þór FH gekk frá Fram í seinni hálfleik Sandra með tíu í sætum sigri á Fram en Haukar halda flugi Níu mörk Jóhannesar ekki nóg Finnur til með Arnari Sætur sigur Selfoss og Gunnar með fullkominn leik KA-menn brotlentu í Garðabæ Tólf marka Dagur kom ÍBV á rétta braut „Ekkert sem ég missti svefn yfir“ Snorri Steinn valdi tuttugu leikmenn fyrir komandi verkefni Átján ára með fjórtán mörk og Haukar fljúga áfram Afturelding í annað sæti Stórleikur Hauks í sáru tapi og Andri náði ekki að mæta pabba Úr leik þrátt fyrir sjö mörk Einars Braga Gísli markahæstur og Bjarki fagnaði stórsigri Nýr styrktaraðili dönsku úrvalsdeildarinnar í handbolta umdeildur Arnór Snær: „Þvílíka veislan“ FH þurfti að þola annan skell í Portúgal Valur - Tatabánya 38-34 | Annar frábær Evrópusigur Sá besti óvænt orðaður við brottför „Það rignir ekkert inn peningum“ Mál á borði lögreglu eftir leik hjá liði Donna Benedikt birtir mynd frá slysstað HK sótti fyrsta sigurinn með einu marki Flautumark í sigri Viggós á Reyni Þungt tap Íslendingaliðsins Viktor öflugur í öruggum sigri Enn með fullt hús ÍBV vann toppslaginn Sjá meira