Handbolti

Allir sér­fræðingar TV 2 með Gísla í úrvalsliðinu

Ingvi Þór Sæmundsson skrifar
Gísli Þorgeir Kristjánsson hefur skorað 28 mörk á EM og gefið 54 stoðsendingar.
Gísli Þorgeir Kristjánsson hefur skorað 28 mörk á EM og gefið 54 stoðsendingar. vísir/vilhelm

Gísli Þorgeir Kristjánsson var valinn í öll úrvalsliðin sem TV 2 í Danmörku fékk þrjá sérfræðinga sína til að gera.

Gísli hefur spilað afar vel á EM og er stoðsendingahæsti maður mótsins.

Opinbert úrvalslið EM verður birt á morgun. TV 2 fékk þá Claus Møller Jakobsen, Lasse Svan og Rasmus Boysen til að taka forskot á sæluna og velja sitt úrvalslið auk besta leikmanns mótsins, besta unga leikmannsins og besta varnarmannsins.

Þremenningarnir voru allir með sömu útilínu í liðunum sínum. Gísla á miðjunni og svo dönsku skytturnar Mathias Gidsel og Simon Pytlick sitt hvoru megin við Hafnfirðinginn.

Allir völdu þeir Gidsel sem besta leikmann EM og Portúgalann Francisco Costa sem besta unga leikmanninn. Þeir eru markahæstir á mótinu með 61 mark hvor.

Andreas Wolff var í markinu í öllum úrvalsliðunum og Jakobsen valdi félaga hans í þýska landsliðinu, Johannes Golla, besta varnarmanninn. Svan valdi Danann Magnus Saugstrup sem besta varnarmanninn og Boysen Króatann David Mandic.

Úrvalslið þremenninganna má sjá með því að smella hér.

Gísli og félagar í íslenska landsliðinu mæta Króatíu í leiknum um bronsið á EM klukkan 14:15 á morgun. Klukkan 17:00 er svo komið að úrslitaleik Danmerkur og Þýskalands.


Tengdar fréttir

Gidsel gefur lítið fyrir tuð Þjóðverja

Mathias Gidsel, markahæsti leikmaður Evrópumótsins í handbolta, segir að stuðningsmönnum Danmerkur sé frjálst að styðja liðið á þann hátt sem þeir kjósi.

Segir Dag hafa beðist afsökunar

Forseti Evrópska handknattleikssambandsins segir Dag Sigurðsson, landsliðsþjálfara Króatíu hafa beðist afsökunar á því hvernig hann orðaði gagnrýni sína á keppnisfyrirkomulagi og skipulagi sambandsins á EM á blaðamannafundi fyrir úrslitahelgi mótsins í Herning.

Bláir í rauðu hafi: „Eins og við værum boðflennur í einkapartýi“

Bræður frá Ís­landi vöktu ekki mikla kátínu meðal danskra stuðnings­manna á leik Ís­lands og Dan­merkur í undanúr­slitum EM í hand­bolta í Herning í gær. Í miðri stúku voru þeir, tveir Ís­lendingar, innan um þúsundir danskra stuðnings­manna. „Við Ís­lendingar eigum alveg sama til­verurétt þarna og aðrir,“ segir annar bróðirinn í sam­tali við Vísi.

Svaf yfir sig og missti af rútunni

Orri Freyr Þorkelsson kom með seinni skipum á fjölmiðlahitting íslenska landsliðsins í Herning í Danmörku eftir langa nótt. Stór hluti íslenska hópsins fékk að sofa út.

„Ég nenni ekki að eyða orku í þetta EHF lið“

Þau voru þung skrefin hjá Snorra Steini Guðjónssyni landsliðsþjálfara í Boxen í morgun. Eðlilega enn svekktur eftir tapið í gær og svo var ekki mikill tími fyrir svefn þar sem fjölmiðlahittingurinn var snemma í morgun.

Gróf stríðsöxina við framkvæmdastjóra EHF

Dagur Sigurðsson hefur sæst við framkvæmdastjóra EHF, sem hann segir góðan vin sinn. Legið hafi fyrir að Dagur myndi láta sambandið heyra það fyrir blaðamannafund vikunnar sem fór víða.

Alfreð enn kóngurinn en „jarðaður út og suður“

Alfreð Gíslason er búinn að koma þýska landsliðinu í úrslitaleik EM í handbolta. Undir mikilli pressu og gagnrýni framan af sýndi Íslendingurinn að hann er ótvíræður kóngur í Þýskalandi að mæti sérfræðinga Besta sætisins. Þjóðverjar nái engum árangri nú til dags nema með Íslending í brúnni.

Tekur Gísli of mikið pláss frá Ómari?

Sérfræðingar Besta sætisins eru á því að finna þurfi jafnvægið á milli Gísla Þorgeirs Kristjánssonar og Ómars Inga Magnússonar í leik íslenska landsliðsins. Þegar að það náist geti farið að horfa í að vinna till gullverðlauna á stórmóti. 

Sjáðu myndirnar: Blá krækiber í helvíti

Íslenska karlalandsliðið í handbolta spilar um bronsið á Evrópumótinu í handbolta eftir þriggja marka tap á móti Dönum í undanúrslitaleiknum í gærkvöldi. Hér má sjá myndir frá leiknum.

„Allt til staðar svo að þetta lið geti barist við Dani um gull“

Sérfræðingar Besta sætisins segja reynslu kvöldsins í tapleik í undanúrslitum EM gegn ríkjandi heims- og ólympíumeisturum Dana, vörðu á leið Strákana okkar sem hafi allt til alls til þess að berjast um gullmedalíur við Danina á komandi árum.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×